Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Blaðsíða 7

Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Blaðsíða 7
AFGREIÐSLUTÍMI VERSLANA í EVRÓPU HÖFT OG HÖMLUR Á UNDANHALDIHVAHVETNA Langur afgreiðslutími verslana - til hvers, fyrir hverja? er yfir- skrift ráðstefnu sem Kaup- mannasamtökin gangast fyrir 29. maí næstkomandi. Tilgangurinn er að fá opna umræðu um málið þar sem flest- um sjónarmiðum er komið til skila. Afgreiðslutími er sígilt viðfangsefni víðar en hér á landi. I Evrópu hefur höftum og hömlum af afgreiðslutíma verið að linna, enda gera breyttur lífs- stfll og innkaupavenjur þær kröfur að hægt sé að nálgast verslun utan hefð- bundins vinnutíma. Þá gerast æ hávær- ari raddir í anda þess sem gerst hefur r Bandaríkjunum, þar sem afþreyingar- hlutverk verslunar verður æ mikilvæg- ara. Þar telja kaupmenn sig ekki hvað srst vera í samkeppni um frítrma og fjármuni neytenda. Eins og sjá má af listanum hér að neðan eru þó enn mismunandi reglur. Víða er sunnudagsopnun takmörkuð í orði en ekki á borði, því undanþágur eru veittar fyrirhafnarlítið. Þá er regla fremur en undantekning að verslanir séu opnar alla daga á ferðamanna- stöðum. I Danmörku hafa það einkum verið smærri matvöruverslanir sem sóst hafa eftir lengri afgreiðslutíma og nú virðist vera að gefa sig bann sem sett hefur verið við sölu áfengis á kvöldin og um helgar. Allt stefnir þar í frjálsan afgreiðslutíma, að mati tals- manna kaupmanna. Sömu sögu er að segja frá Bretlandi. I Noregi er vaxandi þrýstingur á frjálsan afgreiðslutíma. Þar benda menn á að e.t.v. sé tímabært að hafa verslanir opnar um helgar, en loka þess í stað fyrir hádegi virka daga. Heyrast þau rök ekki hvað síst úr sérverslun margs konar. REGLUR UM AFGREIÐSLUTÍMA VERSLANA í EVRÓPU LAND MÁNUD.-FÖSTUD. LAUGARD. SUNNUD./AÐRIR HELGID. Austurríki 07.00-19.00 Eitt kvöld í vikutil 21.00 Hámark 66 klst. á viku í matvöru, 60 klst. í öðru. 07.00-13.00 Einu sinni. í mánuði til 17.00 og 4 laugard. fyrir jól til 18.00 Heimilt að hafa opið á ferðamannasvæðum Belgía 05.00-21.00 föstud. til kl.21.00 05.00-20.00 Hægt að sækja um heimild til opnunar. Bretland Engar takmarkanir Engartakmarkanir Engar takmarkanir nema fyrir stærstu verslanirnar, hámark 6 klst. Danmörk Engar takmarkanir frá 06.00 á mánud. till7.00 á laugardögum. Óheimilt að selja áfengi milli kl. 20.00 og 06.00. Sjá fyrri dálk Flestar verslanir lokaðar, nema matvöruverslanir með minna en 12,7 millj.Dkr. í veltu. Finnland 07.00-20.00 07.00-18.00 Lokað, nema í desember og sex aðra sunnudaga á ári, kl. 10.00-18.00.Ýmsar undanþágur eru í gangi. Frakkland Engartakmarkanir Engartakmarkanir Má hafa opið en starfsmenn mega ekkivinna. Fjölmargar undanþágur tíðkast, sérstaklega í matvöru. Grikkland Mismunandi reglur eftir stærð. AEm. 08.00-20.30 Sama og fyrri dálkur Lokunart. 15.00-20.00 Almennt lokað, nema í verslun og þjónustu við bíla og ferðam.verslun írland Engarhömlurnema ekki má selja áfengi f. kl. 10.30 Sama ogfyrri dálkur Takmarkaður afgreiðslutími. ítalia 09.00-21.00 Skylt að loka hálfan dag í viku Sama og fyrri dálkur Almennt lokað, en margar undanþágur Luxemborg 06.00-20.00 Smærri verslanir undanþegnar reglum. 06.00-18.00 06.00-13.00 Holland 06.00-22.00 á ferðamannasvæðum 06.00-22.00 Má hafa opið 12 sunnudaga á ári og Noregur 06.00-20.00 06.00-18.00 Almennt lokað, undanþágur veittar Portúgal Engar hömlur Engarhömlur Afgreiðslutími stórmarkaða tak- markaður við kl. 08.00-13.00 Spánn Misjafnt eftir héruðum Alm. lokað kl. 20.00-22.00 eftir stærð verslana Sama ogfyrri dálkur Misjafnt eftir héruðum, en minnst 8 sunnudagar á ári Engar takmarkanir gilda um ferðamannasvæði, ýmsar tegundir sérverslana og minni matvöruverslanir. Svíþjóð Engartakmarkanir Engartakmarkanir Engar takmarkanir Þýskaland 07.00-18.30 Fimmtud. 07.00-20.30 Hámarksopnun 64,5-68,5 klst. á viku. 07.00-14.00 Lengri afgr.timi fyrsta laugard. i mánuði Hægt að sækja um h eimild til opnunar Heimild: EuroCommerce VERSLUNARTÍDINDI MAÍ 1996 7

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.