Á vakt fyrir Ísland - jún. 2018, Blaðsíða 11

Á vakt fyrir Ísland - jún. 2018, Blaðsíða 11
Á vakt fyrir Ísland 11 Á ársþingi LSS 2018 varð langþráð og afar þörf fjölgun í fagdeild slökkvi- liðsmanna. Í fagdeildinni eru nú sex auk formanns, Steinþórs Darra Þor teinssonar SHS sem tók við sem for- maður fagdeildarinnar. Stjórn LSS hefur sett starfsreglur fyrir þá sem sitja í stjórn LSS hverju sinni. Reglur þessar eru settar á grundvelli laga félagsins sem aðgengilegar eru á heimasíðu félagsins www.lsos.is. Þessar nýju reglur auka vægi fagdeild- anna svo um munar. Í stækkaðri og öflugri fagdeild slökkviliðsmanna eru þess vegna mörg verkefni sem bíða mótunar og úrvinnslu. Við stöndum frammi fyrir nýrri tækni, nýjum hættum og þess vegna nýjum áskorunum m.a. vegna farartækja framtíðarinnar. Mikil þörf er á að málefni Brunamála- skólans séu tekin föstum tökum. Ótækt er að skólinn sé í þeirri stöðu sem hann er í dag. Samþætting fjarnáms og staðarnáms þarf að bæta verulega. Hvort það er fjárskortur eða fámenni sem veldur þessu ástandi getur deildin ekki svarað. Það ætti að vera öllum ljóst að núverandi ástand er óviðunandi. Afar eðlilegt er að myndaður verði nýr vinnuhópur sem endurskoðar nám slökkviliðsmanna frá grunni. Þar kæmu að verkefninu ungir slökkviliðsmenn með eldri og reyndari félaga sér við hlið og taki þátt í framtíðarmótun stétt- arinnar. Vinnuhópur sem skipaður er fulltrúum frá ráðuneyti, Mannvirkja- stofnun, slökkviliðsstjórum og LSS þarf að koma með virkum hætti að mótun og endurnýjun námsefnis Brunamálaskólans. Verið er að skoða þrekpróf með tilliti til aldurs og líkamsbeitingar. Búið er að óska álits fagaðila á núverandi þrekprófi. Þeir eru sammála um að sumt í núverandi þrekprófi sé beinlínis hættulegt bakheilsu þeirra sem þreyta prófið. Breytingar séu nauðsynlegar og að aldurstengja þurfi þrekprófið. Til- lögur að nýju þrekprófi sem tekur tillit til þessara ábendinga eru í mótun. Undirbúningur vegna hugsanlegrar þjálfunaraðstöðu fyrir slysavarnar- og björgunaraðila er í fullum gangi. Vonandi fær Einar Örn Jónsson hag- stæðan byr til þess að sigla verkefninu farsællega í höfn. Undanfarin ár hafa orðið nokkur banaslys sem rekja má til gasleka. Slys af þessum völdum þurfa að heyra sögunni til. Fagdeild 2016-2018 hugðist stofna vinnuhóp með helstu aðilum sem tengjast gasnotkun á Íslandi. Hópnum var ætlað að koma með hugmyndir að hugsanlegum úrbótum tengdum forvörnum, eftirliti og notkun gass hér á landi. Niðurstöður vinnuhópsins átti síðan að nýta til þess að útbúa forvarnarefni, t.d. hollráð um notkun gass á heimilum. Vinna vegna þessa verkefnis hefur því miður tafist. Á vegum fagdeildar slökkviliðsmanna voru haldnir tveir glæsilegir og afar metnaðarfullir viðburðir, „Slökkvi- liðsmenn gegn krabbameini“ og „Á vakt fyrir Ísland 2017“ sem haldin var í Reykjavík og á Selfossi 13. og 14. október. Fyrirlesarar voru bæði norskir sérfræðingar og íslenskir. Fjölbreytt dagskrá tengd málefnum slökkviliða var í Reykjavík þann 13. október. Seinni dagurinn í Reykjavík var tengd- ur málefnum utanspítalaþjónustu. Á Selfossi sama dag stóðu Brunavarnir Árnessýslu í samvinnu við fagdeild slökkviliðsmanna fyrir afar glæsilegri dagskrá tengdum