Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Qupperneq 18
f
M I N N I N G
Naílianae! Mósesson
kaupmaður á Þingeyri.
Nathanael Mósesson, kaupmaður í Öldunni á
Þingeyri andaðist 23. marz s.l. Hann var fæddur á
Ketilseyri í Þingeyrarhreppi 14. apríl 1878. For-
eldrar hans voru Móses Mósesson og Valgerður
Nathanaelsdóttir, er bjuggu á Ketilseyri, og ólst
Nathanael upp hjá þeim til 12 ára aldurs, en
þá missti hann móður sína, og fór þá til séra
Þórðar Ólafssonar á Gerðhömrum og var hjá hon-
um í tvö ár og naut tilsagnar hans og menningar
þess ágæta heimilis.
Árið 1914 stofnaði Nathanael Útgerðarfélag
þingeyrar ásamt þeim Ólafi Guðbjarti Jónssyni í
Haukadal og Stefáni Guðmundssyni bónda og
skipstjóra í Hólum. Útgerðarfélag Þingeyrar var
mikil lyftistöng staðarins á skútuöldinni, en
Nathanael var framkvæmdastjóri þess til ársins
1930 að félagið hætti störfum í þeirra eign.
Arið 1914 stofnaði Nathanael einnig eigin
verzlun, Verzlunina Ölduna, og veitti henni for-
stöðu fram á s.l. ár, eða nálægt því hálfa öld.
Nathanael Mósessyni voru íalin mörg trúnaðar-
störf í sveitarfélagi sínu: Átti fjöldamörg ár sæti
í skólanefnd. Gjaldkeri og formaður sóknarnefnd-
ar í rúm 40 ár. Ábyrgðarmaður Sparisjóðs Þing-
eyrar um langt árabil og símstöðvarstjóri. Einn
af stofnendum stúkunnar Fortúnu nr. 75 og ein-
lægur bindindismaður alla ævi. Gæzlumaður
barnastúkunnar Eyrarlilju um áratuga skeið.
Nathanael Mósesson var glæsimenni að vallar-
svn, viðmótsþýður og greiðvikinn og það er sam-
dóma vitnisburður viðskiptavina hans og sveit-
unga að hann hafi aldrei snuðað nokkurn mann.
Hann var fyrirmyndar heimilisfaðir: Barngóður,
gestrisinn, rausnarlegur og glaðvær, enda vin-
margur.
Nathanael Mósesson er horfinn af sviði hins
daglega lífs. Þingeyri hefur misst sérstæðan
persónuleika, mann, sem stækkaði og göfgaði
þorpið.
Jib.
Nathanael Mósesson.
K R1 S TIN N REY R:
Fagra Island,
frjálst á landnámsdögum,
frægt af Islendingasögum,
ástjörð yzt i sæ,
! heill þér flytur feðratunga,
I frelsislandið gamla, unga,
risið undan aldaþunga,
I Island, fagra ísland.
! Frjálsa ísland,
j fortíð þín er saga,
framtíð þín að þroska og aga
börn, sem blessa þig.
! Rís þú upp úr aldalegi,
j eins og sól á júnídegi,
lýs þú fram á friðarvegi,
Island, frjálsa ísland.
I
------------------------------------------n*J*
50
VERZLUNARTÍÐINDIN