Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Page 8

Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Page 8
Um eitt af hverjum þremur fyrirtækj- um sem orðið hefur gjaldþrota und- anfarinn áratug er verslunarfyrirtæki. Lýstar kröfur í þessi bú nema 14,2 milljörð- um króna og upp í þær fengust aðeins 1,26 milljarður eða 9,16% að meðaltali, hvort tveggja reiknað á verðlagi ársins 1995. Langstærstur hluti fyrirtækjanna er af Stór- Reykjavíkursvæðinu eða 87%, yfir 60% þeirra eru yngri en 5 ára og um 44% flokk- ast undir almenna heildverslun, samkvæmt atvinnuvegafiokkun Hagstofunnar. Það er 941 verslunarfyrirtæki sem orðið hefur gjaldþrota á árunum 1986-95. Þar af er skiptum ólokið í 191 búi. Kröfur í þau 750 fyrirtæki sem eftir standa námu 14,254 milljörðum króna. Aðeins fundust eignir í 290 búi og skiluðu þær 1,265 milljarði upp í ofangreindar kröfur. Vert er að árétta að inni í þessum tölum eru ekki stór gjaldþrot á borð við Miklagarð, enda skiptum ólokið í því búi. Þar nema samþykktar almennar kröfur hins vegar 1,45 milljörðum króna og áætlað að 15% greiðist upp í kröfur. HELMINGUR í HEILDVERSLUN Rúmlega 40% þeirra fyrirtækja sem urðu gjaldþrota á sfðasta áratug koma úr heild- verslun. Um eitt hundrað fyrirtæki eru úr matvöruverslun, þ.e. atvinnuvegaflokki nr. 618 og í flokki vefnaðarvöru, 621, urðu líka um eitt hundrað fyrirtæki gjaldþrota. í mat- vöruverslun er eingöngu um að ræða smærri fyrirtæki sem ein- göngu kaupa og selja matvöru, en ekki stærri fyrirtæki með blandaða verslun á borð við kaupfélög og stórmarkaði. 1989-91 VORU ERFIÐ ÁR Sé litið yfir tölur ein- stakra ára þá eru árin 1989-1991 áberandi fyrirferðarmest. Á þessum þremur árum urðu 345 fyrirtæki gjaldþrota og skiptum er enn ólokið í 25 þeirra. Eignir fundust í 161 fyrirtæki, lýstar kröfur námu tæplega 7,2 milljörðum króna og upp í þær fengust um 649 milljónir, eða um 7% að meðaltali. ÖNNUR HVER MATVÖRU- VERSLUNí ÞROT? Forvitnilegt er að bera saman fjölda rekstrar- eininga á þessu sama tímabili. Þær tölur ná reyndar ekki nema til loka ársins 1993. Þá kemur í ljós að fjöldi heildverslana í flokki 616 hefur lítið sem ekkert breyst, var 1.176 fyrirtækið árið 1986 en hafði fækkað í 1.121 í árslok 1993. I smásöluverslun er heildarfjöldi rekstrar- eininga árið 1986 1.868 fyrirtæki og J hafði þeim fækkað í millj. kr. Heildarkröfur í þrotabú og úthlutun 1986-1995 á verðlagi 1995 1.266 milljónir komu upp í kröfur 1986-1995 Fjöldi gjaldþrota 1986-1995 120 þrotabú Eignalaus bú Eignir í búi Skiptum ólokið 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 Langflest gjaldþrotin 1986-1995 eru á höfuðborgarsvæðinu Úthlutun úr þrotabúum sem hlutfall af kröfum 1986-1995 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 8 VERSLUNARTÍÐINDI MAÍ 1996

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.