Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 49
Þið eruð nýbúin að punga út fyrir glænýrri full-
kominni tölvu með ofurhröðum örgjörva og
öllum aukahlutum. Það er nóg af vinnsluminni
og plássið á harða diskinum nær út í hafsauga.
Hvað með gömlu tölvuna sem þessi nýi gæð-
ingur er að leysa af hólmi? Hendið þið henni,
gefið hana til góðgerðastofnunar eða látið þið
hana safna ryki? Eða ekkert af þessu? Gamli
jálkurinn getur komið að góðum notum,
sérstaklega ef þið eruð með lítið netkerfi heima
eða á skrifstofunni.
Í greininni „Hvað á að gera við gamla
jálkinn“ í nóvemberhefti Tölvuheims frá því
fyrra var almennt fjallað um hvað hægt væri að
gera við gömlu tölvuna (á ensku á
find.pcworld.com/34184). Í þessari grein er
fjallað um ákveðin verkefni sem hægt er að
setja gömlu tölvuna í.
Mörg algeng verk sem tölvur framkvæma
krefjast þess ekki að notaðar séu nýjustu og
hraðvirkustu tölvurnar. Í raun getur hvaða
gamla tölva sem er verið skráamiðlari eða
prentaramiðlari á netkerfi eða samnýtingar-
punktur fyrir Nettengingu. 133 MHz Pentium
vél með 32 eða 64 MB vinnsluminni hefur
feikinóg afl fyrir einföld netkerfisverkefni. Í
Windows 98 SE og Windows Me eru inn-
byggðir samnýtingarmöguleikar. Þið þurfið
bara að virkja þá.
Fyrir sum verkefni þurfið þið meira afl –
hraðari örgjörva, meira vinnsluminni og
stundum vélbúnaðaruppfærslu. Það sem máli
skiptir er að með því að endurnota gömlu vél-
ina getið þið bætt tölvuvinnsluna hjá ykkur og
um leið látið ykkur líða vel yfir því að sleppa
við að henda hlut á haugana sem erfitt er að
endurvinna.
www.heimur.is 49Ágúst Tölvuheimur 2003
S V O N A G E R U M V I Ð
Nýjar brellur fyrir gamlar tölvur
ALMENNUR UNDIRBÚNINGUR
Y F I R L I T
Kostir: Óþarfi að henda gömlu tölvunni
Kostnaður: frá 0 og upp undir 20.000 kr.
Kunnátta: Byrjendur til miðlungs
Tími: 15 mínútur og upp í 2 tíma
Verkfæri: Stjörnuskrúfjárn, afrafmagnandi
armband (mælt með)
Þið þurfið að framkvæma nokkur atriði til að undirbúa gömlu tölvuna ykkar fyrir nýja hlutverkið
Setjið upp netkerfiskort. Ef ekki er netkerfistengi í gömlu tölvunni verðið þið að setja svoleiðis
í hana (nema þið ætlið að nota hana staka, ótengda netkerfinu). Netkerfistengi er auðvelt að nálg-
ast og þau eru ódýr, þau ódýrustu kosta u.þ.b. 1.400 krónur (15$). Til að koma tengikortinu fyrir verðið
þið að slökkva á tölvunni, taka hana úr sam-
bandi og taka hlífina af.Til að koma í veg fyrir
skemmdir vegna stöðurafmagns skuluð þið
vera með afrafmagnandi armband þegar þið
eruð að vinna í tölvukassanum. Finnið lausa
PCI-rauf, takið hlífina af henni og setjið net-
kerfiskortið varlega í raufina og festið það
síðan með skrúfunni. Þegar þið endurræsið
tölvuna ætti Windows að finna kortið. Fylgið
leiðbeiningum söluaðilans um hvernig eigi að
setja upp rekilinn.
3
Fjarlægið óþörf forrit. Ef gamla tölvan
verður einungis netkerfistengd og keyrir
engin forrit farið þá í Start>Settings >Control
Panel og tvísmellið á Add/Remove Programs
(Start>Control Panel>Add or Remove Programs
í XP). Hendið út þeim forritum sem þið komið
ekki til með að nota. Eftir að þið eruð búin að því
notið þið Windows-vafrann til að athuga hvort
óþarfa gagnaskrár sé að finna í Program Files
möppunni.
1 Takið til á harða diskinum.
Á flestum hörðum diskum er
hellingur af tímabundnum skrám og skrám úr
biðminni vafra.Til að sópa þeim út og bæta vinnsluna á diskinum – sjá
greinina „Endurheimtið plássið á harða diskinum“ í septemberhefti
Tölvuheims frá því í fyrra (á ensku á find.pcworld.com/34187).
2
L
J
Ó
S
M
Y
N
D
IR
:
R
IC
K
R
IZ
N
E
R
Skref fyrir skref