Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Blaðsíða 9

Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Blaðsíða 9
'TAX-FREE SHOPPING' mwlmr Danir drógu í land fyrir jólin Nýverið tóku gildi í Danmörku ný lög um afgreiðslutíma verslana. Ymsum á óvart er nú verið að þrengja opnunartímann, sérstak- lega yfir jól og áramót. Þannig var aldrei heimilt að hafa opið lengur en til kl. 20 að kvöldi í desember. A aðfangadag mátti enginn hafa opið nema sjoppur (kiosk) og minni hverfaverslanir og strangar takmarkanir voru á því hvaða vörur mátti selja þennan dag. Oheimilt var að hafa verslanir opnar 25. og 26. desember, sem og 1. janúar, en á gamlársdag mátti verið opið til kl. 17.00 Sinn er siður í landi hverju.... FÍS ræður lögfræðing Félag íslenskra stórkaupmanna hefur ráðið Baldvin Hafsteinsson hrl. sem lögfræðing félagsins. Baldvin er sonur Hafsteins Bald- vinssonar og Sigríður Asgeirs- dóttur sem ráku lengi lögfræði- stofu í Húsi verslunarinnar. Hann lauk lögfræðiprófi frá HÍ 1985 en tók að því búnu við starfi forstöðu- manns fasteignadeildar Kaup- þings. I apríl 1986 var hann ráðinn lögfræðingur Verslunarmanna- félags Reykjavíkur og gegndi því í þrjú ár, en hefur síðan rekið eigin málflutningsstofu í Reykjavík. Baldvin er kvæntur Björgu Viggósdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau 3 börn. TAX-FREE SHOPPING HVAR, HVERNIG OG FYRIR HVERJA? Verslun erlendra fer&amanna er vaxandi þáttur í viðskiptum íslenskra verslana. Er það til marks um aukna samkeppnis- hæfni bæði hvað varðar verðlag og þjónustu. Æ fleiri verslanir hafa þvi tekið upp svokallaða TAX-FREE þjónustu, og jókst velta slikrar verslunar um tæpar 75 milljónir króna frá árinu 1993 til siðasta árs, 1994. Hér á eftir eru ýmsar upplýsingar og leiðbeiningar um TAX- FREE þjónustu, hvað hún kostar og hvernig skal bera sig að. HVERNIG FÆRÐU TAX-FREE: Til að fá Tax-free shopping heimild þarf verslun aS gera samning við Fríhöfnina. I dag kostar slíkur samningur 11.330 krónur, sem skiptist þannig: Stofngjald kr. 3.500 árgjald 5.600 vsk. 24,5% 2.230 Samtals kr. 11.330 MeS samningi fylgir eitt ávísanahefti með 50 blöðum. Viðbótarhefti fást hjá Fríhöfninni og kosta kr. 872. Hver verslun er síðan rukkuð árlega um árgjald, sem er í dag 6.972 krónur HVAR SÆKIRÐU UM: Fríhöfnin Box 1200, 235 Keflavíkurflugvelli. Sími: 625 0410 Fax: 625 0418. FRAMKVÆMDIN: 1. Viðskiptavinurinn greiðir fullt verð vörunnar með virðisaukaskatti á venju- bundinn hátt. 2. Viðskiptaaðilinn þarf að vera erlendur ríkisborgari og framvísa vegabréfi því til staðfestingar. 3. Fylla skal út framhlið "Tax-Free" ávísunar á eftirfarandi hátt: a. Vörulýsing á íslensku b. Heildarverð með virðisaukaskatti c. Endurgreiðsluupphæð skv. töflu bæði í bókstöfum og tölustöfum. d. Dagsetjið ávísun og undirskrifið, auk þess skal rita samnings- númer á ávísunina. 4. Látið viðskiptaaðila vita af því að hann þurfi að fylla út bakhlið ávísunar- innar í tæka tíð fyrir brottför. 5. Heftið kassakvittunina við ávísunina. 6. Pakkið vörunni þannig um að ekki þurfi að opna pokann til eftirlits og notið límmiða til innsiglunar, og skrifið númer ávísunar á innsiglunarmiðann. 7. Afhendið viðskiptaaðila ávísunina auk upplýsinga um á hvern hátt endurgreiðslan fer fram. 8. Þeir viðskiptaaðilar sem fara af landi brott með flugi frá Keflavíkurflugvelli þurfa að taka keyptar vörur í handfarangri, þó ekki ullarvörur. 9. Ferðamaður þarf að versla fyrir a.m.k. kr. 5.000 í sömu verslun á sama degi til að eiga rétt á endurgreiðslu. Ferðamaðurinn fyllir sjálfur út bakhlið ávísunarinnar. Avísunina fær hann endurgreidda í reiðufé í Fríhöfninni í Leifsstöð. A öðrum brottfararstöðum stimplar tollvörður ávísunina, ferðamaðurinn sendir hana í pósti til Fríhafnar- innar og fær síðan senda ávísun heim til sln. VERZLUNARTÍÐINDI 9

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.