Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Blaðsíða 23
Gjörðu svo vel
ogaktuíbæimi!
íhjartaborgarinnar
.Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum komið
myndarlega til móts við þörfina á fleiri bílastæðum
í hjarta borgarinnar með byggingu bílahúsa,
sem hafa fjölmarga kosti framyfir önnur bílastæði.
Nýttu þér bílahúsin
og miðastæðin.
Þau eru þægilegasti
og besti kosturinn!
Þú borgar fyrir þann tíma
sem þú notar.
Engin takmörk
á hámarksstöðutíma!
Traðarkot, Hverfisgötu 20, gegnt Þjóðleikhúsinu. 271 stæði.
Vitatorg, bílahús með innkeyrslu frá Vitastíg og Skúlagötu. 223 stæði.
Bergstaðir, á horni Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs. 154 stæði.
_ Fyrir það fyrsta er engin hætta á að tíminn renni
út og gíróseðill bíði undir rúðuþurrkunni þegar
bíllinn er sóttur. í bílahúsum er einfaldlega borgað
fyrir þann tíma sem notaður er.
_Annar stór kostur húsanna tengist misgóðu
veðurfari okkar ágæta lands. í roki og rigningu,
kulda og skafrenningi er þægilegt að geta gengið
þurrum fótum að bílnum inni í björtu húsi.
— Og síðast en ekki síst eru bílahúsin staðsett með
þeim hætti að frá þeim er mest þriggja mínútna
gangur til flestra staða í miðborginni.
Ráðhús Reykjavíkur, innkeyrsla í kjallara frá Tjarnargötu. 130 stæði.
\/EB-
g^B2
ö'G^.
Kolaportið, við Kalkofnsveg vestan við Seðlabankann. 174 stæði.
BILASTÆÐASJOÐUR
Bílastœðifyrir alla
Vesturgata 7, innkeyrsla frá Vesturgötu um Mjóstræti. 106 stæði.