Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 14

Skinfaxi - 01.02.2018, Page 14
14 SKINFAXI Mót UMFÍ hafa góð áhrif á bæjarfélög Samfélagsleg áhrif Unglinga­ landsmóts UMFÍ eru jákvæð í þeim bæjum þar sem mótin eru haldin. Þau eru hvatning til upp­ bygg ingar íþróttamannvirkja og styrkingar á innviðum staða­r­ ins svo að viðkomandi bæjar­ félag getið haldið Unglinga­ landsmót UMFÍ eða Landsmót. Efld uppbygging íþróttamann­ virkja getur leitt til meiri fjöl­ breytni í íþróttaiðkunum, fjölg­ að iðkendum og styrkt ferða­ þjónustuna á staðnum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í lokaritgerð Sindra Snæs Þor­ steinssonar í ferðamálafræði við líf­ og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Í ritgerðinni skoðar Sindri sam­ félagsleg áhrif íþróttaviðburða víða um heim. Þar kemur m.a. fram að oft er ráðist í mikla upp­ byggingu í kringum viðburðina. Þetta er bæði uppbygging á íþróttamannvirkjum og styrking á innviðum sem fyrir eru í bæjar­ félögum sem halda mótin. Kast­ ljósinu er beint að samfélagsleg­ um og efnahagslegum áhrifum íþróttaviðburða á borð við Ungl­ ingalandsmót UMFÍ á lítil bæjar­ félög á landsbyggðinni. Sindri segir í ritgerðinni að Landsmótin og Unglingalands­ mótin eigi það sameiginlegt að fara fram víðs vegar um landið. Þau eru aldrei haldin á sama stað tvö ár í röð. Mótahaldið krefjist töluverðrar uppbyggingar inn­ viða, bæði til að taka á móti gest­ um og til að aðstaða til iðkunar sé sem best fyrir keppendur. Í niðurstöðunum má sjá að mikil tækifæri fyrir bæjarfélög liggja í því að halda Unglinga­ landsmót. Á Hornafirði setti þetta íþróttamannvirki á dagskrá og hefur orðið mikil uppbygging á þeim þar sem þáttur Unglinga­ landsmóts er mikill. Þá kom fram að mótið auki samstöðu meðal íbúa og að þeir finni fyrir ákveðnu stolti við að halda slíkan viðburð. Þá nýttu Hornfirðingar mótið, sem var haldið árið 2007, til þess að bæta ímynd staðarins og kynna menningu og sérstöðu hans. Þetta styrkti ferðaþjónust­ una á svæðinu. Mikil uppbygging á Höfn Sumarið 2013 var 16. Unglinga­ landsmót UMFÍ haldið á Höfn í Hornafirði. Þetta var í annað skiptið sem mótið var haldið þar. Fyrst var það haldið í bænum árið 2007. Á því móti voru í kring­ um 1.000 keppendur og 7­8.000 gestir. Ráðist var í mikla upp­ byggingu á íþróttamannvirkjum á Höfn sem hefur verið haldið áfram eftir mótið. Fyrir mótið var ráðist í gagngerar endurbætur á Sindravöllum sem er knatt­ spyrnuvöllur bæjarins og grasið á honum endurnýjað ásamt því að tartan­hlaupabraut var sett upp umhverfis völlinn. Til viðbótar var ráðist í byggingu nýrrar sund­ laugar sem hafði verið lengi á teikniborðinu. Framkvæmdin tafðist reyndar og var laugin ekki vígð fyrr en árið 2009. Árið 2012 var íþróttahúsið Báran vígt. Þetta er 4.000 fermetra fjölnota knattspyrnuhús. Sátt við heimamenn Sindri telur að sama sé í hvaða uppbyggingu verði ráðist í tengslum við mótshald, mikil­ vægt sé að hagsmunir almenn­ ings séu lagðir til grundvallar. Mikilvægt sé að skoða hvernig mannvirki muni nýtast bæjarbú­ um þegar viðburðinum er lokið. Sé það gert á réttum forsendum geti það bætt lífsskilyrði íbúa og s kapað meiri sátt meðal almenn­ ings um þá fjármuni