Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Síða 9

Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Síða 9
1.667 í árslok 1993. f matvöruverslun, flokki 618 eru 188 fyrirtæki skráð árið 1986, en hefur fækkað niður í 137 í lok ársins 1993. í vefnaðarvöru hefur einnig orðið tals- verð fækkun, úr 340 rekstraraðilum árið 1986 í 291 íárslok 1993. Séu þessar tölur skoðaðar með tilliti til gjaldþrotanna kemur í ljós að í heildverslun og vefnaðarvöru, sem m.a. nær yfir allar tískuverslanir, er það um það bil eitt af hverjum þremur fyrirtækjum í rekstri sem verður gjaldþrota á þessu tímabili. í mat- vöruverslun lætur hins vegar nærri að ríflega annað hvert fyrirtæki hafi orðið gjaldþrota. Þar hefur endumýjun einnig orðið minnst. FJÁRHÆÐIRNAR LÆGRI Erfitt er að meta hvort einhverjar sérstakar ástæður liggja að baki þessum gjaldþrotum í verslun fremur en öðrum greinum. I Fjár- málatíðindum birtist árið 1994 tafla sem sýnir útlánaafskriftir og töp viðskiptabanka eftir atvinnugreinum. Þar er hlutur verslunar í framlögum á afskriftareikning 5% árið 1992 og 4,3% árið 1993. Bæði árin er versl- un þar lægri en t.d. landbúnaður og sjávarút- vegur, en hæsta hlutfallið er hjá byggingar- verktökum. Reyndar virðast kröfumar lægri í gjaldþrotum verslunar en almennt gerist. Heildarkröfur vegna gjaldþrota fyrirtækja á síðasta áratug nema 58,6 milljörðum, þar af er hlutur verslunar 14,2 milljarðar eða um 24%. Hins vegar er heildarfjöldi gjaldþrota félaga á þessu tímabili 2.904, þar af er fjöldi verslunarfyrirtækja 941, eða rúm 32%. GJALDÞROTA FRÁ BYRJUN Það er Haraldur L. Haraldsson hagfræðing- ur, sem unnið hefur þessar tölur upp úr gögnum frá Hagstofunni og Hlutafélagaskrá. Hann skrifar einnig fyrir skömmu grein þar sem hann bendir á að helmingur hlutafélaga á Islandi var með innan við 500 þúsund krónur í hlutafé í júlí á síðasta ári og 92% hlutafélaga með minna en 15,0 milljónir. Af athugunum sínum dregur Haraldur þá álykt- un að sum þessara fyrirtækja hafi aldrei haft fjárhagslegt bolmagn til að hefja rekstur og því nánast gjaldþrota frá stofndegi. Birgjar og lánastofnanir hafi í raun fjármagnað reksturinn. A skömmum líftíma þessara fyr- irtækja hafi eingöngu tekist að safna skuld- um án eignamyndunar og þau því nánast eignalaus við gjaldþrot. MIKK> TAP Á SKÖMMUM TÍMA Undir þetta tekur Gestur Jónsson hrl., sem hefur mikla reynslu af gjaldþrotamálum sem skiptastjóri. „Verslun er eflaust áhættusöm atvinnugrein, en tiltölulega oft virðist vera farið af stað með lítið eigið fé og takmark- aða ábyrgð. Gjaldþrot eru í eðli sínu ekki óeðlileg. Það sem er hins vegar óvenjulegt er hversu mikið tap myndast á skömmum tíma. Menn virðast hafa verið dálítið blá- eygðir eða helst til örlátir þegar lánstraust er annars vegar.“ Gestur segir hins vegar ljóst að opinberar tölur um lýstar kröfur gefi sjaldnast raun- verulega mynd af því sem tapist. Sjaldan sé farið nákvæmlega ofan í eðli krafna þegar um eignalaus bú sé að ræða. Stór hluti af kröfunum sé einnig áætlanir vegna opin- berra gjalda, sem sjaldnast eigi sér stoð í raunveruleikanum. Þær tölur skekki því myndina talsvert. THERMOS HITABRÚSI • ÓMISSANDI FERÐAFELAGI • FALLEGUR& STERKUR • HELDUR HEITU/KÖLDU • LOK = BOLLI M/HALDl (FÁST AUKALEGA) TE/KAFFIGEYMSLA • VARAHLUTAÞJÓNUSTA HEILDSÖLUDREIFING JOHN LINDSAY HF

x

Verzlunartíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.