Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 56

Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 56
www.heimur.is56 Ágúst Tölvuheimur 2003 GRAND THEFT AUTO: VICE CITY Góð skemmtun frá upphafi til enda Fáir unnendur tölvuleikja kannast ekki við Grand Theft Auto (GTA) leikjaröðina, enda eru leikirnir sem hana skipa frægir að endemum. Allt frá því fyrsti leikurinn kom út hafa þeir verið gagnrýndir fyrir óþarfa ofbeldi og fyrir að halda á lofti vafasömum gildum. GTA leikirnir snúast enda um að brjóta af sér með stæl. Hvort sem fólki líkar leikirnir eður ei er vart annað hægt en að hrífast af ótrú- legri leikhæfni leikjanna. Jafnvel fyrsti leikurinn í röðinni var ótrúlega góður þrátt fyrir ævafornt útlit og glatað sjónarhorn á atburðarás, en leikurinn notaðist við það sem kalla mætti „séð ofan frá sjónarhorn“ sem er að falla í gleymskunnar dá. GTA leikirnir uxu svo úr grasi og nýttu sér þrívíddina til fulls þannig að úr urðu einhverjir skemmtilegustu tölvuleikir seinni ára. GTA Vice City er allur í þrívídd og er umhverfið byggt á borginni Miami í Bandaríkjunum. Þá svífur yfir vötnum svipaður andi og þekkja má úr Miami Vice sjónvarpsþáttunum sem gerðu það gott í eina tíð. Pastel-litir og hrað- skreiðir sportbílar einkenna útlit leiksins sem verður að teljast ótrúlega vel heppnað með sinn sterka stíl. Grafíkin er mjög vel gerð og greinilegt að nostrað hefur verið við allt frá minnstu smáatriðum upp í aðalatriðin. Persónur leiksins eru vel teiknaðar og hreyfingar eðlilegar. Bílarnir sem eru eitt af aðalatriðum leiksins eru einnig mjög vel gerðir og eru mismunandi gerðir þeirra auðþekktar. Eins eru aksturseiginleikar bílanna mjög vel hannaðir og má jafnvel ganga svo langt að segja að GTA Vice City slái sumum vel þekktum akstursleikjum við (sem þó hefðu átt að geta einbeitt sér að þessum eina hlut). Þetta er gríðarlega mikilvægt í leik sem þessum og gerir hann mun áhugaverðari fyrir vikið. Hljóðið í GTA Vice City er jafnframt mjög vel gert, umhverfishljóð og brellur eru allar af bestu gerð og tónlistin undirstrikar tíðarandann. Þá hefur GTA Vice City yfir að búa sterkari söguþræði en fyrri leikir í röðinni. Engu að síður spilast GTA Vice City þannig að leikmaðurinn ræður ferðinni alveg sjálfur og er í sjálfsvald sett að taka að sér verkefni sem þróa söguna áfram. Þannig er alltaf hægt að taka sér frí frá verkefnunum og stytta sér stundir við alls kyns iðju. Leikmaðurinn ræður því jafnframt sjálfur hvort hann gerist brotlegur við lög eða ekki. En þar sem löghlýðni er frekar leiðigjörn í GTA Vice City þá enda flestir á því að stíga út af þröngu einstigi löghlýðninar og yfir á breiðan veg glæpa og almennarar ókurteisi. Fyrir þetta hefur þessi útgáfa (sem og fyrri útgáfur) leiks- ins vakið mikla athygli og umtal. Neikvæð athygli á borð við þessa virðist þó, ef eitthvað er, hafa gert leikinn mun vinsælli en annars og kannski gott að muna að þetta er allt saman plat. GTA Vice City er án efa einn af skemmtilegri leikjunum á „pésanum“ í dag og óhætt að mæla með honum fyrir alla þá sem hafa gaman af vel gerðum tölvuleikjum með háu skemmtanagildi. T Ö LV U L E I K I R GRAFÍK 4.5 Frábær grafik. Nostur við smáat- riði og ótrúlega sterk heildarsýn gera GTA Vice City að mjög flott- um tölvuleik. HLJÓÐ 4.5 Umhverfishljóð og brellur virka 100 prósent og tónlistin undir- strikar heildarmyndina. TÆKNI 4.5 Allt er mjög vel gert, sama hvort sem það eru hreyfingar persóna eða aksturseiginleikar bíla. LEIKHÆFNI 4.5 Einn af skemmtilegri tölvuleikj- um sem eru í gangi á pésanum í dag. Valið milli þess að fylgja söguþræðinum og þess að flakka um í reiðileysi gera leikinn mjög langlífan. 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tölvuheimur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.