Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 25

Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 25
EDINBORGARVERSLUN Asgeir Sigurðsson og Edinborgarverslun eftir Guðjón Friðriksson Hinn 28. september 1864, fyrir rúmum hundrað og þrjátíu árum, fæddist drengur í verslunarstaðnum á Isafirði. Foreldrar hans voru Sigurður Andrésson smiður og kona hans, Hildur Jónsdóttir, sem bæði voru af prestaættum. Sveinn- inn var vatni ausinn og gefið nafnið Asgeir Þorsteinn. Þetta væri nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þessi litli smiðssonur á Isafirði átti eftir að vaxa til mikilla umsvifa og auðlegðar og verða einn af helstu brautryðjendum í nútímalegri verslun og útgerð á Islandi. Þegar Asgeir var tíu ára gamall, þjóðhátíðarárið 1874, var hann sendur alla leið til Edinborgar í Skotlandi í fóstur til Jóns Hjaltalíns föðurbróður síns sem þá var bóka- vörður í Edinborg. Það var harla óvenjulegt að svo ungur drengur væri sendur til framandi landa og kemur helst upp í hugann til sam- anburðar sagan af Jóni Sveinssyni, Nonna, sem fáum árum áður hafði verið sendur suður til Frakklands. Næstu ár var Asgeir að mestu í Edinborg hjá frænda sínum, gekk þar á skóla og vandist ýmsurn störfum. Meðal annars var hann um hríð aðstoðarsveinn við bóka- safnið og vann einnig í verslun. Varð honum brátt ensk tunga töm sem sitt eigið móðurmál. Jón Hjaltalín, föðurbróðir hans og fóstri, vissi að mikið mannsefni bjó í Asgeiri og sá til þess að hann týndi ekki móðurmáli sínu því hann vildi að pilturinn gæti gagn- ast Islandi þó að síðar yrði. GRÁNUFÉLAGIÐ Á ODDEYRI Þegar gagnfræðaskóli var stofn- aður á Möðruvöllum í Hörgárdal árið 1880 var Jón Hjaltalín í Edin- borg ráðinn fyrsti skólastjórinn og fluttist þá til Eyjafjarðar og Ásgeir með honum. Sá síðarnefndi settist á skólabekk hjá fóstra sínum á Möðruvöllum og útskrifaðist þaðan 1882, þá 18 ára gamall. Eftir það gerðist Asgeir Sigurðsson verslun- armaður hjá Gránufélaginu á Odd- eyri og varð áberandi og fyrir- ferðarmikill í félagslífi á Akureyri. í unga manninum bjó mikið manns- efni eins og Jón Hjaltalín hafði alltaf vitað. Eitt sinn hafði verið pantaður Ásgeir Sigurðsson kaupmaður og kon- súlkeinn af brautryðjendum nútíma- legra verslunarhátta á íslandi pappír til Gránufélagsins en þegar sendingin var opnuð kom í ljós að afgreitt hafði verið skakkt og var pappírinn rauður. Ef til vill hafa seljendurnir erlendis haldið að sama væri hvaða litur væri á papp- írnum handa skrælingjunum á Islandi - en pappírinn seldist ekki einu sinni í umbúðir. Þegar gerð var vörutalning eitt sinn bað Ásgeir húsbónda sinn um að selja sér pappírinn til að prenta á hann blað og var það auðsótt. Ásgeir nefndi blaðið Jón rauða og entist papp- írinn í þrjú blöð. Nú er Jón rauði safnarafágæti og í háu verði ef hann er falur. Árið 1886 réði Ásgeir Sigurðsson, þá 22 ára gamall, sig sem skrifara hjá Tryggva Gunnarssyni, síðar bankastjóra, er þá var kaupstjóri Gránufélagsins með búsetu í Kaup- mannahöfn. Asgeir var síðan með Tryggva í Kaupmannahöfn á vetr- um en á Islandi á sumrum. Ekki festi hann þó yndi í Danmörku, hugurinn hvarflaði sífellt á æsku- slóðir í Skotlandi. Það varð úr að hann hvarf úr þjónustu Tryggva og gerðist nú starfsmaður Steenbergs nokkurs sem var konsúll Dana í Leith í Skotlandi. ÞÁTTUR SKOSKRA STÓRKAUPMANNA Leið nú og beið og Ásgeir Sig- urðsson varð þrítugur, fullþroska maður og tilbúinn að takast á við stór verkefni. Hann starfaði við verslunar- og skrifstofustörf í Skot- landi í nokkur ár og komst þá í kynni við skoska stórkaupmenn sem höfðu áhuga á verslun á Islandi. Þeir hétu Geo Copland og Berrie. Varð úr að Ásgeir gekk til samstarfs við þá. Hann fluttist til Reykjavíkur 1894 og ári seinna stofnaði hann eigið verslunarfyrir- tæki í félagi við Copland og Berrie. Kölluðu þeir það Verslunina Edin- borg. Fyrst í stað var hún til húsa í lágreistu timburhúsi í Hafnarstræti 8 og voru starfsmennirnir fimm. Ekki var þó langt að bíða umskipta í þeim efnum. "HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA VIÐ PENINGA?" Fram til þessa höfðu peningavið- skipti verið afar fátíð á íslandi. Fólk tók út vörur hjá verslunum og lagði annaðhvort inn afurðir í staðinn, bæði fisk og landbúnaðarafurðir, eða vann fyrir vörunum í dag- launavinnu. Þetta var svokölluð úttektarverslun og var í raun vöru- skiptaverslun. Tvenns konar eða jafnvel margs konar verðlag var í flestum búðum. Þeir sem tóku út vörur í úttekt voru oftast algerlega VERZLUNARTIÐINDI 25

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.