Bókasafnið - 01.01.2000, Side 31
nægjanlegum fjölda nemenda til að halda tvö til þrjú námskeið
árlega og kannski einhverja vinnufundi fyrir norræna doktors-
nema sem eru Ifklega um fimmtíu alls. Allar stofnanirnar, sem
eiga aðild að þessu neti, eíga möguleika á að senda nem-
endur á þessi námskeið og ef einhver skólinn heldur slfkt
námskeið á eigin vegum er ætlast til að það sé opið öllum
sem eru í doktorsnámi. Nú þegar hafa nokkur námskeið verið
haldín á hverju ári um mismunandi efni, Kerfið miðast líka við
að hægt sé að fá umsjónarmenn frá einhverjum skólanna til
að sjá um doktorsnema í öðru landi. Einnig greiðir netið fyrir
styttri heimsóknir vísindamanna til annars lands til að kenna
eða aðstoða við rannsóknir. Netið hefur sína eigin heimasíðu
þangað sem sækja má efni um þátttökuskólana.
Þáttur NORDINFO
NORDINFO hefur um árabil stutt ráðstefnur og endurmenntun-
arnámskeið norrænna bókavarða og
undanfarin ár hafa allt að tuttugu ráðstefnur
og fundir verið styrktir árlega sem fjalla um
hin ólíkustu svið sem snerta störf bókavarða
og upplýsingafræðinga. Árið 1993 fjár-
magnaði NORDINFO einnig úttekt á stöðu
rannsókna á Norðurlöndunum og gaf út ritið
Forskning inom biblioteksvetenskap och in-
formatik i Norden. ísland var þó ekki með f
þessari úttekt, Annars hefur NORDINFO
ekki verið mjög virkt í að styrkja bóka-
varðanám en þetta kann þó að breytast,
í október 1999 fjármagnaði NORDINFO
fund með forstöðumönnum allra þeirra
skóla sem hafa tekið þátt í samstarfinu
hingað til. Tilgangur fundarins var að ræða
mögulega aukna samvinnu milli skólanna
með fjárhagslegri þátttöku NORDINFO. Rætt var um sam-
vinnu á sviði rannsóknarnáms þar sem NORDINFO gæti veitt
fé til að fjöiga námskeiðum fyrir doktorsnema. Innan endur-
menntunar hefur NORDINFO gert tilraunir með sumarskóla
fyrir starfandi bókaverði en til þess að það sé hægt þurfa
bókavarðaskólarnir að taka þátt í skipulagningu og undir-
búningi. Fjarnám er mjög ofarlega á dagskrá í öllum löndunum
þar sem mennta þarf fólk í dreifðum byggðum og hér eru líka
möguleikar á styrk frá NORDINFO ef fleiri en einn skóli taka
sig saman og setja upp verkáætlun. Á þessum fundi var
einnig rætt um hugsanlega útgáfu norræns rannsóknartímarits
á þessu sviði sem gefið væri út á ensku, um rannsóknarstyrki
sem NORDINFO gæti veitt og jafnvel kom upp sú hugmynd
að setja á laggirnar félag þeirra sem stunda rannsóknir á
þessu sviði innan Norðurlandanna. Ýmislegt annað var viðrað
sem síðan verður tekið upp á ný. Af þessum fundi hefur
þegar komið eitt verkefni, en það er rannsókn sem Danmarks
bibiioteksskole annast og er nokkurs konar kortlagning af því
námsframboði sem nú er í hinum ýmsu skólum og deildum
innan Norðurlandanna á öllum stigum. Mönnum fannst það
gæti verið góð byrjun til að byggja á síðari þróun,
Samantekt
Bókavarðanám á Norðurlöndunum er að ganga í gegnum
visst þroskaskeið sem stefnir í þá átt að gera námið aka-
demískara og veita væntanlegum starfsmönnum bókasafna
og upplýsingastofnana breiða og yfirgripsmikla þekkingu á
einhverju sérsviði, auk þess sem lögð er sívaxandi áhersla á
að bókasafns- og upplýsingafræðingar framtíðarinnar hafi
hæfni til að stunda rannsóknir og þekki vel ólíkar rannsóknar-
aðferðir. Allar þessar þjóðir teljast smáar á
alþjóðlegan mælikvarða og því er það
stuðningur fyrir alla að geta sótt á auð-
veldan og greiðan hátt til annarra stofnana.
Enn er langur vegur þar til menntun til
doktorsprófs verður almenn meðal þessara
þjóða en fyrsta skrefið er að þeir kennarar
sem sinna þessu og hafa næga þekkingu
og reynslu, þekki hver annan því með per-
sónulegum samskiptum er oft hægt að ná
fram markmiðum sem skrifræði getur ekki
bjargað. Fjármagn virðist ekki hamla þróun
á þessu sviði en helsti þröskuldurinn er að
of fáir einstaklingar eru í stakk búnir til að
kenna doktorsnemum.
Nokkrar heimildir
Education for Librarianship in the Nordic Countries. Ed. by Ole Harbo
and Niels Ole Pors. London: Mansell, 1998.
Forskning inom biblioteksvetenskap och informatik i Norden. En
komparative studie av kognitiv och social instituionaiisering av forskningen
samt dess almðnna drag i de nordiska Iðnderna p& basen av
forskningspublikationer. Pertti Vakkari et al. Esbo: NORDINFO, 1993,,
Heimasíður norrænna bókavarðaskóla
Danmörk
Danmarks biblioteksskole: http://www.db.dk/
Finnland
Tampere: http ://www. info.uta.fi/home.html
Abo Akademi: http://www.abo.fi/fak/esf/bii/welcome.htm
Oulu: http://syy.oulu. fi/index_en. html
Noregur
Bergen: http://www.ifi.uib.no/
Oslo: http://www.hioslo.no/JBI/
Tromsö: http://www.ub.uit.no/fag/dok_vitenskap/
Þrándheimur: http://www.ifi.ntnu.no/
Forboðnir ávextir.
Auguste Toulmoucle, 1865
1.
2.
Bókasafnið 24. árg. 2000
29