Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Side 20

Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Side 20
Epli sem fellur er ónýtí Epli eru viðkvæmir ávextir, sem þola illa hnjask eða högg. Það er ekki nægilegt, að skipa- félögin komi ávöxtunum óskemmdum í höfn, lieldur verður uppskipun, geymsla og afgreiðsla í og úr búðunum að vera með þeim hætti, að þessi ferska og viðkvæma vara skemmist ekki að óþörfu fyrir kæruleysi þeirra, sem með hana fara í hvert sinn. Á þessu mun vera nokkur mis- brestur hjá okkur Islendingum, en ef til vill eig- um við nokkra afsökun, vegna þess að við erum ekki uppaldir við ávaxtaræktun og plantekrur. íslenzkir hafnarverkamenn mættu vera tillits- samari en þeir eru við ávaxtauppskipun. Það er ekki óalgeng sjón að sjá stroffurnar skerast inn í hífin, þegar ávöxtum er skipað upp, verkamenn trampa á ávaxtakössum og bílstjórar kasta þeim frá sér, svo að hvert einasta epli, sem í kössunum er, merst meira og minna, og eru þau þá í raun og veru orðin óhæf söluvara, þó að íslenzkar húsmæður láti sér oft á tíðum lynda að taka við lélegri vöru. Úti í heimi, þar sem epli eru framleidd til útflutnings og um vöruvöndun er að ræða, er unnið eftir reglunni: EPLl SEM FELLUR ER ÓNÝTT. Af|reiðslutími verzlana i Reykjavik Framhald af bls. 44 aítur einni til tveim stundum áður en sama fólk hættir vinnu að kvöldi. Hvers vegna er ekki fundið að því að bankarn- ir opna ekki fyrr en kl. 10 að morgni og loka ílestir kl. 3—4 á daginn? Ég fyrir mitt leyti þverneita að viðurkenna að það fólk, sem vinnur við þessar stofnanir gegni ekki þýðingarmiklu þjónustuhlutverki. Hins vegar vil ég taka það skýrt fram, að ég er ekki að iullyrða að þessar stofnanir eigi að breyta sínum afgreiðsluháttum. Það er auðvelt að gera kröfur bæði um bætta þjónustu og annað, en sá hængur er á, að uppfylling þeirra kostar venjulega peninga, og þess vegna getur stundum verið æskilegra, bæði frá sjónarmiði einstaklinga og þjóðfélagsins að stilla þeim nokkuð í hóf í sparnaðarskyni. Það er löng leið frá Tasmaníu og Nýja-Sjálandi í Ástraliu til íslenzkra neytenda, en þaðan koma nú að miklu leyti þau epli, sem eru í búðum og á borðum okkar í dag. Eplaekrur Tasmaníu eru einhverjar þær stærstu sem um getur, og vegna metuppskeru þar bjóða þeir nú epli sín á mjög hagstæðu verði, og þótt leiðin sé löng til Islands, verða viðskipt- in hagstæð. Tegundirnar „Cleo“ og „Granny Smith“ bragð- ast bezt í litaskiptunum frá grænt í gult. „Granny Smith“ er dýr tegund, en „Jónathan” og „Tas- mans Prýði“ eru aftur á móti ódýr. Frá USA kemur aðallega tegundin „Winesaps", fallegt, dökkrautt og bragðgott epli. Eplauppskera Argentínu varð mikið minni nú í ár en oft áður, og seinna á ferðinni. Verðlag á eplum þaðan er því óvenjulega hátt. Tvær helztu tegundir þaðan eru „Black Winesaps" og „Yellow Newtons" — báðar mjög bragðgóðar. Eplauppskera Chile er góð. Þar hafa helztu eplategundirnar sömu nöfn og eiginleika og þau argentínsku. Á markaðnum hér verða fleiri eplategundir með önnur nöfn og frá öðrum löndum en hér hafa verið nefnd, á boðstólum, en við látum þá kynningu, sem hér hefur verið gerð, nægja í bili. Ávaxtanefnd dönsku kaupmannasamtakanna útbjó yfirlitstöflu þá, sem hér fer á eftir, til leið- beiningar íyrir kaupmenn og neytendur almennt, og birtum við hana hér og vonum, að hún megi verða til nokkurs gagns. +-------------------------—---------—-----+ I FORSÍÐAN' Forsíðumyndin er tekin í blómabúðinni Rósin í Vesturveri fyrir Verzlunartíðindin. Eigandi verzlunarinnar er Anton Ringel- j berg, og lét hann taka myndina og gaf } Verzlunartíðindunum, ásamt myndamótum, I en J>au gerði Myndamót h.f. Myndin er í fjórum litum og er fyrsta litmynd í sögu blaðsins. Verzlunartíðindin þakka Ringelberg rausnarskap hans og vinsemd í garð blaðs- ins. 4>t,_„_„_„_„_„____„______„____„_„__„______.4. VERZLUNARTÍÐINDIN

x

Verzlunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.