Tölvuheimur - 01.08.2003, Qupperneq 55
T Ö LV U L E I K I R
www.heimur.is 55Ágúst Tölvuheimur 2003
Varla er til það mannsbarn sem ekki kannast
við Löru Croft eða hefur ekki heyrt minnst á
fyrirbærið Tomb Raider. Þetta kvenkyns afsprengi
Indiana Jones hefur notið ótrúlegra vinsælda
gegnum tíðina og eru Tomb Raider leikirnir í hópi
fárra tölvuleikja sem hafa getið af sér kvikmynd í
stað þess að vera getnir af kvikmynd (jafnvel þó
skyldleikinn við Indiana Jones sé ansi greinilegur).
Maður býst þó ekki við miklu af leikjum á borð við
Tomb Raider: Angel of Darkness, en leikurinn er
númer sex í leikjaröð sem engan endi virðist ætla að
taka. Miðað við niðurstöðuna er kannski eins gott
að væntingarnar voru ekki miklar.
GRAFÍKIN STENDUR Í STAÐ
Greinilega er komin töluverð þreyta í töfraformúl-
una og lyktar útgáfa leiksins af því að verið sé að
kreista síðasta dropann úr peningakúnni alræmdu.
Algjör ráðgáta er hvers vegna hræið var ekki bara
látið liggja í friði og búið til hinstu hvílu. En hvað
um það, leikurinn er kominn og tilbúinn til
niðurrifs. Til gamans má samt geta þess að fram-
leiðendur leiksins, Eidos og Core Designs, höfðu
uppi mikil gífuryrði á síðasta ári um það hversu
Tomb Raider: Angel of Darkness yrði ótrúlega
flottur og frumlegur.
Grafíkin hefur alltaf verið ein sterkasta hlið
Tomb Raider leikjanna. Yfirleitt hafa framleið-
endur leikjanna verið með á nótunum og töfrað
fram grafík í takt við tímann. Stórt og flott þrí-
víddarumhverfi hefur alltaf verið aðalsmerki
Tomb Raider leikjanna. Að þessu sinni er allt við
það sama, grafíkin er flott og umhverfið stórt og
víðfemt, en ekki um miklar breytingar að ræða frá
því í síðasta leik. Er það nokkuð sem virðist plaga
Tomb Raider: Angel of Darkness.
ARFAVITLAUSIR ANDSTÆÐINGAR
Sagan er kannski sterkasta hlið Tomb Raider: Angel
of Darkness og hefur í þetta skiptið nokkuð verið í
hana lagt. Leikurinn byrjar á að Lara hittir gamlan
vin að nafni prófessor Von Croy í íbúð hans í París.
Prófessorinn er að rannsaka dularfull málverk sem
virðast tengd einhvers konar kukli. Stuttu síðar er
prófessor Von Croy og öllum sem rannsókninni
tengjast komið fyrir kattarnef og það sem verra er, -
Löru er kennt um morðin. Við tekur löng og ströng
barátta til að sanna sakleysi söguhetjunnar.
Akkilesarhæll Tomb Raider: Angel of Darkness
er án efa leikhæfnin, en það er ansi bagalegt þar
sem hún er jú einn af stærri þáttum tölvuleikja.
Hér eru sömu leiðigjörnu gáturnar og í fyrir-
rennurunum og endalaus hlaup í óendanlegum
ratleik um víðáttur leiksins. Til að kóróna vitleys-
una eru andstæðingarnir í leiknum svo arfavit-
lausir að drápin eru eiginlega líknardráp.
ÞRÍVÍDDARVÉLIN ÚTUNDAN?
Hljóðið er gott, enda varla erfitt að hanna fram-
bærilegan hljóðheim sem byggist á mishröðum
fótatökum og einstaka byssugelti. Tónlistin er samt
mjög flott, vel samin og hæfir atburðarás leiksins.
Þrívíddarvél leiksins er líka ágæt, en verst að hún
skuli eiginlega ekkert breytt frá því í síðasta leik. Að
manni læðist sá grunur að hún hafi bara gleymst í
öllum látunum við að búa til þennan „stórkostlega
frumlega leik.“
Í Tomb Raider: Angel of Darkness er fátt að
finna sem gerir að verkum að mann blóðlangi til
að mæla með honum. Eflaust finnast þó ein-
hverjar hræður sem eru ekki búnar að fá nóg af
Löru Croft.
GRAFÍK 3.5
Frekar meinlaus grafík sem virð-
ist eins og sprottin úr síðasta leik.
Borðin eru stór og umhverfið
magnað eins og venjulega.
HLJÓÐ 4.0
Flott hljóð og frábær tónlist.
TÆKNI 3.0
Eitthvað hafa Eidos og Core
gleymt að uppfæra þrívíddarvél-
ina og virðist sem maður hafi séð
þetta allt saman áður.
LEIKHÆFNI 2.5
Sama gamla lumman með öllum
gömlu uppþornuðu rúsínunum.
TOMB RAIDER: ANGEL OF DARKNESS
Höggvið í sama knérunn