Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Síða 34

Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Síða 34
AÐ LOKUM ÞETTA... Lykillinn að lausninni: Hvað segir kúnninn • M i Evrópudagur verslunarinnar, hinn fimmti í röðinni, var haldinn með ráðstefnu í Brussel 10. nóvember síðastliðinn. Þangað voru mættir forsvarsmenn og talsmenn allra stærstu fyrirtækja og félagasamtaka í versl- un í Evrópu til að skiptast á skoðunum um málefni versl- unarinnar - atvinnugreinar sem hefur á launaskrá um 15% alls vinnuafls í álfunni. Að venju voru margir þekktir fyrirlesarar á ráðstefnunni og mörgum athyglisverðum málum velt upp. Einn var þó ræðumaður sem vakti öðrum fremur athygli, írinn Feargal Quinn, frá SUPERQUINN verslunarkeðjunni á írlandi. Hann velti m.a. upp spurn- ingunni um hvað kúnninn hefði fengið út úr þeim breyt- ingum sem orðið hefðu í kjölfar tilkomu innri mark- aðar ESB, hvernig væntingar hans, byggðar á stórum orðum og miklum yfirlýsingum áður en hinn sameiginlegi markaður varð að . veruleika, hafi ræst. Einhverjir gætu reyndar hugsað sem svo: Hvað er forstjóri stórrar verslunar- keðju að vilja upp á dekk á ráðstefnu verslunarfyrirtækja, talandi um málefni kúnnans - neytandans. Er það ekki við- fangsefni neytendasamtaka og ráðstefna um neytendamál? Quinn er ekki sam- mála: I fyrsta lagi er það viðskiptavinurinn sem lætur aurana sína í kassann hjá mér og undirritar í raun Iaunaávísunina mína um hver mánaðamót. Hagsmunir mínir liggja samhliða hagsmun- um þessa hóps. An viðskiptavina er engin verslun, segir Quinn. Og hann heldur áfram: Viðskiptavinirnir, þarfir þeirra og óskir, hafa því miður of oft gleymst við stefnumótun og framkvæmd innri mark- aðarins. Þess vegna sitjum við nú uppi með of mikið bákn, of margar reglugerðir; kerfi sem er alltof þungt í vöfum og erfitt viðureignar. Það sem við hefðum átt að sjá er skemmtilegur markaður sem iðaði af lífi, síbreytilegu vöruvali og öflugri samkeppni. Það var sú mynd sem við, - og stjórnvöld, gáfum viðskiptavinum okkar af því sem verða skyldi. Meiningin var jú að auka frelsið til þess að efla viðskiptin. Quinn kveðst vikulega setjast niður í einni af verslunum sínum með hópi sjálfboðinna viðskiptavina sem þangað kemur til að segja sína hlið á þeim málum sem snúa að versluninni. í klukkustund situr hann og hlustar. Þrennt segir hann að standi upp úr eftir þessa hópfundi: Kúnninn kveðst ekki sjá að vöruúrval hafi aukist að nokkru marki með tilkomu innri markaðarins, árangur aukinnar samkeppni sé ekki sá sem vænst hafi verið og mörgum finnst sem verslunin sinni umhverfismálunum ekki af þeim áhuga sem skyldi. Margt af þessu er mjög skiljanlegt, segir Quinn. Við sem störfum í verslun vitum að enn eru margar hindranir við að selja og dreifa vöru milli landa. Margt er jafnvel orðið erfiðara en áður, vegna Er ekki lausnin sú a& hlusta bara ó kúnnann þegar veriS er a& móta stefnu, taka ókvaróanir eða gera samn- inga? Sé hann ánægbur, veróa allir ánægóir: Kúnninn fær þaó sem hann vill, seljandinn fær aukin við- skipti og ríkissjóóur fær meiri tekjur. reglugerðargleði í Brússel og heimatilbúinna vandræða í hinum ýmsu löndum. Hin daglegu innkaup hafa ekki þró- ast í þá fjölþjóðlegu, skemmtilegu upplifun sem kúnninn átti von á, með litríkum vörum frá hinum ýmsu löndum, í öllum hillum verslana. Ekki vegna þess að hugmyndin um innri markaðinn virki ekki, heldur vegna þess að ekki hefur verið hlustað. Um alla Evrópu hafa t.d. misjafnlega frjóir menn setið við að finna leiðir sem hindra að frelsið fái að njóta sín. Það sem áður voru tollar, heitir nú eitthvað allt annað, en skilar sér í sömu skattheimtu. Um þetta fær samkeppnin engu ráðið. Kúnninn vænti þess líka að með aukinni samkeppni yrði honum lyft upp á þann stall sem honum hæfir; hann yrði kóngurinn í keðjunni, sá sem allir kepptust við að þjóna. Hér hefur hins vegar lítið breyst, segir Quinn. Og hann lét kollega sína ekki síður finna til tevatnsins hvað umhverfismálin varðar: Þessi málaflokkur er vaxandi áhyggjuefni viðskiptavina okkar hvar sem við störfum. Með tilkomu innri markaðarins var því spáð að staðlar á sviði umhverfismála yrðu fjótlega komnir í það horf sem best þekktist í Evrópu. En staðreyndirnar tala öðru máli og verslunin hefur barist af krafti gegn auknum kröfum á þessu sviði. Þetta ætti að vera okkur umhugsunarefni. Ættum við ekki að ganga í fylkingarbrjósti þeirra sem vilja að raddir viðskiptavina okkar fái að heyrast. Hér á ég við, að gætum við horft á innri markaðinn frá sjónarhóli við- skiptavinarins, er hugsanlegt að forgangsröð og meðferð mála yrði önnur en nú er. Sem dæmi má taka samræm- ingu óbeinna skatta. Ef slík aðgerð skilar sér ekki í lægra verði til kúnnans, hefur hann engan áhuga á málinu. Kannski ættum við ekki að hafa það heldur." Quinn minnti kollega sína á upphaflegan tilgang innri markaðarins. Hugmyndin var að auka verslun og viðskipti innan þessa svæðis, ekki þannig að fáir útvaldir gætu hagnast meira, heldur til að örva heildarviðskipti. Þetta byggir á því að verslunin aukist; að viðskiptavinurinn kaupi meira. Til þess að það gerist þurfum við að verða hæfari til að mæta óskum hans, gera verslun spennandi og skemmtilega og síðast en ekki síst, láta viðskiptavini okkar finna, að þeir eru og verða alltaf mikilvægasti hlekk- urinn í keðjunni. Svo mörg voru þau orð. Væntanlega í tíma töluð og hittu í mark í Brússel. Gætu þau einnig átt erindi hér eftir tilkomu EES og með gildistöku GATT? Er ekki lausnin sú að hlusta bara á kúnnann þegar verið er að móta stefnu, taka ákvarðanir og gera samninga? Sé hann ánægður, verða allir ánægðir: Kúnninn fær það sem hann vill, selj- andinn fær aukin viðskipti og ríkissjóður meiri tekjur í kassann. Einfalt mál, ekki satt? 34 VERZLUNARTÍÐINDI

x

Verzlunartíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.