Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 7
FÓLK OG FRÉTTIR
Verðkannanir dagblaðanna: ”Einfaldar og einhæfar" - en...
Þeirra er mátturinn!
Verðkannanir hafa lengi
verið umdeildar og margir
orðið til þess að draga í efa
réttmæti þeirra á frjálsum markaði,
þar sem fleiri þættir en verðlag eitt,
hljóta að hafa áhrif á val neytand-
ans. Er skemmst að minnast harðr-
ar gagnrýni á framkvæmd verð-
kannana hjá Neytendaféalgi Akur-
eyrar en sú vinna þykir taka út yfir
allan þjófabálk hvað vinnubrögð
áhrærir.
I ljósi þessa er forvitnilegt að
fletta upp í nýlegri skýrslu Sam-
keppnisstofnunar um viðskipta-
hætti sem tengjast Bónus og Hag-
kaup, og nefnd er annars staðar í
blaðinu. Þar er allmörgum orðum
vikið að verðkönnunum dagblaða
og þeim áhrifum sem þær hafi á
Faggilt endurskoðun
á verkstæðum
í yfir 10 ár hefur verið í gildi það
kerfi að bílaverkstæði, sem til þess
hafa hlotið viðurkenningu, geta
tekið við bílum sem gerðar hafa
verið athugasemdir við í almennri
skoðun, lagfært það sem upp á
vantar og veitt fullnaðarskoðun.
Kerfi þetta hefur verið mjög vin-
sælt, ekki síst úti á landsbyggðinni,
og liefur það náð til um 80 verk-
stæða. Á síðasta ári var reglum
breytt og kröfur auknar þannig að
nú er skylt að þessi endurskoðun
fái faggildingu.
Á árinu 1994 fóru um 120 aðilar
frá 68 verkstæðum á námskeið um
faggilta endurskoðun á vegum Bíl-
greinasambandsins. Faggilding er
veitt af Löggildingarstofunni, en
dómsmálaráðuneyti veitir verk-
stæðum starfsleyfi í framhaldi af
því. Frá síðustu áramótum er ein-
ungis þeim verkstæðum sem
fengið hafa faggildingu heimilt að
annast endurskoðun. 16 verkstæði
eru þegar komin með faggildingu
til endurskoðunar, svipaður fjöldi
til viðbótar hefur sótt um faggild-
ingu og enn fleiri eru að vinna að
málinu.
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar á Smiðjuvegi 14 í Kópavogi er eitt þeirra
verkstæða sem búið er að fá faggilta endurskoðun. A myndinni má sjá fram-
kvæmdastjóra Bílgreinasambandsins, Jónas Þór Steinarsson, ásamt eigendum
verkstæðisins.
verðlagningu stórmarkaða. í
skýrslunni kemur m.a. fram, að af
þeim 53 vörutegundum þar sem
borið var saman innkaupsverð og
smásöluverð hjá Bónus sf., eru 25
vörutegundir með smásöluálagn-
ingu á bilinu -29% til 0%, 13 vöru-
tegundir með 1% til 15% og álagn-
ing á 15 vörutegundir var 16% og
hærri.
I niðurstöðum skýrslunnar segir
síðan: "í flestum tilvikum eru þær
vörur sem verðlagðar hafa verið
undir innkaupsverði, algengar í
verðkönnunum fjölmiðla. Stór-
markaðir kappkosta að vera með
sem lægst verð í verðkönnunum
vegna þeirrar umfjöllunar og at-
hygli sem þeir njóta fyrir bragðið.
Verðkannanir fjölmiðla hafa oftast
verið einfaldar og einhæfar, þannig
að stórmarkaðir hafa af reynslunni
getað áætlað hvaða vörutegundir
koma þar oftast fyrir. Hafa þeir
ekki skirrst við að verðleggja um-
ræddar vörur undir innkaups-
verði."
Ja, mikill er máttur neytenda-
skríbentanna, þrátt fyrir "einföld
og einhæf vinnubrögðin".
Fjöldi mála til
umsagnar
Að venju hafa samtökin ÍSLENSK
VERSLUN fengið fjölda frum-
varpa og þingsályktunartillagna
til umsagnar á yfirstandandi
þingi. Málin eru tekin til umfjöll-
unar á fundum framkvæmda-
stjórnar sem haldnir eru að jafn-
aði einu sinni í viku. Eins og sjá
má af upptalningunni hér á eftir,
eru flest þessi mál beint eða
óbeint tengd EES-samningnum,
en listinn hljóðar þannig:
Frumvarp um hlutafélög
Frumvarp um einkahlutafélög
Frumvarp um evrópsk fjár-
hagsleg hagsmunafélög
Frumvarp um bókhald
Frumvarp um ársreikninga
Frumvarp um héraðsdómstól
í skatta- og bókhaldsmálum
Frumvarp um landkosti
Frumvarp um tollalög
VERZLUNARTIÐINDI 7