Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 39

Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 39
Námstilhögun Einíngafjöldi sem hver nemandi þarf að Ijúka til að ná meist- araprófi er 180. Þær skiptast þannig að 120 einingar eru ætlaðar fyrir námskeið og 60 einingar í lokaritgerð. Einnig er hægt að Ijúka diploma prófi með 120 einingar og skrifar þá nemandi ekki lokaritgerð. Kennslan fer þannig fram að send eru gögn, þæði á pappír og rafrænt. Kennarar hafa einnig samband við nemanda í gegnum tölvupóst og síma, Hver nemandi hefur jafnframt „einkakennara” (personal tutor) sér til halds og trausts ef eitthvað bjátar á í námi, vinnu eða einkalífi. í janúar á fyrsta ári og í maí á öðru ári koma nemendur saman í Newcastle. Þar er þeim kynnt námsefnið, sitja fyrir- lestra og fara f skoðunarferðir í skjalasöfn. Einnig er hóp- verkéfnavinna. Seinni heimsóknin í skólann, þ.e. í maí á öðru ári, er ætluð til undirbúnings lokaritgerðar. Nemendur hafa þá viku til að setja saman tillögu að þeirri rannsókn sem þeir ætla að vinna að fyrir lokaverkefnið. Námskeið • Skjalastjórn: grundvallaratriði og reglur (Principles and practice ofrecords management) 20e. Farið er yfir grundvallaratriði og reglur sem gilda í skjalastjórn, svo sem lífshlaup skjals. Þá er fjallað um stjórn skjala sem grunn að allri stjórnun stofnunar/fyrirtækis. • Stjórnunarkenningar (Strategic approaches to management) 20e. Helstu stjórnunarkenningar kynntar og notkun þeirra í skjala- stjórn. Einnig farið f markaðssetningu, fjármál skjalasafna, mannleg samskipti og áætlanagerð. • Geymsla og endurheimt upplýsinga (Information storage and retrieval) 20e. Farið yfir grundvallaratriði varðandi geymslu og endurheimt upplýsinga. Samskipta- og skjalastjórnarkerfi skoðuð og farið yfir val og mat á slíkum kerfum. • Stjórnun lífshlaups skjala (Managing the records continuum) 20e. Fjallað um stjórn virkra, óvirkra og sögulegra skjala. • fíannsóknaraðferðir (Research methods) lOe Helstu rannsóknaraðferðir kynntar og notkun þeirra við rann- sóknir í skjalastjórn. • Stjórn skjala í rafrænu umhverfi (Managing records in the electronic environment) 30e. Fjallað um tækni-, laga-, og stjórnunarleg atriði er felast í stjórn skjala í rafrænu umhverfi f fyrirtækjum/stofnunum, • Lokaritgerð (Dissertation) 60e. Rannsóknarverkefni valið af nemanda á sviði skjalastjórnar undir leiðsögn kennara. Það ræðst af efni og rannsóknar- aðferð hvort nemandi fær M.A. eða M.Sc. gráðu. Námsmat Engin próf eru í námskeiðunum heldur eru þau metin af verk- efnum og skýrslum sem nemendur gera. Verkefni eru mis- munandi mörg í hverju námskeiði og hafa þar af leiðandi mis- munandi vægi. Einnig eru í námsefninu sjálfsmatspróf og smáverkefni sem ekki er gefin einkunn fyrir. Verkefnum þarf að Ijúka fyrir ákveðinn tíma og gefur það nemandanum mikið aðhald. Um deildina Saga deildarinnar, sem nú heitir School of Information Studies, nær til ársins 1949 og átti því deildin 50 ára afmæli í fyrra. Deildin varð hluti af Iðnskólanum í Newcastle 1969, Síðan 1992 hefur deildin verið hluti af félagsvísindadeild Northumbriaháskóla. Boðið er upp á fjölbreytt nám diploma, B.A./B.Sc., M.A./M.Sc. og M.phil./PHD gráður á sviði upp- lýsingafræða. Öll aðstaða til kennslu er til fyrirmyndar. Mjög góð tölvuver eru sérstaklega ætluð námi í upplýsingafræðum og kappkosta stjórnendur deildarinnar að vera ætíð með það nýjasta á þessu sviði, Að lokum Með góðri samvinnu, skilningi og skipulagningu heimilis og vinnu er hægur vandi að stunda fjarnám. Fjarnám er góður kostur bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og atvinnurekandann. Atvinnurekandi fær aukna þekkingu í fyrirtækið/stofnunina og missir ekki góðan starfsmann úr vinnu til námsdvalar um lengri tíma. Einstaklingurinn eykur þekkingu sína og getur jafnframt hækkað í tign innan fyrirtækis/stofnunar án þess að þurfa að flytjast búferlum úr landi til að fræðast. Summary Distance Learning for a M.A. degree in Britain. Three professional librarians describe courses in distance learning leading to a M.A. degree in librarianship at the University of Brighton, University of Wales in Aberystwyth and the University of Northumbria in Newcastle, Bókasafnið 24. árg. 2000 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.