sem settir eru í uppbyggingu kringum við­ burðinn. Ef vel er staðið að viðburðum eru allar líkur á því að þeir muni hafa jákvæð áhrif bæði á efna­ hag og samfélagið í heild sinni á þeim stað þar sem íþróttavið­ burðurinn er haldinn. Hins vegar fari eitthvað úrskeiðis í undirbún­ ingi eða í framkvæmd viðburðar­ ins, geta áhrifin verið neikvæð. Góður árangur á Höfn í Hornafirði Unglingalandsmót hafa leitt til mikillar uppbyggingar íþrótta­ mannvirkja í mörgum byggðar­ lögum þar sem þau hafa verið haldin. Íbúar á Höfn í Hornafirði nutu góðs af því við uppbygg­ ingu mannvirkja fyrir mótið 2007. Tæpara mátti vart standa því með gengishruni íslensku krónunnar hækkaði allur kostn­ aður umtalsvert. Sem dæmi má nefna að kostnaður við tartan­ völl hefði orðið margfalt hærri ef farið hefði verið í endurbætur á honum eftir gengisfallið. Af öðrum framkvæmdum má nefna uppbyggingu á strand­ blakvelli við Sindravöll og betr­ umbætur á mótokrossbraut og áhorfendapöllum við Sindravelli. Öll þessi verkefni voru þó smá­ vægileg miðað við aðrar fram­ kvæmdir. Almenn ánægja var meðal við­ mælenda Sindra með uppbygg­ ingu á íþróttamannvirkjum í Höfn á Hornafirði, jafnvel þótt ljóst væri að þeir peningar sem lagðir voru í framkvæmdirnar skiluðu sér seint til baka. Sund­ laugin á Höfn er gott dæmi um það. Þeir sem Sindri ræddi við voru sammála um að fram­ kvæmdirnar borguðu sig hins vegar í bættum lífsgæðum og löð­ uðu ferðamenn í bæinn þar sem tjaldsvæðið í bænum var lagað. Eftir mótið hafa fleiri íþrótta­ viðburðir og minni heimamót verið haldin á Höfn í Hornafirði og nýtast mannvirkin til þess. Það sama á við um fleiri staði, svo sem á Sauðárkróki þar sem Landsmótið er haldið nú og í Vík í Mýrdal þar sem Unglinga­ landsmót UMFÍ var haldið árið 2005. Landsmót UMFÍ 50+ var haldið í Vík árið 2013 og nýttust ­ þá íþróttamannvirkin sem höfðu verið byggð upp í tengsl­ um við Unglingalandsmótið. Sindri segir flesta sem hann ræddi við sammála um að fjöl­ breytni í íþróttalífinu á Höfn hafi aukist eftir mótið þar enda búið að byggja mikið upp. Eftir að nýtt knattspyrnuhús var vígt los­ naði um pláss í íþróttahúsinu. Við það opnuðust dyr fyrir nýjar íþróttagreinar, iðkendum hefur fjölgað og þeir eru orðnir yngri. Margþætt áhrif Efnahagsleg áhrif af Unglinga­ landsmótinu á Höfn eru marg­ þætt, að mati Sindra. Á Unglinga­ landsmót koma rúmlega 1.000 þátttakendur og gestir mótsins eru á milli 8.000 og 10.000 manns. Í þeim áætlunum sem Sindri vann eftir var gert ráð fyrir því að hver gestur eyddi sem næmi 20.000–25.000 krónum í elds­ neyti, mat og keppnisgjöld. Ef miðað er við 8.000 gesti yfir móts­ helgina nemur heildarveltan um 160 milljónum króna að lágmarki sem verða eftir í samfélaginu. Til viðbótar fær viðkomandi sam­ bandsaðili UMFÍ allan hagnað af mótinu sjálfu og tengdum við­ burðum. Efnahagslegu áhrifin geta því verið umtalsverð. Samfélagsleg áhrif Samfélagslegu áhrifin eru ekki síður mikilvæg en þau efnahags­ legu. Í ritgerð Sindra kemur fram að Unglingslandsmótið geti styrkt sjálfsmynd samfélagsins með því að sýna fram á að það ráði við að halda svo stórt mót eins og Unglingalandsmóið er.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.