Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Side 18
STALDRAÐ VIÐ Á NÝJU ÁRI
Það verður ávallt verðugt verkefni
FIS að berjast gegn hvers konar opin-
berri ofstjórnun og hringamyndun. Það
hefur margt breyst til batnaðar í inn-
flutningi, en í sjávarútvegi er þróunin
mjög neikvæð."
Jónas Þór Steinarsson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins:
Sjáum fram á fækkun
bíla miðað við
óbreyttan inn-
ílutning
"Árið 1994 var erfitt í bílgreininni.
Samdráttur var í bifreiðainnflutningi
þriðja árið í röð og aðeins er verið að
flytja inn helmning af því sem þarf til
eðlilegrar endurnýjunar. Atvinnu-
ástand var erfitt á bifreiðaverkstæðum
og samkeppni frá svartri atvinnustarf-
semi meiri en áður. Ymsar breytingar
urðu í greininni , m.a. hefur fyrirtækj-
um í bílainnflutningi fækkað og al-
gengara er orðið að hvert fyrirtæki selji
mörg merki.
Það er von mín að þetta nýbyrjaða ár
verði snöggtum betra og þróunin liggi
upp á við þó útlitið bendi ekki til
neinna verulegra breytinga.
Áríðandi er að yfirvöld geri sér grein
fyrir nauðsyn þess að bílgreininni séu
sköpuð eðlileg og stöðug rekstrarskil-
yrði. Einnig er Ijóst að til þess að ríkið
geti haldið þeim 18 milljarða króna
tekjum sem það hefur af bílnum og
notkun hans á ári hverju, þá þarf að
lækka og samræma aðflutningsgjöld
þannig, að innflutningur þróist í eðli-
legt horf. Á næstu árum sjáum við
fram á fækkun bíla miðað við óbreytt-
an innflutning. Nú þegar þarf að fara
að endurnýja stóra árganga og það er
langt frá því að vera gefið að bifreiðin
verði áfram almenningseign."
FÉLAGSGJÖLD ERU
FRÁDRÁTTARBÆR
Nýverið barst frá ríkisskatt-
stjóra staðfesting á því að félags-
gjöld vegna aðildar að samtök-
um ÍSLENSKRAR VERSLUNAR
eru frádráttarbær sem rekstrar-
kostnaður frá tekjum af atvinnu-
rekstri og sjálfstæðri starfsemi.
Um þetta hefur sem kunnugt er
risið ágreiningur í ýmsum
skattumdæmum landsins.
I b-lið 6.gr. reglugerðar nr.
483/1994 er að finna ákvæði um
að ríkisskattstjóri skuli halda
lista yfir þau félagsgjöld sem
frádráttarbær eru. Samkvæmt
staðfestingu ríkisskattstjóra eru
því félagsgjöld til Bílgreinasam-
bandsins, Félags íslenskra stór-
kaupmanna og Kaupmanna-
samtaka Islands nú á þeim lista.
„Extra Virgin
ólífuolía er ítölsk gœðaolía
sem ég nota svakalega
mikiÖ í mat - bragðsins
og bollustunnar
vegna. “
SigurÖur Hall
MatreiSslumeistarinn
Stöð 2
tXTRAVlRcn
OuvtOu*
I
"SSBSr
18 VERZLUNARTIÐINDI