slökkviliðum og öðrum viðbragðsaðilum. Lokahóf sem hlotið hefur nafnið Frívaktin var svo haldið í slökkvistöðinni Tunguhálsi. Þar var glaðst yfir vel heppnaðri námsste- fnu. Sérstaklega ánægjuleg var mikil þátttaka félaga frá smærri slökkvil- iðunum. Góður vinur og félagi sagði að námsstefna sem þessi væri 80% það að hitta félagana. Öll vinna tengd „Á vakt fyrir Ísland 2017“ var unnin í sjálfboðavinnu. Viðburðurinn stóð undir sér fjárhagslega. Stjórn LSS hefur samþykkt að „Á vakt fyrir Ísland 2019“ verði haldin á Icelandair hóteli Reyk- javík Natura 18. og 19. október, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Stefnt er að því að halda „Á vakt fyrir Ísland“ annað hvert ár framvegis og að námsstefnan verði sjálfbær. „Á vakt fyrir Ísland“ er komin til að vera. Fag- deild slökkviliðsmanna þakkar hjart- anlega þeim sem lögðu hönd á plóginn, bæði afbragðs fyrirlesurum og þeim sem styrktu námsstefnuna á annan hátt Margar spurningar vöknuðu um stöðu okkar og hlutverk. Þær verðum við að ræða og leita svara við. Einn af mörgum áhugaverðum fyrirlestrum á „Á vakt fyrir Ísland 2017“ fjallaði um hugsanleg aukin og markviss viðbrögð fyrstu viðbragðsaðila sem koma á vett- vang þar sem ódæðisverk eða hryðju- verk eiga sér stað, svokallað PLIVO. Einnig var á Selfossi haldin mjög áhrifa- mikil hryðjuverkaæfing með aðkomu þeirra viðbragðsaðila sem málefninu tengjast. Hryðjuverkaógn er því miður afar raunveruleg. Við erum sýnileg í hinum stóra heimi. Hörmungaratburðir hafa gerst í nágrannalöndum okkar, við þurfum ekki að leita langt. Við verðum að taka þessa umræðu. Getum við endalaust verið stikkfrí og beðið eftir lögreglu á vettvang á meðan illvirkjar athafna sig? Erum við tilbúin til þess að axla meiri ábyrgð? Ef svo er, hvar stönd- um við lagalega ef eitthvað alvarlegt hendir okkur? Öflugt samstarf margra aðila þarf til. Fagdeild hefur átt óform- legar viðræður um málefnið. Viðmæl- endur hafa allir sem einn verið afar jákvæðir. Við eigum að taka forystu og hefja formlega umræðu um þessa vá sem hryðjuverk eru. Borgar Valgeirsson og Bjarni Ingimars- son, SHS, hafa stýrt átakinu um slökkvi- liðsmenn og krabbamein. Í mars 2018 stóðu þeir félagar fyrir afar vel heppnaðri ráðstefnu um krabbamein í slökkviliðs- mönnum. Fremstu sérfræðingar, erlendir sem innlendir, héldu afar fróðleg erindi um krabbamein í slökkviliðsmönnum. Árangur af vinnu þeirra Borgars og Bjarna er mikill. Slökkviliðsmenn eru miklu betur upplýstir um þær hættur sem leynast í afurðum eldsvoða. Mikil hugarfarsbreyting hefur einnig orðið, t.d. er skítugasti reykkafarinn ekki lengur flottasti reykkafarinn. Búið er að gefa út og senda á allar slökkvistöðvar landsins leiðbeiningar sem stuðlað geta að bættri heilsu okkar félaga og vinnuferla sem hægt er að nýta sér til þess að verja sig betur fyrir þeim vágesti sem krabbamein er. Hafið þökk fyrir drengir. Fagdeild slökkviliðsmanna LSS starfsárin 2016-2018 Fagráðið ásamt Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands. Framhald á næstu síðu

x

Á vakt fyrir Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Á vakt fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/1850

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.