Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Side 9

Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Side 9
kringumstæðum og í takmarkaðan tíma, og hið sama hefur í vaxandi mæli átt við um stjórnmála- menn, bæði hér og þó einkum í öðrum löndum. En hér hefur það verið skoðun stjórnvalda, og þá yfirleitt óháð því, hvaða flokkar hafa setið við völd, að nauðsynlegt hafi verið að halda al- mennu verðlagseftirliti, meðan óróinn í verðlags- og kaupgjaldsmálunum hefur verið jafn mikill og hann hefur verið hér undanfarna áratugi. Forsenda þess, að unnt sé að afnema verðlags- eftirlit í því formi, sem það enn hefur hér, er þvi, að jafnvægi skapist í verðlags- og kaupgjalds- málum. Þegar slíkt jafnvægi hefur náðst, er verð- lagseftirlit í hinu gamla formi óþarft. Þetta hefur verið skoðun allra ríkisstjórna í nálægum fönd- um, hvort sem þær hafa verið kenndar til vinstri stefnu eða hægri stefnu. í þessu sambandi vit ég sérstaklega nefna það kerfi, sem Danir hafa tekið upp hjá sér í þessu efni. Á s.l. ári var þar samþykkt löggjöf um eftir- lit með verðlagi. Veitir sú löggjöf stofnun, sem nefnist einokunareftirfitið, heimifd til þess að láta fara fram athuganir á verðfagi og álagningu í tiiteknum greinum, þar sem hún telur slíkt vera nauðsynlegt. Samtök neytenda eða framleið- enda geta einnig óskað slíkrar athugunar. I fram- haldi af henni getur stofnunin ákveðið, að verð eða álagning megi ekki hækka í 3 mánuði í einu, meðan á athuguninni stendur. Leiði hún í ljós, að verðlagning í þessum tilteknu greinum sé ó- réttmæt, getur stofnunin sett reglur um verð og álagningu eða birt leiðbeiningarverð. Þegar stofn- unin ákveður verð og álagningu á þennan hátt, ber henni skyida til þess að taka tillit tif kostn- aðar í fyrirtækjum, sem rekin eru á hagkvæman hátt. Einkasölueftirlitið getur einnig sett reglur um merkingu vöru og verðmerkingu hennar og um gerð vörureikninga, ef það teiur slíkar reglur muni greiða fyrir samkeppni. Það hefur einnig heimild til þess að fyrirskipa að setja þunga- merkingu á vörur, sem pakkaðar eru í verksmiðj- um. Þessi lög voru sett til viðbótar liigum, sem verið hafa í gildi í Danmörku síðan 1955 um eftirlit með einokun og takmörkun á samkeppni. 1 ilgangur þeirra laga hefur verið að korna í veg lyrir verðhækkanir, sem stafa af of lítilli sam- beppni, hvort sem það er vegna þess, að ekki sé nema einn aðili, sem ráði yfir markaðinum, eða gerðir hafi verið samningar, sem takmarki sam- beppnina. Þegar um slíkt er að ræða, veita lögin Einokunareftirlitinu heimild til þess að grípa í taumana og setja reglur um verð, álagningu og ]Jví um líkt. Einokunareftirlitið getur einnig krafizt skrásetningar á samningum og þess, að leitað sé samþykkis þess á samningum, áður en þeir ganga í gildi. Ég tel þessa löggjöf að ýmsu VERZLUNARTÍÐINDIN leyti vera til fyrirmyndar og tel tímabært að rann- saka, hvaða skipun okkur hér henti bezt í þess- um efnum. Ég hef í þessum orðum mínum vikið að ýmsum helztu viðfangsefnunum, sem nú eru á döfinni í íslenzkum efnahagsmáfum. Ég vona, að það geti orðið til þess að auðvelda mönnurn að mynda sér skýra og rökstudda skoðun á því, hvaða stefna og hvaða ráðstafanir séu líklegastar til þess að ráða giftusamlega fram úr vandamálun- um, sem framundan eru. Ég tel, að hið nýgerða launasamkomulag valdi því, að nú sé bjartara framundan í íslenzkum efnahagsmálum en verið hefur um skeið undanfarið. Stórt skref hefur verið stigið til að ná aftur því jafnvægi, sem raskazt hafði. Forystumönnum launþegasamtak- anna og atvinnurekendasamtakanna, sem að þessu hafa unnið, ber að þakka þá ábyrgðartilfinningu, sem þeir hafa sýnt. Það hlýtur nú að vera von allra góðra manna, að sá friðartími, sem fram- undan er, verði ekki stundarfyrirbæri, heldur var- anlegur. Ég þykist vita, að íslenzk verzlunarstétt rnuni vilja að því stuðla af öllum mætti. Henni er það ekki síður hagsmunamál en þjóðarheifd- inni allri, að jafnvægi haldist í kaupgjafds- og verðlagsmálum, að gengi krónunnar sé stöðugt, greiðsluafgangur sé í utanríkisviðskiptunum og fjárhagur þjóðarinnar traustur, út á við og inn á við. Það er hinn eini öruggi grundvöllur þess, að áfram sé hægt að vinna að auknu frjálsræði til framkvæmda og viðskipta. En heilbrigt frjáls- ræði til framkvæmda og viðskipta í samvinnu við öflugt ríkisvald, sem tryggir trausta undir- stöðu efnahagslífsins og félagslegt réttlæti, er ör- uggasta leiðin til sívaxandi hagsældar. f«—«■——«—**———>*— --------------—— ---- Sá allra hezti. Einn af fremstu kaupmönnum borgarinn- ar sagði eftir að hafa hlýtt á Vigni bfaða- mann bfaðra um „Daginn og veginn“ í Ríkisútvarpinu: — Og svo ætlast þessi brjóstumkennanlega brjóstvörn neytenda- samtakanna til þess að hann sé afgreiddur með morgunmat kl. að ganga 12, þegar aðrir ætla að fara að borða hádegismat, af því hann hafði sofið yfir sig. +■«——■— -----------— ------------------* 41

x

Verzlunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.