Skinfaxi - 01.02.2018, Qupperneq 14
14 SKINFAXI
Mót UMFÍ
hafa góð
áhrif á
bæjarfélög
Samfélagsleg áhrif Unglinga
landsmóts UMFÍ eru jákvæð í
þeim bæjum þar sem mótin eru
haldin. Þau eru hvatning til upp
bygg ingar íþróttamannvirkja og
styrkingar á innviðum staðar
ins svo að viðkomandi bæjar
félag getið haldið Unglinga
landsmót UMFÍ eða Landsmót.
Efld uppbygging íþróttamann
virkja getur leitt til meiri fjöl
breytni í íþróttaiðkunum, fjölg
að iðkendum og styrkt ferða
þjónustuna á staðnum. Þetta er á
meðal þess sem fram kemur í
lokaritgerð Sindra Snæs Þor
steinssonar í ferðamálafræði við
líf og umhverfisvísindadeild
Háskóla Íslands.
Í ritgerðinni skoðar Sindri sam
félagsleg áhrif íþróttaviðburða
víða um heim. Þar kemur m.a.
fram að oft er ráðist í mikla upp
byggingu í kringum viðburðina.
Þetta er bæði uppbygging á
íþróttamannvirkjum og styrking
á innviðum sem fyrir eru í bæjar
félögum sem halda mótin. Kast
ljósinu er beint að samfélagsleg
um og efnahagslegum áhrifum
íþróttaviðburða á borð við Ungl
ingalandsmót UMFÍ á lítil bæjar
félög á landsbyggðinni.
Sindri segir í ritgerðinni að
Landsmótin og Unglingalands
mótin eigi það sameiginlegt að
fara fram víðs vegar um landið.
Þau eru aldrei haldin á sama stað
tvö ár í röð. Mótahaldið krefjist
töluverðrar uppbyggingar inn
viða, bæði til að taka á móti gest
um og til að aðstaða til iðkunar
sé sem best fyrir keppendur.
Í niðurstöðunum má sjá að
mikil tækifæri fyrir bæjarfélög
liggja í því að halda Unglinga
landsmót. Á Hornafirði setti þetta
íþróttamannvirki á dagskrá og
hefur orðið mikil uppbygging á
þeim þar sem þáttur Unglinga
landsmóts er mikill. Þá kom
fram að mótið auki samstöðu
meðal íbúa og að þeir finni fyrir
ákveðnu stolti við að halda slíkan
viðburð. Þá nýttu Hornfirðingar
mótið, sem var haldið árið 2007,
til þess að bæta ímynd staðarins
og kynna menningu og sérstöðu
hans. Þetta styrkti ferðaþjónust
una á svæðinu.
Mikil uppbygging á Höfn
Sumarið 2013 var 16. Unglinga
landsmót UMFÍ haldið á Höfn
í Hornafirði. Þetta var í annað
skiptið sem mótið var haldið þar.
Fyrst var það haldið í bænum árið
2007. Á því móti voru í kring
um 1.000 keppendur og 78.000
gestir. Ráðist var í mikla upp
byggingu á íþróttamannvirkjum
á Höfn sem hefur verið haldið
áfram eftir mótið. Fyrir mótið var
ráðist í gagngerar endurbætur á
Sindravöllum sem er knatt
spyrnuvöllur bæjarins og grasið á
honum endurnýjað ásamt því að
tartanhlaupabraut var sett upp
umhverfis völlinn. Til viðbótar
var ráðist í byggingu nýrrar sund
laugar sem hafði verið lengi á
teikniborðinu. Framkvæmdin
tafðist reyndar og var laugin
ekki vígð fyrr en árið 2009. Árið
2012 var íþróttahúsið Báran vígt.
Þetta er 4.000 fermetra fjölnota
knattspyrnuhús.
Sátt við heimamenn
Sindri telur að sama sé í hvaða
uppbyggingu verði ráðist í
tengslum við mótshald, mikil
vægt sé að hagsmunir almenn
ings séu lagðir til grundvallar.
Mikilvægt sé að skoða hvernig
mannvirki muni nýtast bæjarbú
um þegar viðburðinum er lokið.
Sé það gert á réttum forsendum
geti það bætt lífsskilyrði íbúa og s
kapað meiri sátt meðal almenn
ings um þá fjármuni sem settir
eru í uppbyggingu kringum við
burðinn.
