Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Síða 23
Aðalfundur
Kaupmannasamtakanna
Aðalfundur Kaupmannasamtaka íslands var
haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 11 júní sd.
Formaður samtakanna, Sigurður Magnússon,
setti fundinn og tilnefndi sem fundarstjóra Sig-
urð Óla Ólafsson, alþingismann á Selfossi, en
lundarritara Einar Ólafsson, kaupmann á Akra-
nesi.
Formaður samtakanna flutti þessu næst yfirlits-
ræðu um störf samtakanna á liðnu starfsári og
benti á þau verkefni sem úrlausnar biðu og
Kaupmannasamtökin þyrftu að vinna að í næstu
framtíð. Þannig mætti ekki lengur dragast að
endurskoðun löggjafar um verzlunaratvinnu færi
fram og breytingar á henni gerðar til samræmis
við breyttar aðstæður og til þess að gera réttar-
stöðu kaupsýslumanna ákveðnari og tryggari.
Ennfremur bæri að vinna að því að stofnlána-
deild verði komið upp fyrir verzlunina, hliðstætt
því sem aðrir atvinnuvegir hafa. Að lokum hvatti
hann kaupmenn eindregið til þess að hyggja vel
að cillum nýjungum í verzlunarrekstri og færa
ser í nyt reynslu annarra þjóða í j)essum efnum,
cf það mætti verða til þess að auka framleiðni
verzlunarinnar, bæta þjónustu við neytendur og
clraga úr dreifingarkostnaði, en einmitt með jjessu
gætu kaupmenn lagt drjúgan skerf til jjess að
varðveita jrann árangur sem náðst hefur í efna-
hagsmálum þjóðarinnar á undanförnum árum og
stuðlað að auknum hagvexti.
Að lokinni ræðu formanns flutti Sveinn Snorra-
son skýrslu framkvæmdastjórnarinnar um störf
stjórnarinnar á liðnu starfsári, sem verið hefur
eitt umsvifamesta og erilsamasta í sögu samstak-
anna.
Viðskiptamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason
heimsótti fundinn og hélt ræðu um efnahags-
nialin, þróun jreirra að undanförnu og horfur.
Hefur úrdráttur úr ræðu ráðherrans verið birtur
1 dagblöðunum.
Á fundinum ríkti mjög mikill einhugur um
storf Kaupmannasamtakanna og létu fulltrúar
aðildarfélaganna, en þau eru 17 að tölu auk ein-
staklinga, í ljós eindreginn stuðning við j>au
VERZLUNARTÍÐINDIN
mál, sem stjórnin liefur haft til meðferðar á síð-
astliðnu starfsári.
Fulltrúi einstaklinga í stjórn Kaupmannasam-
takanna var endurkjörinn, Sigurður Óli Ólafsson,
kaupmaður á Selfossi, og oddamaður í stjórn
Kaupmannasamtakanna kosinn af aðalfundi var
einróma endurkjörinn Sigurður Magnússon,
kaupmaður í Reykjavík.
Aðalfundurinn gerði ýmsar samþykktir og
ályktanir, m. a.: 1) Áskorun til Atvinnumálaráðu-
neytisins um endurskoðun löggjafar um verzlun
og verzlunaratvinnu. 2) ítrekaðar voru fyrri
áskoranir til ríkisstjórnarinnar og stjórnar Seðla-
bankans um að hlutast verði til um að Verzlunar-
banka íslands verði sem allra fyrst veitt heimild
til þess að verzla með erlendan gjaldeyri. 3)
Aherzla var á jiað lögð, að halda bæri áfram
jæirri stefnu, er núverandi stjórnarvöld hafa tek-
ið til aukins frjálsræðis í verðlagsmálum og inn-
flutningsmálum. 4) Fullum stuðningi fundarins
var lýst við stefnu stjórnar kaupmannasamtak-
anna og aðgerðir í lokunarmálunum, jafnframt
beindi fundurinn áskorun til borgarstjórnar
Reykjavíkur um að aðhafast ekki í lokunarmál-
unum, neitt })að sem til þess væri fallið að auka
á misrétti verzlana. 5) Fundurinn mótmælti jæirri
hækkun, sem orðið hefur á söluskatti og smásölu-
verzluninni er gert að innheimta, og ítrekaði
fyrri ályktanir um að lögbundið yrði alegrt jafn-
rétti í skattamálum, þannig að öll atvinnufyrir-
tæki hafi sömu skyldu til skattgreiðslu, hvort sem
j)au væru í einkaeign, félaga eða opinberra stofn-
ana.
Á fundi stjórnar Kaupmannasamtaka íslands
23. júní s.l. fór fram kosning framkvæmdastjórn-
ar fyrir næsta ár þannig:
Formaður: Sigurður Magnússon.
Varaformaður: Eðvard Frímannsson.
Ritari: Lárus Bl. Guðmundsson.
Gjaldkeri: Ásgrímur P. Lúðvíksson.
Meðstjórnandi: Stefán Sigurðsson.