Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 54

Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 54
Internetsins) og notkun þeirra á tíunda áratugnum. Langtíma- rannsóknin (1993 til 1996) sýnir breytingar á viðhorfum til Internetsins og reynslu fólks af því. Greining á svörum við spurningalistum sem lagðir voru fyrir í námskeiðum 1998 til 1999 sýnir að á meðal nemenda sem byrjuðu í Internet- námskeiðum við Háskóla íslands voru nokkrar marktækar breytingar á fyrri reynslu þeirra (á sama tíma bendir hún til þess að einnig komi á námskeiðin fólk sem hefur enga reynslu af Inter- netinu), Niðurstöð- ur beggja rann- sóknanna endur- spegla niðurstöður kannana á Internet- aðgengi sem gerð- ar hafa verið af Morgunblaðinu eða fyrir það undanfarin ár (sjá til dæmis lceland Review, 1996; Morgun- blaðið, 1998). Samkvæmt öllu ofansögðu felst eitt helsta gildi ýmissa áðurgreindra niður- staðna í því að þær sýna þörf fyrir stöð- ugar og áframhald- andi mælingar á umhverfinu sem kennsla um Inter- netið á sér stað innan. Þessar mælingar ættu að ná yfir hraða aðlögunar að Internetinu á öllum sviðum samfélagsins (einnig innan bóka- safns- og upplýsingafræði) og þeim upplýsingaveitum og tækjum á Internetinu sem notuð eru á íslandi, reynslu og leikni nemenda í upphafi Internetnámskeiða og skilning þeirra og viðhorf til Internetsins. Af þessu leiðir að forpróf (spurn- ingalistar sem eru aðlagaðir eftir þörfum) munu halda áfram að vera hluti af fyrstu kennslustundum Internetnámskeiða. Að auki munu rannsóknir í framtíðinni taka á spurningunni um með hvað hætti þátttakendur námskeiðanna skilja eða skynja Internetið - sérstaklega hugmyndir þeirra um Internetið. Við vitum að viðhorf til Internetsins og til náms um það eru að breytast en óformleg vitneskja úr kennslustundum bendir til þess að hugmyndir fólks um Internetið geti líka haft áhrif á með hvaða hætti það lærir að nota það. Gildi langtímarannsóknarinnar með tilliti til kennslu hefur verið lýst ítarlega annars staðar (Clyde og Klobas, í prentun). Hér fer á eftir stutt samantekt á gildi beggja rannsóknanna með tilliti til kennslu, það er langtímarannsóknarinnar 1993-1996 og rann- sóknarinnar 1998-1999. í fyrsta lagi verður að taka tillit til þess við skipulagn- ingu námskeiðs að nem- endur hafa mismikla reynslu af Internetinu í upphafi þess. Þetta á einnig við í löndum þar sem almenn notkun Inter- netsins er jafnútbreidd eins og á íslandi, í öðru lagi verður að hafa í huga að breytingar, bæði á Internetinu og á þeirri þekkingu sem þátttak- endur hafa á því í upphafi námskeiðs, gerast hratt. ( þriðja lagi þarf að taka tillit til þess þegar verið er að skipuleggja kennslustundir að fólk hefur mismunandi ástæður fyrir því að vilja læra á Internetið. í fjórða lagi ættu námskeið að vera miðuð við það að þróa jákvæð viðhorf til út- komu notkunar vegna þess að viðhorf til Internetsins og viðhorf til útkomu notkunar þess hafa mikil áhrif á ætlun þátttakanda til að nota Internetið. f fimmta lagi ættu námskeið að byggja á þessum jákvæðu viðhorfum og styrkja þau vegna þess að fáir lýstu yfir ótta við Internetið eða neikvæðum viðhorfum til einstakra hliða Internetnotkunar. Að lokum er mikilvægt að taka tillit til félagslegra áhrifa á notkun Internetsins og á viðhorf til notkunar, þar með talið faglegar væntingar. Með tilliti til hraðra breytinga á Internetinu, þekkingu fólks á því og viðhorfum til þess ættu námskeiðin umfram allt að endursþegla þá strauma og þróun sem ríkir hverju sinni í samtímanum. íslensk þýðing: Agnes Ingimundardóttir Tafla 4: Fjöldi skipta sem þátttakendur hafa notað Internetið fyrir námskeið, 1998-1999 Þátttakendur 1998 Þátttakendur 1999 % Breytingar Fjöldi. (%) Fjöldi. (%) 1998 til 1999 Alls ekki 17(29,8%) 4 (7,5%) -22,3% Eitt til tvö skipti 6 (10,5%) 4 (7,5%) -3,0% Nokkur skipti 18(31,6%) 20 (37,7%) 6,2% Að minnsta kosti einu sinni í mánuði 4 (7,0%) 6(11,3%) 4,3% Að minnsta kosti einu sinni í viku 7 (12,3%) 7(13,2%) 0,9% Næstum því á hverjum degi 5 (8,8%) 12 (22,6%) 13,9% SAMTALS 57 (100,0%) 53 (100,0%) Tafla S: Fjöldi skipta sem þátttakendur hafa notað rafrænan póst fyrir námskeið, 1998-1999 Þátttakendur 1998 Þátttakendur 1999 % Breytingar Fjöldi. (%) Fjöldi. (%) 1998 til 1999 Alls ekki 9(15,5%) 4 (8,0%) -7,5% Eitt til tvö skipti 13 (22,4%) 2 (4,0%) -18,4% Nokkur skipti 16(27,6%) 11 (22,0%) -5,6% Að minnsta kosti einu sinni í mánuði 2 (3,4%) 4 (8,0%) 4,6% Að minnsta kosti einu sinni í viku 11 (19,0%) 12(24,0%) 5,0% Næstum því á hveijum degi 7(12,1%) 17(34,0%) 21,9% SAMTALS 58 (100,0%) 50 (100,0%) 52 Bókasafnið 24. árg. 2000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.