Bókasafnið - 01.01.2000, Side 35
tíma. Við þurfum að fylgjast betur með tölvutækninni og helst
að tileinka okkur nýjungar á undan notendum til að koma til
móts við nýjar þarfir. Við þurfum að læra meira um kerfisfræði,
meðal annars til þess að geta átt samskipti við kerfis- og
tölvunarfræðinga og komíð hugsun okkar til skila til þeirra sem
hanna og viðhalda tölvukerfunum sem við vinnum við. Við sem
störfum á sérfræðisöfnun fyrirtækja þurfum líka að vaxa með
fyrirtækjunum, tileinka okkur nýjar stjórnunaraðferðir og taka
frumkvæði í þá átt að gera upplýsingarnar og þekkinguna sem
þar líggur verðmætari með því að hyggja betur að stjórnun
þeirra,
Bókasafnsfræðingar þurfa Ifka að vera^ meðvitaðir um
offramboð upplýsinga og huga betur að því að
sía til notandans það magn sem flæðir um
þanm’g að notandínn fái þáð sem hann van-
hagar um en ekkert umfram það. Þá er nauð-
synlegt að gera sér grein fyrir að 80% upplýsinga
eru taldar vera í formí skjala af ýmsu tagí sem að
mestu liggur innan fyrirtækja og þarf að gera
aðgengilegt en ekkí útgefnu efni.
Þekkingarstjórnun — ný starfssvið
Bókasafnsfræðingar hafa aðallega starfað með
gögn og upplýsingar hingað til. Það á vonandí eftir að
breytast með tilkomu þekkingarstjórnunar því þar liggja
möguleikar fyrir okkur að hasla okkur völl. Þekkingarstjórnun
byggist í aðalatríðum á því að skilgreina þekkingu (upplýsingar)
sem auðlind innan fyrirtækja og stjórna ferii hennar. Þekking-
arstjórnun hefur verið skilgreind á marga vegu, Nýleg skil-
greining er að „þekkingarstjórnun felist í skipulagðri meðferð
þekkingar í því skyni að bæta nýsköpun, viðbrögð, framleiðni
og samkeppnishæfi í rekstri".2 Ég kýs að nota einfaldarí
skilgreiningu, það er að þekkingarstjórnun sé sú viðleitni að
stjórna þekkingu starfsmanna til hagsþóta fyrir fyrirtæki.
Þekkingarstjórnun getur því sameinað innan fyrirtækis þætti
eins og
• fyrirtækjastjórnun
• upplýsingatækni
• skjalastjórnun
• gæðastjórnun
• verkefnisstjórnun
• upplýsingastjórnun
En til þess að þekkingin verði aðgengileg þarf að stjórna
henni Ifkt og stjórna þarf upplýsingum eða gögnum. Reynsla
okkar og kunnátta á því sviði gerír það að verkum að bóka-
safns- og upplýsíngafræðingar hafa hér míkla möguleika tíl að
takast á við ný verkefni,
Starfsþróun undir hatti þekkingar
Hér eru nokkur dæmi um hvernig við getum útvíkkað starfs-
svið ökkar undir hatti þekkingarstjórnunar:
• Ráðgjafar (consultants) starfa fyrir notendur, fyrirtæki eða
stjórnendur um stjórnun gagna, upplýsinga, þekkingar og
skjala.
• „Greinendur" (analysts) annast þarfagreiningu, eða greina
og túlka upplýsingar eftir þörfum víðskiptavina.
• Þjálfarar/kennarar (traíners) sem þjálfa eða kenna notend-
um leitartækni á netinu, eða að notfæra sér þann marg-
víslega hugbúnað sem er notaður til þess að hýsa upp-
lýsingar.
• Efnisstjórar (content managers) felur í sér að
tengja til dæmis krækjur á netinu eða nota
XML (eXtensible Markup Language) til að
stjórna innihaldi skýrslna.
• Framleiðslustjórar (product managers) vinna
víð að færa upplýsingar á nýtt form sem aflar
fyrirtækjum nýrra viðskiptavina eða er söluhæft
sem slíkt.
• Þekkingarstjórar (knowledge managers)
stjórna þekkingu innan fyrirtækis á skipulegan
hátt frá grunni - felur í sér stjórn gagnagrunna,
bókasafns, skjala, hópvinnslukerfa, markaðsrannsókna
og þekkingarmíðlun innan fyrirtækja,
• Verkefnisstjórar (project managers) stjórna verkefnum
sem tengjast upplýsingum eða taka þátt í verkefnavinnu
sem sérfræðingar og halda utan um þá þætti sem varða
gögn, upplýsingar og þekkingu.
• Lóðsar (guides) sem leiðbeina starfsmönnum fyrirtækja
um hvar hægt er að finna upplýsingar utan fyrirtækisins.
• Verkferlisstjórar (process managers) halda utan um verk-
ferli og upplýsingaflæði milli verkþátta,
Vefurinn hefur líka getið af sér möguleika til nýrra starfa, til
dæmis:
• Vefstjórar (web masters) stjórna vef, hönnun og tækni.
• Vefritstjórar (web editors) stjórna innihaldi vefja,
Eins og sjá má af þessum lista er af nógu að taka, sumt af
þessu hefur að einhverju leyti verið hluti af okkar starfi, annað
eru alveg nýir möguleikar. Hitt er víst að ekkert breytist nema
við sem starfsstétt tökum frumkvæði í þá átt,
Framtíðin
Að mínu víti höfum víð ekki nema um tvennt að velja, taka
frumkvæði eða verða með tímanum óþarfir milliliðir þar sem
aðrír (þá líklega rafrænir bókaþjónar) munu taka við hlutverkí
okkar. Ef víð tökum fyrri kostinn þurfum við að sækja okkur
Bókasafnið 24, árg, 2000
33