Á vakt fyrir Ísland - Jun 2018, Page 9
Á vakt fyrir Ísland 9
Dagana 15. og 16. mars sl. stóð
Landssamband slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna fyrir alþjóð-
legri ráðstefnu um krabbamein
meðal slökkviliðsmanna.
Ráðstefnan var sú fjórða í röðinni en
sú síðasta var haldin í Bergen í Noregi
árið 2014. Tilefni ráðstefnunnar eru þær
fjölmörgu rannsóknir sem liggja fyrir um
háa tíðni krabbameins meðal slökkviliðs-
manna og mættu um 30 erlendir gestir
á ráðstefnuna frá 13 löndum. Meðal
fyrirlesara voru Dr. Jefferey Burgess frá
háskólanum í Arizona og Juha Laitinen
læknir hjá finnska vinnueftirlitinu en
þeir hafa báðir unnið að fjölda rannsókna
sem sýna fram á mikla inntöku slökkvi-
liðsmanna á eiturefnum við slökkvi-
störf. Einnig héldu Alex Forrest slökkvi-
liðsmaður og lögfræðingur frá Kanada
og Peter Marshall slökkviliðsmaður
frá Ástralíu fyrirlestra en báðir hafa
barist fyrir því í sínum löndum að fá
krabbamein meðal slökkviliðsmanna
viðurkennd sem atvinnutengda
sjúkdóma. Í báðum þessum löndum,
ásamt Bandaríkjunum, er löggjöf sem
skilgreinir 15 tegundir krabbameins sem
atvinnutengdan sjúkdóm hjá slökkvi-
liðsmönnum. Tommy Verminck frá
fyrirtækinu Decontex í Belgíu kynnti
byltingarkenndar vélar til að hreinsa
eiturefni úr fatnaði slökkviliðsmanna
eftir eld með því að nota tækni frá
NASA. Ken Block slökkviliðsstjóri
í Edmonton í Kanada fjallaði um
kostnaðarhliðina á löggjöfinni sem
sett var í Kanada, um að krabbamein
væru skilgreind sem starfstengdur
sjúkdómur. Í máli hans kom fram að
kostnaðurinn væri ekki nema 1,3%
af rekstrarkostnaði slökkviliðsins.
Fulltrúar frá systursamtökum okkar
á Norðurlöndunum kynntu þá vinnu
sem er í gangi en hjá þeim eins og
okkur hafa slökkviliðsmenn lagt fram
mikla vinnu og peninga til að stuðla
að forvörnum sem gætu minnkað líkur
á krabbameini meðal þeirra. Oddur
Þórarinsson læknir og lögfræðingur
fjallaði um þá löggjöf sem er til staðar á
Íslandi varðandi starfstengda sjúkdóma
og mikilvægi þess að setja löggjöf þar
sem erfitt geti reynst fyrir slökkviliðs-
menn að benda á ákveðið útkall sem
orsakavald. Að lokum fjallaði Helgi
Guðbergsson læknir og sérfræðingur í
starfstengdum sjúkdómum um árlegar
læknisskoðanir slökkviliðsmanna og
hvort hægt væri að bæta þær með tilliti
til þess að slökkviliðsmenn væru útsett-
ari fyrir krabbameini.
Á fimmtudeginum voru um 100 manns
við upphaf ráðstefnunnar en sem fyrr
segir þá voru um 30 erlendir gestir á
ráðstefnunni. Á föstudeginum hefði
mæting mátt vera betri enda var sá
dagur skipulagður með forvarnir að
leiðarljósi, eitthvað sem við þurfum
allir að fræðast um og taka þátt í. Allir
fyrirlestrar voru teknir upp og verða
margir þeirra birtir á facebooksíðu
krabbameinsnefndarinnar „Slökkviliðs-
menn gegn krabbameini“.
Skipulagning á þessari ráðstefnu tók
um 15 mánuði enda mörgum verkefnum
sem þarf að sinna fyrir svona ráðstefnu
og því eru meðlimir krabbameinsnefnd-
arinnar afar þakklátir þeim einstakling-
um sem lögðu á sig vinnu til þess að
gera þetta mögulegt. Sérstakar þakkir
fá Hannes Páll Guðmundsson, Finnur
Hilmarsson, Jónas Árnason, Jón
Pétursson, Björgvin Jónsson, Lárus
Steindór Björnsson, Sverrir Árnason,
Sverrir Björn Björnsson og Guðrún
Hilmarsdóttir fyrir sitt framlag. Einn-
ig þeir sem aðstoðuðu við að kynna
ráðstefnuna; Ingvar Sigurðsson, Stefán
Pétursson, Kristján Gränz, Lárus Krist-
inn Guðmundsson og Ásgeir Þórisson.
Einnig ber að þakka þeim sem styrktu
ráðstefnuna fjárhagslega enda mikill
kostnaður sem fylgir svona verkefni:
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Slökkvi-
lið Akureyrar, Brunavarnir Árnessýslu,
Brunavarnir Suðurnesja, Mannvirkja-
stofnun, Viking, Fulltingi, Altis, Silkiprent,
Sérmerkt, Útkall.is, JPV útgáfa, Ísmar,
Landsstjarnan og Vinnuföt.
Í framhaldi af ráðstefnunni gaf krabba-
meinsnefnd LSS, í samstarfi við
SHS, út fræðsluefni til þess að stuðla
að bættum vinnubrögðum varðandi
mengaðan búnað eftir eldútköll. Um er
að ræða tvær týpur af veggspjöldum
ásamt fræðslubæklingi en þessu efni
verður dreift á allar slökkviliðsstöðvar
á landinu.
Bjarni Ingimarsson
Borgar Valgeirsson
Ráðstefna um krabbamein meðal
slökkviliðsmanna
Fyrirlesarar og skipuleggjendur.