Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Blaðsíða 6

Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Blaðsíða 6
Fjarðarkaup í Grafarvog? Þær fregnir berast æ og aftur að verið sé að selja Fjarðarkaup. Kaupendur mun reynd- ar ekkert skorta og gætu þeir feðgar, Sveinn og Sigurbergur, hætt strax i dag þess vegna. Þeir munu hins vegar hreint ekki á þeim buxum að selja, heldur hafa þeir, eins og fleiri, kannað vandlega þá möguleika sem eru til stækkunar, enda Fjarðarkaup gróið fyrirtæki, stofnað fyrir 23 árum og býsna sterkt eignalega. Við heyrum að Grafarvogur freisti einna helst og Ijóst að dagvörulandslagið á eftir að verða bæði fjöl- breytt og samkeppni hörð í því hverfi þegar fram líða stundir. Hag- kaup er þegar með verslun þar og aðra í bí- gerð, Bónus telur sig eiga lóð vísa og 10/11 er að opna þar 1. júlí. Akureyringar fjárfesta I Reylqavík Kaupmannafélag Akureyrar hefur fest kaup á tveggja her- bergja íbúð við Ásholt 2 í Reykjavík. (búðin verð- ur leigð félagsmönnum sem dvelja þurfa í Reykjavík, sem og öðr- um eftir því sem að- stæður leyfa. Samtals eru um 50 kaupmenn í félaginu á Akureyri. Horfttil lförhúss KEA Fleiri en einn og fleiri en tveir munu hafa rokið upp til handa og fóta þegar spurðist að Kaup- félag Eyfirðinga hyggð- ist loka Vöruhúsinu við Hafnarstræti á Akureyri. Þar hefur heimamönn- um löngum þótt slá hjarta verslunar í bæn- um og eru ýmsir býsna ósáttir við það sem þeir kalla "uppgjöf hjá KEA". Ekkert fæst þó uppgefið um hvaða hugmyndir eru í gangi, en þar munu bæði heimamenn og aðkomumenn koma við sögu, en húsnæðið er eitt það glæsilegasta á Akureyri. ETS Á ÍSLANDI / / HEFJAREKSTUR 1.JUNI Verið er að leggja síðustu hönd á skrifstofuhúsnæði European Tax-Free Shopp- ing á Islandi, eða ETS, í Hafnarfirði og verður væntanlega opnað síðar í þessum mánuði. Fyrirtækið fékk sem kunnugt er starfsleyfi fjármála- ráðherra fyrir skömmu og mun hefja formlegan resktur um næstu mán- aðamót. ETS er alþjóðlegt fyrirtæki sem sér um endurgreiðslu á virðisauka- skatti til ferðamanna. ETS á Islandi er í eigu móðurfyrirtækisins en einnig eru Kaupmannasamtök Island og Félag íslenskra stórkaup- manna eignaraðilar. Síðar í þessum mánuði verða kynningargögn send til verslana og upplýsingafundir haldnir til að útskýra starfsemina. Verslunum verður boðin endurgjaldslaus aðild fyrsta mánuðinn, en eftir það verður innritunargjald 5 þúsund krónur. Það er hins vegar eini kostnaðurinn því árgjald er ekkert og ávísanir og kynningarefni verða látin í té endur- gjaldslaust. Búið er að semja við Landsbanka íslands um að annast endurgreiðslur til ferðamanna. Fyrst í stað verður sú þjónusta veitt á Keflavíkurflug- velli, sem og í Norrænu. Síðar mun Landsbankinn einnig bjóða þessa þjónustu í útibúi á Seyðisfirði og í Sundahöfn. Endurgreiðsluupphæðin verður 15-19% eftir verðmæti inn- kaupanna. Síðar mun íslendingum einnig gefast kostur á að fá ETS ávísanir sem gefnar eru út við inn- kaup erlendis, endurgreiddar hjá Landsbankanum. Skrifstofur ETS á íslandi verða sem fyrr segir í Hafnarfirði. Síminn þar er 555 2833 og faxnúmer 555 