Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Síða 17
Aðalfundur
V er zlunarbankans
Aðalfundur Verzlunarbanka íslands h.L var
haldinn í Lídó, laugardaginn 4. apríl s.l.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, var fundar-
stjóri eins og undani'arin ár, en fundarritarar voru
Gunnlaugur J. Briem, skrifstofumaður og Sveinn
Snorrason hrl., framkvæmdastjóri Kaupmanna-
samtaka íslands.
Egill Guttormsson stórkaupmaður, formaður
bankaráðs, flutti skýrslu um starfsemi bankans á
liðnu starfsári, og kom þar fram að starísemi
bankans hafði aukizt á árinu.
Innlán jukust um 68,1 milljón króna og námu
heildarinnlög í árslok 387,4 milljónum króna.
Á s.l. ári festi bankinn kaup á húseigninni
Bankastræti 5, en þar heíur bankinn liaft aðsetur
s.l. 3 ár. Starfsaðstaða bankans mun batna mjög
er viðbótarhúsnæði verður tekið í notkun á þessu
ári.
Höskuldur Ólafsson bankastjóri flutti fram
reikninga bankans og gerði grein fyrir einstök-
um liðum þeirra, og kom þar fram að hagur
bankans er góður. Bankinn starfrækir tvö útibú,
t Reykjavík og Keflavík.
Starfsmenn bankans voru 50 í árslok.
Aðallundurinn samþykkti að fela stjórn bank-
Höskuldur Olafsson, bankastjóri, flytur skýrslu sína.
ans að vinna að undirbúningi stofnlánadeildar
við bankann.
Framhald á bls. 58.
Sú hefð hefur skapazt, að borgarstjóri Reykjavíkur sé fun darstjóri á aðalfundum Verzlunarbanka íslands. Hér er
Geir Hailgrímsson borgarstjóri í ræðustól.
VERZLUNARTÍÐINDIN
49