Ef vel er staðið að viðburðum
eru allar líkur á því að þeir muni
hafa jákvæð áhrif bæði á efna
hag og samfélagið í heild sinni á
þeim stað þar sem íþróttavið
burðurinn er haldinn. Hins vegar
fari eitthvað úrskeiðis í undirbún
ingi eða í framkvæmd viðburðar
ins, geta áhrifin verið neikvæð.
Góður árangur á Höfn
í Hornafirði
Unglingalandsmót hafa leitt til
mikillar uppbyggingar íþrótta
mannvirkja í mörgum byggðar
lögum þar sem þau hafa verið
haldin. Íbúar á Höfn í Hornafirði
nutu góðs af því við uppbygg
ingu mannvirkja fyrir mótið
2007. Tæpara mátti vart standa
því með gengishruni íslensku
krónunnar hækkaði allur kostn
aður umtalsvert. Sem dæmi má
nefna að kostnaður við tartan
völl hefði orðið margfalt hærri ef
farið hefði verið í endurbætur á
honum eftir gengisfallið.
Af öðrum framkvæmdum má
nefna uppbyggingu á strand
blakvelli við Sindravöll og betr
umbætur á mótokrossbraut og
áhorfendapöllum við Sindravelli.
Öll þessi verkefni voru þó smá
vægileg miðað við aðrar fram
kvæmdir.
Almenn ánægja var meðal við
mælenda Sindra með uppbygg
ingu á íþróttamannvirkjum í
Höfn á Hornafirði, jafnvel þótt
ljóst væri að þeir peningar sem
lagðir voru í framkvæmdirnar
skiluðu sér seint til baka. Sund
laugin á Höfn er gott dæmi
um það. Þeir sem Sindri ræddi
við voru sammála um að fram
kvæmdirnar borguðu sig hins
vegar í bættum lífsgæðum og löð
uðu ferðamenn í bæinn þar sem
tjaldsvæðið í bænum var lagað.
Eftir mótið hafa fleiri íþrótta
viðburðir og minni heimamót
verið haldin á Höfn í Hornafirði
og nýtast mannvirkin til þess. Það
sama á við um fleiri staði, svo
sem á Sauðárkróki þar sem
Landsmótið er haldið nú og í
Vík í Mýrdal þar sem Unglinga
landsmót UMFÍ var haldið árið
2005. Landsmót UMFÍ 50+ var
haldið í Vík árið 2013 og nýttust
þá íþróttamannvirkin sem
höfðu verið byggð upp í tengsl
um við Unglingalandsmótið.
Sindri segir flesta sem hann
ræddi við sammála um að fjöl
breytni í íþróttalífinu á Höfn hafi
aukist eftir mótið þar enda búið
að byggja mikið upp. Eftir að
nýtt knattspyrnuhús var vígt los
naði um pláss í íþróttahúsinu.
Við það opnuðust dyr fyrir nýjar
íþróttagreinar, iðkendum hefur
fjölgað og þeir eru orðnir yngri.
Margþætt áhrif
Efnahagsleg áhrif af Unglinga
landsmótinu á Höfn eru marg
þætt, að mati Sindra. Á Unglinga
landsmót koma rúmlega 1.000
þátttakendur og gestir mótsins
eru á milli 8.000 og 10.000 manns.
Í þeim áætlunum sem Sindri
vann eftir var gert ráð fyrir því
að hver gestur eyddi sem næmi
20.000–25.000 krónum í elds
neyti, mat og keppnisgjöld. Ef
miðað er við 8.000 gesti yfir móts
helgina nemur heildarveltan um
160 milljónum króna að lágmarki
sem verða eftir í samfélaginu. Til
viðbótar fær viðkomandi sam
bandsaðili UMFÍ allan hagnað
af mótinu sjálfu og tengdum við
burðum. Efnahagslegu áhrifin
geta því verið umtalsverð.
Samfélagsleg áhrif
Samfélagslegu áhrifin eru ekki
síður mikilvæg en þau efnahags
legu. Í ritgerð Sindra kemur fram
að Unglingslandsmótið geti
styrkt sjálfsmynd samfélagsins
með því að sýna fram á að það
ráði við að halda svo stórt mót
eins og Unglingalandsmóið er.