2823. Framkvæmdastjóri ETS er Jónas H. Guðmundssonar en stjómarformaður er Ralf Galme frá Svíþjóð. STDRKAUPMENN ÁN ÆGÐIR MEÐ BRUSSELSÝNINGUNA Úr sýningarbás FÍS á sjávarútvegssýningunni í Brussel TANNBHJOTUR TIL TRAFALA etta var bæði spennandi og skemmtileg sýning og þátt- taka okkar hóps tókst vonum framar, segir Jón Ásbjömsson for- maður Félags íslenskra stórkaup- manna sem nýlega er kominn heim af sjávarútvegssýningunni ESE í Brussel. Tólf fyrirtæki tóku þátt í sýningunni undir merkjum FÍS og er þetta í fyrsta sinn sem félagið stendur að slíkri kynningu fyrir hönd útflytjenda í sínum hópi. Jón segir mikinn fjölda fyrir- spurna hafa borist um vömr og þjónustu fyrirtækjanna. Eftir sé að vinna úr þeim fyrirspumum, enda sé sýningin fyrst og fremst vettvangur til kynningar. Fullur hugur er í stórkaupmönn- um að skipuleggja þátttöku fyrir út- flutningsfyrirtæki í fleiri sýningum. Hefur Boston-sýningin komið til tals og kveðst Jón telja líklegt að slík sýningarþátttaka geti orðið ár- viss viðburður í starfi félagsins í framtíðinni. Sýningin í Bmssel þótti takast mjög vel og aðsókn meiri en búist var við, eða um tíu þúsund gestir. Þegar er búið að ráðstafa nær öllu plássi á næstu sýningu sem haldin verður að ári á sama stað. BERGDALEKKIIH Leið mistök urðu við vinnslu á smáfrétt í síðustu Verzlunar- tíðindum að sagt var að heild- verslunin Innnes hafi verið með umboð fyrir Perrier-drykkjarvömr. Þetta umboð var hins vegar hjá Bergdal hf. og fluttist til heildversl- unar Gunnars Kvaran hf. fyrir skömmu. Biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum. að var ánægjulegt að heyra undirtektir lesenda Við- skiptablaðsins við útgáfu fyrsta tölublaðs af Verzlunartíðind- um. Eitt skyggði þó á gleðina, fyrir- sögnin á forsíðunni sem vísaði til Gallup-könnunar inni í blaðinu, og tmflaði nokkra af lesendum okkar. Þar stóð: 80% fleiri versla mest til heimilisins í Skeifunni en á Lauga- veginum. Manna fyrst skulum við viður- kenna að setning þessi var skelfileg- ur tannbrjótur og mikið var reynt að finna aðra úrlausn, án þess að breyta innihaldinu. Spurt var: Á hvaða verslunarsvæði er aðallega keypt inn til til heimilisins? Kórrétt tilvísun hefði því verið: 80% fleiri kaupa aðallega inn til heimilisins í Skeif- unni en á Laugaveginum. Plássins vegna breyttist “kaupa aðallega inn” í “versla mest’’. Allnokkrar ábendingar höfum við fengið og flestar á þeim nótum að rétt hefði verið að segja: 80% fleiri versla meira til heimilisins í Skeif- unni en á Laugaveginum. Það hefði verið góð lausn, svo framarlega sem spurt hefði verið “hvort verslar þú meira til heimilisins í Skeifunni eða á Laugaveginum”, en þá er merk- ingin orðin allt önnur. Samanburður- inn er fleiri ....en, en ekki mest...en. eins og sumir virðast hafa lesið. Það ánægjulega við þetta er þó að eiga hóp af árvökulum lesendum sem fylgjast grannt með málfari í blöðunum. Slíkt hvetur okkur til að gera enn betur. Allar ábendingar eru því af hinu góða og ýta undir upp- byggjandi málfarsumræðu á rit- stjóminni. 6 VERSLUNARTÍÐINDI MAÍ 1996

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.