Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Side 10

Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Side 10
BILGREININ Bílgreinin í upphafi árs: Brýn nauðsyn endur- S^* s **• • nyjunar 1 morgum, storum árgöngum eftir Jónas Þór Steinarsson, framkvæmda- stjóra Bílgreina- sambandsins Ef litið er á stöðu bflgreinar- innar nú í upphafi nýs árs er eðlilegt að velta fyrir sér líklegri þróun á árinu og jafnfram að líta til liðins árs og sjá hverju það hefur skilað. Enn dregst saman Við skoðun á bílainnflutningi kemur í ljós að þriðja árið í röð hefur hann dregist verulega saman og var innan við 6 þúsund bifreið- ar. Eru það aðeins um 54% af því sem innflutningurinn var árið 1991, en það ár voru fluttar til landsins um 11 þúsund nýjar bifreiðar, sem taldist meðaltal innflutnings næstu 10 ára á undan. Sá fjöldi telst eðli- leg endurnýjun til viðhalds bíla- flota landsmanna, sem nú telur um 130 þúsund bfla. Miðað við inn- flutninginn á síðasta ári, tekur yfir 20 ár að endurnýja flotann. Þegar litið er á sveiflur í bílainn- flutningi undanfarin 20 ár kemur í ljós að aldrei hafa komið jafn mörg mögur ár og nú. Eins og horfur eru í dag er ekki útlit fyrir verulega aukningu á bílainnflutningi á ný- byrjuðu ári. Astand í bílgreininni hefur verið mjög erfitt og sést það m.a. á þeim breytingum sem orðið hafa hjá bflainnflytjendum, þ.e. inn- flutningsfyrirtækjum fækkar og fyrirtækin eru að þjónusta æ fleiri tegundir. Nauðsynlegt að draga úr sveiflum I þjónustugeiranum, þ.e. á verk- stæðunum hefur ástandið einnig verið erfitt og endurspeglar það, líkt og minnkandi bílainnflutning- ur, almennt ástand í efnahagsmál- um. Bílgreinin hefur upplifað meiri sveiflur en flestar aðrar starfs- greinar á undanförnum árum. Ytir það undir nauðsyn þess að henni séu sköpuð viðunandi skilyrði og meiri festa í starfsumhverfi. Aðgerðir yfirvalda skipta miklu máli og erfiðleikar undanfarinna ára kalla eftir ákveðinni stefnu af hálfu stjórnvalda í málefnum bíl- greinarinnar. Ljóst er að lítill inn- flutningur á næstliðnum árum mun kalla á umtalsverða aukningu inn- flutnings í framtíðinni. Fyrir liggur í náinni framtíð brýn endurnýjun- arþörf á mjög stórum árgöngum bíla. Nauðsynlegt er að móta stefnu sem dregur úr slíkum sveiflum til frambúðar og gera hinum almenna bíleiganda kleift að endurnýja bíl sinn á sem hagkvæmastan hátt. Vaxandi kröfur Bílgreinin er nauðsynleg þjónustu- grein sem leggur mikið af mörkum til þess að samgöngur hér á landi séu sem öruggastar. Bílgreinin þarf sanngjörn starfsskilyrði til að veita góða, stöðuga og örugga þjónustu. Hún þarf að mæta síauknum kröf- um m.a. í umhverfis- og gæðamál- um. Mikil áhersla er lögð á að mæta þessum kröfum og nægir að nefna aukið starf að fræðslumálum hjá Fræðslumiðstöð bílgreina, fag- gildingu á verkstæðum til endur- skoðunar og vaxandi áherslu á gæðamál. Brýnt er að tryggja betur sam- keppnishæfni þeirra sem starfa í bflgreininni og tengdum greinum. Telja verður mjög óeðlilegt að ísland skeri sig úr nágrannalönd- um okkar hvað varðar gjaldtöku á atvinnubifreiðar. Má sem dæmi benda á að hingað til lands er á hverju ári fluttur fjöldi hópferða- bifreiða á erlendum skráningar- númerum sem einungis er notaður yfir háannatímann. Eigendur þess- ara bifreiða hafa ekki þurft að greiða í sínum heimalöndum sam- bærileg gjöld á við það sem hér tíðkast og er því dregið mjög úr samkeppnishæfni Islendinga. Svipuð dæmi má nefna af vöru- flutningabifreiðum sem hér bera 30% vörugjald og eru því umtals- vert dýrari en í nágrannalöndum okkar. Ekki er hægt að selja slík tæki, sem notuð hafa verið til ákveðinna sérverkefna, úr landi þar sem vörugjöldin fást ekki endur- greidd. Þetta þýðir einfaldlega að ekki er unnt að kaupa hentugustu tækin hverju sinni. Með öðrum orðum, hér verða vörubifreiðar að vera búnar til að takast á við ólík- ustu verkefni og eru því mun dýr- ari fyrir vikið. Skortir stöðugleika í starfsumhverfinu I heild má segja að óvissa sé um þróun mála í bílgreininni, en að sjálfsögðu endurspeglar hún að stórum hluta ástand efnahagsmála og stöðu þjóðarbúsins í heild. Með batnandi skilyrðum almennt, má vænta þess að hagur greinarinnar batni. Eigi að síður er nauðsynlegt að stjórnvöld móti ákveðna stefnu í málefnum bílgreinarinnar. Leik- reglur þurfa að vera skýrar og tryggja stöðugleika í starfsum- hverfi, í stað þess að vera síbreyti- legar. Slíkt er hægt þó auðvitað geti þurft að grípa til að aðgerða í takt við aðstæður hverju sinni. Þær að- gerðir verða hins vegar að byggja á vel grundaðri heildarstefnu. 10 VERZLUNARTÍÐINDI

x

Verzlunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.