Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Side 13

Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Side 13
SKYRSLA formanns Félags matvörukaupmanna, GuSna Þorgeírssonar, flxitt á aðalfundí féla^sins, mánuda^ínn 11. maí 1964 Síðasti aðalfundur Félags matvörukaupmanna var haldinn 23. apríl 1963. Stjórn félagsins á síðastliðnu ári skipuðu þessir menn: Formaður, Guðni Þorgeirsson, varaformaður Sigurliði Krist- jánsson, ritari Reynir Eyjólfsson, gjaldkeri Einar Eyjólfsson, meðstjórnandi Lúðvík Þorgeirsson. f varastjórn félagsins voru kosnir Jónas Sigurðsson, Sveinn Guðlaugsson og Björn Jónsson. Sigurliði Kristjánsson var endurkjörinn aðal- fulltrúi félagsins í stjórn Kaupmannasamtaka fs- lands, en varamaður lians Guðni Þorgeirsson. Á starfsárinu hafa verið haldnir 19 bókaðir stjórnarfundir, þar af 3 sameiginlegir með stjórn Félags kjötverzlana, auk 4 funda stjórnarmanna °g nefndar, er starfaði á árinu undir nafninu ..bjargráðanefndin". Auk þess hefur stjórnin eða einstakir stjórnarnrenn haldið fundi, sem ekki hafa verið bókaðir, hvenær sem henni hefur fundizt þörf á. Sjö almennir félagsfundir hafa verið haldnir á árinu, þar af 4 sameiginlegir með félagi kjötverzlana. Þá hefur félagið tekið þátt 1 tveim fræðslufundum á vegum Kaupmannasam- takanna og átt aðild auk þess að tveim öðrum sameiginlegum fundum ásamt öðrum sérgreina- félögum í Reykjavík, ennfremur að sumarfagn- aði á vegum Kaupmannasamtaka íslands, hóp- ferð kaupmanna til Danmerkur á síðastliðnu vori °g sameiginlegri sumar- og skemmtilerð að Lauga- landi í Borgarfirði um verzlunarmannahelgina. Einstakir stjórnarmenn hafa auk þess setið sem iulltrúar félagsins eða Kaupmannasamtakanna í ýmsum nefndum og tekið þátt í fundahöldum °g samningagerðum fyrir félagsins hönd eða Eaupmannasamtakanna. Svo sem þessi upptalning ber með sér að uokkru leyti, þá hygg ég að með þessu starfsári sé fokið erilsamasta starfsári í sögu félagsins. í þessari stuttu skýrslu verður ef til vill ekki gefin fulkomin mynd af því starfi, sem stjórnin og ein- stakir félagsmenn hafa lagt á sig og unnið að á starfsárinu, en ég mun þó leitast við að skýra uokkuð frá gangi helztu mála, sem fyrir hafa verið tekin á starfsárinu. VERZLUNARTÍÐINDIN Kvöldsölumálin: Eins og þrjú síðastliðin starfsár hefur kvöld- sölumálið verið eitt stærsta og að minnsta kosti tímafrekasta mál félagsins. Svo mikið hefur verið ritað og rætt um þessi mál innan félagsins og utan og svo ofarlega hafa þau verð í huga yfir- leitt allra félagsmanna, að jafnvel verðlagsmálin hafa íallið í skugga þess. Allt frá því að fyrst var bvrjað að ræða kvöld- sölumálið, hefur það verið sameiginlegt álit allrar stjórnarinnar og yfirgnæfandi meirililuta félagsmanna, að það bæri að leysa á þann veg, að allir félagsmenn hefðu sama réttinn og sömu aðstöðuna til kvöldverzlunar, ef um hana verður að ræða. Það má segja að upphaf máls þessa hafi verið í stjórnartíð Guðmundar Ingimundarsonar, þeg- ar félagið gerði ályktun um að brýna nauðsyn bæri til þess að spyrna fótum við því ástandi, sem væri að skapast í kvöldsölumálunum og koma á ákveðnari verkaskiptingu í þessum efn- um. Á grundvelli þeirrar ályktunar fóru fram samningaviðræður milli stjórnar Félags matvöru- kaupmanna og Félags söluturnaeigenda, sem þá lyktaði með fullkomnu samkomulagi um slíka verkaskiptingu og á grundvelli þess samkomu- lags gerðu Kaupmannasamtökin síðan ályktun, þar sem skorað var á borgaryfirvöld að breyta ákvæðum reglugerðar um lokunartíma sölubúða o. fl. til samræmis við samkomulag þessara aðila. Næst gerðist það, að borgarráð fól þeirn Sig. Magnússyni varafulltrúa í borgarstjórn og Páli Líndal, skrifstofustjóra borgarstjóra, að gera til- lögur í þessu efni, og i samræmi við áður send erindi. Þegar tillögur þessar lágu fyrir, voru þær sendar til umsagnar félagsins og voru ræddar á almennum fundi í Þjóðleikhúskjallaranum í nóv- ember 1962. Á þessum fundi voru tillögurnar síðan samþykktar með smávægilegum breyting- um nær einróma. Að sjálfsögðu voru tillögur þessar sendar öðr- um aðilum til umsagnar og eftir að hafa fengið allar umsagnirnar afgreiddu borgaryfirvöldin frá 45

x

Verzlunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.