Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 30
EDINBORGARVERSLUN
áhald sem nefnt er
"National Cash Register".
Það telur - sýnir með
tölum - alla peninga sem í
það eru látnir og segir til
hvort peningaborgun eða
reikningsborgun hefur
farið fram. Eins sýnir
ílátið hvað úr því hefur
verið tekið. Þetta áhald
prentar og seðil sem
viðskiptamaður fær. Hon-
um er ætlað að halda
þeim seðlum saman og fá
svo kaupbæti í vörum
þegar hann sýnir seðla
sem samtals nema 100
krónum. Hver verslunar-
þjónn hefur sína skúffu
sem enginn getur komist í
annar svo verði eitthvað
að hjá einhverjum verður
engum öðrum um kennt.
Áhald þetta kostar 1800
Aðalverslunarhús Edinborgar í Hafnarstræti 10-12 eins og þau
litu út árið 1905. Stórir útstillingargluggar voru mjlunda. Þessi
hús brunnu árið 1915.
krónur og hefur nokkuð lengi verið
notað í Vesturheimi en fá ár síðan
það fór að tíðkast í Norðurálfu."
Þá var þjófavarnarkerfi Edin-
borgar á blómaárum verslunar-
innar upp úr aldamótum nýstár-
legt. Eftirfarandi lýsing á því birtist
í minningum löngu síðar:
"Edinborg hafði á þessu tímabili
vaktara eða vökumenn sem áttu að
gæta húsa og annarra eigna versl-
unarinnar á næturnar. Þessir
vaktarar voru útbúnir með klukkur
sem voru þannig gerðar að að þeim
gengu lyklar sem festar voru á
ýmsa staði í bænum. Ef þeir nú
opnuðu klukkuna með þessum
lyklum mátti lesa það af pappírs-
ræmu innan í verkinu og gat
Tryggvi Magnússon (eftirlitsmaður
verslunarinnar) þannig lesið út úr
því hvar vaktararnir höfðu verið á
hverjum tíma næturinnar. Var
þetta gert til þess að hafa eftirlit
með því að þeir stæðu sína pligt."
NÝSTÁRLEG
MARKAÐSSETNING
Það mun hafa verið Hjalti
Sigurðsson, bróðir Ásgeirs kaup-
manns, sem innleiddi margar
nýjungarnar hjá Edinborg. Hann
hafði verið í Ameríku en kom heim
til að starfa hjá bróður sínum um
fáein ár. Bandaríkjamenn voru þá
þegar orðnir í fararbroddi í versl-
unarháttum og margs konar
auglýsingamennsku og Hjalti kom
með margt af því til Reykjavíkur.
Hér verður nokkuð til tínt.
Edinborg lét til dæmis mann klæð-
ast í jólasveinabúning og vera á
vappi á jólabasar verslunarinnar
sem varð aftur til þess að börn
vildu óð og uppvæg fara í Edin-
borg til að sjá jólasveinninnn. Er
jólasveinn Edinborgar líklega sá
fyrsti sem notaður var í þágu versl-
unar hér á landi.
Eitt auglýsingabragð Edinborgar
með greinilegum amerískum áhrif-
um var það að skreyta fjórhjóla
hestvagn og hafa í honum auglýs-
ingafólk sem klætt var í litríka
búninga og var honum þannig ekið
um göturnar. Ur vagninum var
kastað sælgætispokum til vegfar-
enda en á umbúðunum voru
auglýsingar frá versluninni. Á
þessum árum var gefið út gaman-
blað í Reykjavík sem hét
Þjóðhvellur. Þar stóð í september
1909 um þessa uppákomu:
"Viðskiptafjörið í verslunum
hérna niðri í bænum er ekki neitt
smáræði þessa dagana. Mest kveð-
ur þó að því í Hafnarstræti, alla leið
vestan frá Duus og austur til Zim-
sens. Fremstir eru þó þeir Thor-
steinsson og umfram allt Edinborg
því hún skemmtir jafnframt öllum
bænum annað veifið. Frá henni
gengur vagn um allar trissur,
skreyttur alla vega litum auglýs-
ingum og mislitum mönnum því
þar er svart fólk og þar er hvítt. Þar
er bröndótt. Á vagninum sem tveir
hestar ganga fyrir eru bumbur
barðar, leikið á grafófón, symfón og
salteríum og þess á milli talar negri,
klæddur í hvíta skrúða, til
mannfjöldans um kosta-
kjör þau sem nú séu í
öllum deildum Edinborg-
ar, neðan frá svörtustu
koladeild allar götur upp
í reginsali hinnar glæstu
klæðskeradeildar "þar
sem þær sitja stúlkurnar
mínar með hannyrðir
sínar", segir negrinn. Á
eftir vagninum fer múgur
og margmenni af öllum
stéttum, flissandi og
hlæjandi: allir gluggar
glennast upp á gátt og
bærinn allur í uppnámi. I
rauninni er þetta besta
skemmtun fyrir fólkið og
það liggur við að allt
þetta Edinborgarföruneyti
bregði stórbæjarsvip yfir
strætin sem það á leið
um."
Auglýsingar Edinborgar í
blöðunum lýstu miklu hugviti og
var einskis látið ófreistað til að ná
augum væntanlegra viðskiptavina.
Skrautlegar leturgerðir voru óspart
notaðar og letrið haft á ská, á hlið
eða jafnvel á hvolfi til að vekja
athygli. Þá voru auglýsingarnar oft
í bundnu máli eins og hjá fleiri
verslunum reyndar:
"Heyrðu, bráðum byrja jólin.
Býsna lág er orðin sólin.
Hrind þó burtu sút og sorg:
Því að BAZAR búinn gæðum,
bestu sögum, fögrum kvæðum
er opnaður í Edinborg.
Þar er gjörvallt reift með rósum,
raðað gulli, skreytt með ljósum.
Kvöldi er breytt í bjartan dag.
Spiladósir sífellt syngja.
Samanstilltar bjöllur syngja
undrafagurt yndislag.
Þar fær Pétur hermenn, hesta.
Halmaspil og skáktafl besta.
Ætli' hann verði upp með sér!
Fannhvít brúða Fríða heitir,
fjöllin skjálfa er Gunnar þeytir
lúðurinn svo sem auðið er.
Ber hann Nonni bumbu sína.
Brúðuhús fær litla Stína.
Imba úr gleri gyllta skó.
Hrossabresti Helgi sargar.
Helst á langspil Mundi argar.
Palli ræðst í píanó.
30 VERZLUNARTIÐINDI