Læknablaðið : fylgirit - 04.03.2016, Page 12
B R Á Ð A D A G U R I N N 2 0 1 6
F Y L G I R I T 8 6
12 LÆKNAblaðið 2016/102 FYLGIRIT 86
Ágrip veggspjalda
V-1 PROMPT: Practical Obstetric Multi-Professional Training
Halla Ósk Halldórsdóttir1
1Fæðingarvakt Landspítala
hallaosk@landspitali.is
Bakgrunnur: PROMPT-námskeið eru afrakstur áralangrar þró-
unarvinnu og rannsókna í Bretlandi við þjálfun starfsfólks í bráða-
tilvikum sem upp geta komið í meðgöngu, fæðingu og sængurlegu.
Vorið 2013 voru tvær ljósmæður og tveir sérfræðilæknar sendir á
PROMPT-leiðbeinendanámskeið í Bretlandi og í kjölfarið voru settir
upp PROMPT-bráðadagar á kvennadeild Landspítalans. Ætlast er
til að allir sem koma að meðgöngu, fæðingu og/eða sængurlegu á
Landspítala taki þátt í einum PROMPT-bráðadegi á ári. Til undir-
búnings fyrir daginn fá þátttakendur að láni bók til lestrar og upp-
lýsingahefti með staðbundnum upplýsingum til eignar.
Markmið: Markmið bráðadaganna er að æfa rétt viðbrögð við
bráðatilfellum sem upp geta komið ásamt því að æfa teymisvinnu
þeirra sem koma að tilfellunum.
Aðferð: PROMPT-bráðadegi er skipt í tvennt, fyrir hádegi eru
fyrirlestrar og eftir hádegi verklegar bráðaæfingar. Þátttakendum er
skipt í þverfagleg teymi sem vinna saman allan daginn. Rannsóknir
hafa sýnt að þjálfun á þeim stað sem tilfellin geta komið upp skilar
mun betri árangri og því eru æfingarnar haldnar á kvennadeildinni.
Notaðir eru raunverulegir leikmunir og leikarar í hlutverki skjól-
stæðinga þar sem það á við.
Niðurstöður: Breskar rannsóknir hafa sýnt fram á að þekking og
verkleg geta starfsfólks batnar til muna með PROMPT-þjálfun sem
og samskipti þeirra. Til þess að bráðadagarnir skili sem bestum
árangri er 100% mæting starfsfólks mikilvæg.
Ályktanir: Núna erum við að hefja fjórða PROMPT-árið, búið er
að skipuleggja 5 bráðadaga á þessu ári. Góð mæting hefur verið á
þessa daga undanfarin ár. Í tengslum við bráðadagana höfum við
bætt verkferla og verklagsreglur eftir ábendingum þátttakenda. Í lok
hvers bráðadags fylla þátttakendur út matsblað og geta þar komið
fram með nafnlausa gagnrýni, nær undantekningalaust virðast þátt-
takendur ánægðir með daginn.
V-2 Innleiðing nýs skráningarkerfis við móttöku
slasaðra á bráðamóttöku Landspítala
Auður elva Vignisdóttir1,2,3, Davíð Björn Þórisson3,4, Jón Magnús Kristjánsson3
1Rannsóknastofu Landspítala og Háskóla Íslands í bráðafræðum, 2læknadeild HÍ,
3bráðamóttöku, flæðisviði, 4heilbrigðis- og upplýsingatæknideild Landspítala
audurev@landspitali.is
Bakgrunnur: Landspítali er stærsta sjúkrahús Íslands og tekur á
móti flestum þeim sjúklingum af landinu öllu sem slasast alvarlega.
Móttaka þessa sjúklinga fer fram samkvæmt fyrirfram skipulögðu
verklagi af teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra
starfsmanna Landspítalans.
Markmið: Tilgangur verkefnisins er að innleiða nýtt skráningar-
kerfi við móttöku slasaðra einstaklinga. Stefnt er að rafrænni
skráningu í rauntíma sem gerð er samhliða skoðun og meðferð
sjúklings. Skráningu verður varpað á sérstakan skjá á bráðaherbergi
Landspítala. Vonast er til þess að bætt skráning við móttöku slasaðra
muni straumlínulaga meðferðarferlið, flýta uppvinnslu sjúklinga og
meðferð og auka þannig öryggi mikið slasaðra sjúklinga sem koma
á spítalann og tryggja að verklagi við móttöku þeirra sé fylgt.
Aðferðir: Sníða þarf forrit/skjal í Heilsugátt þar sem hægt er að
skrá lífsmörk sjúklings, skrá hvaða hluta skoðunar sé búið að fram-
kvæma og niðurstöður þeirra. Þeir hlutar skoðunar sem eru óklár-
aðir munu birtast neðst á skjánum (mynd 1). Eins munu í kerfinu
vera skráðar þær lyfjagjafir sem sjúklingur hefur fengið, vökvar,
blóðgjafir, íhlutir og aðrir þættir meðferðar. Til þessa verkefnis þarf
aðstoð einstaklings með forritunarþekkingu. Forritið/skjalið þarf að
vera aðgengilegt á öllum tölvum Landspítala í gegnum Heilsugátt.
Auk þess þarf nýjan skjá á vegg bráðaherbergisins þar sem má lesa
upplýsingar úr skjalinu. Reynt verður að hanna skjalið svo viðhalda
megi rauntímaskráningu í spjaldtölvu á meðan sjúklingur flyst í
frekari rannsóknir.
Niðurstöður: Myndrænt útlit á fyrirhuguðum breytingum í skrán-
ingu sjást á meðfylgjandi mynd. Þar munu efst koma fram almennar
upplýsingar um sjúkling, aldur og kyn, ásamt lýsingu á slysinu og
hvar grunur sé um að sjúklingurinn hafi hlotið áverka. Neðar munu
standa niðurstöður skoðunar og á hægri hluta skjásins koma fram
upplýsingar um inngrip og lyf. Neðst sjást reitir sem á eftir að skrá
upplýsingar um og tilgangur þeirra er að minna á þá hluta skoðunar
og skráningar. Áætlað er að innleiðing hefjist í kringum september
2016.
Ályktanir: Gert er ráð fyrir að þetta verði hluti af uppbyggingu á
fjöláverkaskrá (Trauma Registry), skráningarkerfi fyrir slasaða ein-
staklinga sem koma á Landspítala. Síðar er gert ráð fyrir það kerfi