Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Side 8
SOLUSPEGILL
Fróðlegar npplýsingar u m
m atvöruverslun í sjónmáli
eir sem á undanförnum árum
hafa verið að tækjavæðast og
taka upp verslunarkerfi með
strikaálestri og tilheyrandi, hafa oft
heyrt þau rök sölumanna, að notkun
slíkra kerfa bjóði upp á uppsprettu
fjölbreyttra upplýsinga. Upplýsinga
sem reynst geti kaupmönnum ómetan-
leg stjórntæki. Minna hefur hins vegar
heyrst um úrvinnslu þessara upplýs-
inga þar til nýverið, að EAN á Islandi
setti á stofn slíka upplýsingaþjónustu.
Nefnist hún Söluspegill og hefur Björn
Jóhannsson viðskiptafræðingur, sem
unnið hefur m.a. að margvíslegum
verkefnum fyrir Kaupmannasamtökin
og Félag íslenskra stórkaupmanna,
hefur tekið að sér að sinna þessari
þjónustu, með aðsetur á skrifstofu KI.
Stendur öllum matvöruverslunum til
boða þátttaka í Söluspeglinum, hvar á
landinu sem þær eru, svo fremi sem
þær hafa til þess búnað.
Fyrirkomulag Söluspegils er þannig,
að í uphafi hvers mánaðar senda versl-
anir inn tilteknar upplýsingar um sölu
í mánuðinum á undan, til EAN á Is-
landi og nokkrum dögum síðar fá þær
til baka niðurstöðutölur. Þar kemur
meðal annars fram heildarsala allra
verslana sem taka þátt í Söluspegli,
meðalverð einstakra vörutegunda, sala
fyrir ákveðna vöruflokka og jafnvel
einstakar vörutegundir. Framleiðendur
og heildverslanir fá aðgang að sölutöl-
um fyrir heildina og auk þess magn-
tölur og verðmæti fyrir sínar eigin
vörur.
Björn kveðst fastlega búast við, að
þátttaka í Söluspegli aukist verulega á
næstu mánuðum. Hvetur hann alla,
sem áhuga hafa á þátttöku eða frekari
upplýsingum til að hafa samband við
sig í síma 568 7811.
THERMOS HITABRUSI • OMISSANDI FERÐAFELAGI
FALLEGUR& STERKUR
HELDUR HEITU/KÖLDU
LOK = BOLLI M/HALDI
(FÁST AUKALEGA)
TE/KAFFIGEYMSLA
VARAHLUTAÞJÓNUSTA
HEILDSÖLUDREIFING JOHN LINDSAY HF.