Á vakt fyrir Ísland - jun. 2018, Side 7

Á vakt fyrir Ísland - jun. 2018, Side 7
mánuðum 2016. Þeir fengu kynningu á Landssambandinu og hvaða þjón- usta er í boði fyrir félagsmenn. Tryggja þarf að LSS fari með samningsumboð fyrir þessa nýju félagsmenn okkar og hlökkum við til samstarfsins. Tryggingasjóður fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn Í bókun fjögur í kjarasamningi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna frá 2016 er kveðið á um stofnun sérstaks trygg- ingasjóðs fyrir slökkviliðs- og sjúkra- flutningamenn. Stjórn LSS skipaði þá Steinþór Darra Þorsteinsson (SHS) og Magnús Smára Smárason (SA) sem fulltrúa LSS í stjórn tryggingasjóðs. Engin fordæmi eru á Íslandi fyrir svona tryggingasjóði og var verkefnið nokkuð flókið. Hægt er að fullyrða að tryggingabætur úr þessum sérstaka tryggingasjóði eru mun betri en gengur og gerist og ættu því slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn ekki að þurfa að hafa fjárhagslegar áhyggjur ofan á það vandasama verkefni að ná fullri heilsu og starfsþreki ef svo færi að þeir yrðu fyrir slysi við störf sín. Þann fyrsta júní 2017 tók vátrygging tryggingasjóðs gildi og gildir hún þegar slökkviliðs- og sjúkraflutninga- menn sem eiga aðild að kjarasamn- ingnum við sveitarfélögin eru að störfum. Menntun og þjálfun Okkar mikilvægasta fjöregg, mennt- un og þjálfun, er okkur öllum afar hugleikið. Þar hefur LSS reynt eftir fremsta megni að sækja fram og styðja við framþróun. Þar er þó enn langt í land svo vel megi við una. Það er þó gleðilegt að námsefni sjúkraflutningamanna hefur verið uppfært eftir að hafa legið í leynum, afskipt og óuppfært árum saman. Þá er það einstakt gleðiefni að nú nýverið litu langþráðir vinnuferlar vegna áverka á hrygg og háls dags- ins ljós og eins var kynnt til sög- unnar áverkahliðarlega. Yfirlæknir utanspítalaþjónustu hefur hafið vinnu við endurnýjun vinnuferla og verður það að teljast einstakt gleðiefni. Formi þessara leiðbein- inga verður breytt úr „vinnuferlum“ yfir í „verklagsleiðbeiningar“. „Á vakt fyrir Ísland“ LSS stóð fyrir metnaðarfullri náms- stefnu „Á vakt fyrir Ísland“ á haust- mánuðum 2017. Meðal annars voru til umfjöllunar aukin og markviss viðbrögð fyrstu viðbragðsaðila við ódæðisverkum og hryðjuverkum. Þessi hætta er því miður mjög raunveruleg, hörmungaratburðir hafa gerst í nágrannalöndum okkar og við getum ekki lokað augunum fyrir því að slík ódæðisverk verði framin hér á landi. Við eigum að taka forystu og hefja formlega þessa umræðu. #MeToo Umræða um kynbundna og kynferðis- lega áreitni hefur verið hávær í þjóðfélaginu undanfarið og hefur hún farið fram undir myllumerkinu #MeToo. Fara þarf í fyrirbyggjandi aðgerðir og forvarnir gegn kyn- bundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og öðru ofbeldi á vinnustöðum. Helstu ábyrgðaraðilar þar eru stjórn- endur, leiðtogar, mannauðsstjórar og aðrir sem stjórna vinnustöðum. Jafnframt þarf áherslan að vera sú að útrýma skuli hvers kyns misrétti og valdaójafnvægi. Stjórnendur og leiðtogar eru hvattir til að axla ábyrgð samkvæmt lögum, vera virkir í umræðunni og grípa til sýnilegra aðgerða á sínum vinnustöðum. Nauðsynlegt er að framkvæma for- varnaráætlun með ferlum, einnig er fræðsla og umræða á vinnustaðn- um mikilvæg. Vinnustaðir þurfa að hafa skýra ferla sem starfsfólk tekur þátt í að móta. Í ferlum verði að finna upplýsingar um hvað megi og hvað megi ekki, bæði í vinnu og utan hennar s.s. á vinnustaðatengdum viðburðum. Þar á líka að vera skýrt hvernig eðlileg samskipti á vinnu- markaði eigi að vera, hvort heldur sem er orðbundin, táknræn eða líkamleg. Þegar unnið er að því að skilgreina ferla þarf einnig að skýra vel hver sé farvegur fyrir einstaklinga og hvernig ferill mála sem upp koma eigi að vera. Slíkar upplýsingar þurfa alltaf að vera aðgengilegar starfsfólki hvort sem atvik hafi átt sér stað eða ekki. Þar þarf t.d. að fjalla um hvert eigi að leita og hvernig fylgja eigi málum eftir. Enn fremur þarf að tilgreina hvaða afleiðingar áreitni eða ofbeldi hafi fyrir gerendur, s.s. áminning eða brottrekstur. Vinnustaðir verða að setja sér siða- reglur sem starfsmenn taka þátt í að gera og verði hluti af ráðningarsamn- ingi. Þannig má tryggja að allir starfs- menn séu meðvitaðir um efni þeirra og þýðingu. Allir þurfa að grípa inn í og stöðva niðrandi ummæli, hegðun og áreitni hvort sem hún beinist gegn þeim sjálfum eða öðrum. Meðvirkni með gerendum á ekki að líðast. Starfsmannabreytingar Stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Valdimar Leó Friðriksson komust að samkomu- lagi um starfslok Valdimars fyrir LSS. Valdimar lét af störfum þann 26. júní 2017. Valdimar Leó gegndi starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2007 og á því tímabili hafa orðið mikilvægar breytingar á kjörum og starfsumhverfi félagsmanna LSS og helgast það m.a. af ötulli vinnu Valdimars Leós fyrir hönd félagsmanna. Staða framkvæmdastjóra var auglýst laus til umsóknar og sóttu allnokkrir einstaklingar af báðum kynjum um stöðuna. Ákveðið var af stjórn LSS að ganga til samninga við Hermann Sigurðsson. Hermann var áður fram- kvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta. Hermann hóf störf 15. desem- ber 2017. Hermann er með BSc í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskól- anum á Bifröst. Hermann starfaði í átta ár sem framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta. Bráðatæknanám og utanspítalaþjónusta Lengi hefur verið talað um að koma á laggirnar hérlendis bráðatæknanámi á háskólastigi. Er það sérstaklega lagt til og lögð á það rík áhersla í tveim skýrslum sem unnar hafa verið um utanspítalaþjónustu á Íslandi. Umræðan hefur verið í gangi í áratug en ekki erum við þó komin þangað enn. Þó er vert að geta þess að algjör sprengja hefur átt sér stað í fjölgun bráðatæknamenntaðra sjúkraflutninga- manna á Íslandi. Ástæða þess er að fleiri gluggar til að öðlast þá menntun hafa opnast, m.a. með möguleika á að stunda bóklegan hluta námsins í fjarnámi. Klínískur hluti námsins er þó sóttur erlendis, t.d. til Bandaríkjanna. Það er mikilvægt því erfitt er að sjá fyrir sér að hægt sé að veita sjúkraflutninga- mönnum svo dýrmæta og ómetanlega reynslu hér heima! Á vakt fyrir Ísland 7 Framhald á næstu síðu

x

Á vakt fyrir Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Á vakt fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/1850

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.