Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Qupperneq 10

Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Qupperneq 10
Rjóminn fleyttur? Opnun hinnar nýju lyfja- verslunar Lyfju hefur hrist upp í starfsemi apóteka á Reykjavíkur- svæðinu. Nú keppast þau um að auglýsa lægra lyfjaverð og jafn- vel er afgreiðslutíminn farinn að lengjast tals- vert frá því sem var. í febrúar tóku apótekarar sig til og breyttu til reynslu í eitt ár ára- löngu fyrirkomulagi á nætur og helgidaga- vörslu, en sú þjónusta er lögð þeim á herðar af heilbrigðisráðuneyti. Þannig er nú tryggt að næturvarsla sé ævin- lega í einu þeirra sjö apóteka sem eru miðsvæðis í Reykjavík og því til viðbótar er opið í úthverfi til kl. 22 alla daga vikunnar. Lyfja, sem stendurfyrir utan þetta samstarf, er hins vegar með opið til kl.22 alla daga og mun Borgarapótek fljótlega hafa tekið upp sömu hætti. Þykir öðrum apótekurum sem Lyfja sé með þessu að fleytja rjómann, því mest sé að gera á frameftir kvöldi, en sáralítið á nóttunni þegar skylt sé að hafa opið og vera með lyfja- fræðing á vakt á fullu næturvinnukaupi. Stefnan mótuð í Reykjavík Kaupmannasamtök íslands taka þátt í stefnumótun á vegum Atvinnu- og ferðamála- stofnunar Reykjavíkur- borgar. Skúli Jóhannes- son ÍTékk-kristal situr í ráðgjafahópi vegna verkefnis er nefnist "Samræmd stefnu- mótun í atvinnumálum hjá Reykjavíkurborg" og Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri KÍ hefur tekið sæti í vinnu- hópnum "Verslun og viðskipti". Þannig hafa kaupmenn fullan hug á að leggja sitt af mörkum til þess að verslun hljóti verðugan sess í áætlun- um um framtíðarþróun borgarinnar. VERSLUNI HVERFf HELDUR FASTEIGNIVERÐI Hópur smærri hverfiskaupmanna og sölutur- naeigenda hefur að undanfömu hitt til skrafs og ráðgerðar um hvernig hægt sé að vekja athygli á mikilvægi þeirrar þjónustu sem slíkir aðilar veita. Slagorðið sem fyrirsögnin vísar til kom upp á einum fundi þeirra og fékk góðan hljómgmnn, þó enn sé ekkert ákveðið um hvort og hvernig það verður notað. Innihald þess segir þó ýmislegt um það erindi sem hverfiskaupmenn telja sig eiga við neytendur. “Ég held að enginn vilji missa verslunina úr sínu hverfi, þegar grannt er skoðað. Það er engin alvörubyggð og mannlíf nær varla að blómstra þar sem ekki er verslun og þjónusta”, segir Logi Björgvinsson kaupmaður í Teigakjöri og einn þeirra sem setið hefur fundina. “Það sem drífur okkur áfram er áhugi á að vekja viðskiptavini okkar til vitundar um hversu fátæklegt hverfið verður þegar verslunin hverfur. Og þar sem mannlíf er dapurt og þjónusta lítil, fæst ekki hátt verð fyrir fasteignir. Við viljum líka ná athygli birgjanna sem við erum að skipta við frá degi til dags. Takmarkið er að reyna að ná í sameiningu samningum um hagstæðarara innkaupsverð sem geri okkur samkeppnishæfari við þá stóru”, segir Logi. Hann þekkir þennan rekstur vel úr Teigakjöri, þar sem dagvöruverslun hefur verið rekin um áratugaskeið. Meðal annars var ein af Sunnubúðunum þar á sínum tíma. Þó talsverð endurnýjun hafi orðið í hverfmu, er enn mikið af eldra fólki, og kveðst Logi varla sjá hvemig það fólk færi að ef verslunin flytti á brott. Hann ber sig þó vel, segir reksturinn ganga bæriilega, en það kosti gífurlega vinnu því opið sé til kl. 22 öll kvöld og afkoman bjóði ekki upp á mikið starfsmannahald. Allar hugmyndir hópsins eru enn umræðustigi og em kollegar hvattir til að mæta til leiks. Þeir sem hafa áhuga á að fá upplýsingar um fundi hópsins og taka þátt í þessu samstarfi geta haft samband við skrifstofu Kaupmannasamtakanna. FRÆKIl FÖRTIL KÍNAVELDIS Hópur félagsmanna í Félagi íslenskra stórkaup- manna gerði heilmikla ferð til Guangshou, öðra nafni Kanton, í Kína fyrir skömmu og sótti eina stærstu vörusýningu sem haldin er þar í landi. Var ferðin skipulögð af Islensk-kínverska viðskiptaráðinu. Mikil ánægja var með sýninguna og ferðina í heild og töluverð viðskipti vom gerð hjá nokkrum fyrirtækjum. Var Islendingunum hvarvetna tekið með kostum og kynjum. Eftir sýninguna var haldið í heilmikið ferðalag, m.a. til Gulufjalla og Peking undir leiðsögn Steingríms Þorbjamarsonar. í Peking bauð sendiherra íslands í Kína, Hjálmar W. Hannesson, til kvöldverðar á heimili sínu og mætti þar auk ferðalanganna fjöldi fulltrúa úr kínversku viðskiptalífi og utanríkisþjónustu. Er mál manna að til verðlag og vömúrval í Kína bjóði upp á stóraukin viðskipti á komandi ámm. Steingrímur, Hlíf, Kristján, Kristbjörg, Örn og Valgerður í ægifögru umhverfi Gulufjalla. Götumynd frá Huangshan, öðru nafni Gulufjallaborg. Þessi verslunargata hefur verið varðveitt óbreytt allt frá tímum Ming-keisaraveldisins. Yfirmaður CCPIT í Guangdong ásamt Sigtryggi R. Eyþórssyni formanni íslensk-kinverska viðskiptaráðsins. Hinn viðförli hópur ásamt kín- verskum fulltrúum, t.f.v.: Helma Þórðardáttir, Valgerður Hildi- brandsdóttir, Örn Svavarsson, Sigmar Jónsson, Einar Sverris- son, Steingrimur Þorbjarnarson, Kristján Richter, Hlíf Jóhanns- dóttir, Kristbjörg Ólafsdóttir og Halldór Stefánsson. 10 VERSLUNARTÍÐINDI MAÍ 1996

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.