Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Síða 5

Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Síða 5
Dr. Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamálaráðherra RÆÐ A víðskiptamálaráðlierra dr. Gylfa I*. Gíslasonar á aðalíundi Kaupmannasamtaka íslands 11. júní 1964 Mér er ánægja að verða við tilmælum for- manns Kaupmannasamtakanna um að segja nokkur orð við þetta tækifæri. Ég geri ráð fyrir því, að þess sé vænzt fyrst og fremst, að ég láti 1 Ijós skoðanir mínar á viðhorfinu í íslenzkum efnahagsmálum nú, eftir að hið víðtæka sam- komulag um launamál heiur náðst milli laun- þegasamtaka, atvinnurekendasamtaka og ríkis- valds. Þetta skal ég reyna. Hugsandi menn getur varla greint á um, að það, sem fyrst og fremst hefur verið ábótavant í íslenzku efnahagslífi síðan á styrjaldarárunum, er, að sífelldar víxlhækkanir kaupgjalds og verð- lags hafa átt sér stað, og verðlags- og kaupgjalds- bækkanir af þeim sökum orðið svo miklar hér á landi, að hvað eftir annað hefur þurft að gera beinar eða óbeinar breytingar á gengi íslenzku ki'ónunnar gagnvart erlendum gjaldeyri, auk þess sem verðgildi krónunnar innanlands hefur að sjálfsögðu farið síminnkandi. Af þessu hefur ekki aðeins leitt, að verðlag hér innanlands hefur losnað úr tengslum við verðlag í viðskiptalönd- um, en það síðan á hinn bóginn kallað á alls konar höft og hömlur í utanríkisverzlun og gjald- eyrisviðskiptum. Þetta hefur einnig haft í för með sér margs konar misræmi í verðlagi innan- lands. En hvort tveggja hefur þetta valdið því, allt aðrar framkvæmdir og allt önnur við- skipti liafa virzt hagkvæm frá sjónarmiði ein- staklinga en þau, sem voru raunverulega hag- kvæm frá sjónarmiði þjóðarheildarinnar. Fjár- iestingin hefur beinzt inn á rangar brautir. Utan- Fyrirtæki og jalnvel atvinnugreinar, sem a. m. k. attu ekki meiri rétt á sér en önnur fyrirtæki eða VERZLUNARTÍÐINDIN aðrar atvinnugreinar, ef miðað er við þjóðar- heildina, hafa hlotið stuðning af rangri gengis- skráningu, sem um nokkurt skeið a. m. k. var ávallt afleiðing þessarar þróunar, og haftanna, sem hlutu að vera skilgetið afkvæmi hennar. Mikið hefur verið um það deilt, hver sé frum- orsök þessarar þróunar, sem allir virðast hins vegar hafa verið sammála um að telja óæskilega. Hefur ýmist verið talið, að verðlagshækkanirnar væru eingöngu afleiðing kauphækkananna eða kauphækkanirnar eingöngu afleiðing verðlags- hækkananna. Ég skal ekki ræða það nánar á þessum vettvangi. Hér skal ég láta við það eitt sitja að benda á, að þessar stöðugu víxlhækkanir hafa verið höfuðmeinsemdir efnahagslífsins síð- an á styrjaldarárunum, af því að þær hafa leitt til rangrar gengisskráningar, hafta og verðlags- eftirlits í nokkurn tírna, en síðan til beinnar og óbeinnar gengisbreytingar með vissu millibili, þegar í ljós hefur komið, að höftin og eftirlitið réðu ekki við vandamálin. En nú kann einhver að spyrja, hvort þetta komi í raun og veru svo mikið að sök, ef nauð- synlegar leiðréttingar séu gerðar öðru hverju, eins og hér hefur í raun og veru átt sér stað. Þá er komið að aðalatriði þess, sem ég vildi undirstrika við upphaf máls míns, en það er, að meginástæða þess, að slík þróun sem sú, er hér hefur átt sér stað frá því á styrjaldarárunum, er stórskaðleg, þótt nauðsynlegar leiðréttingar séu gerðar alltaf öðru hvoru, er sú, að hjá því getur ekki farið, að vöxtur þjóðarframleiðslunnar eða hagvöxturinn, sem við oft nefnum svo, hlýtur að verða mun minni undir slíkum kringumstæð- um, en ef þróunin væri sú, að verðlag innan- 37

x

Verzlunartíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.