Á vakt fyrir Ísland - jun. 2018, Síða 17

Á vakt fyrir Ísland - jun. 2018, Síða 17
Á vakt fyrir Ísland 17 Útköll og þróun þeirra Þetta byrjaði rólega og gerðu menn sér grein fyrir að það myndi taka þó nokkurn tíma að slípa verkefnið til, gera sjúkraflutningamenn og neyðarlínu meðvituð um hópinn og átta sig á hvenær væri þörf á honum og eins hversu langa leið hópurinn gæti farið svo hann myndi nýtast sem skyldi á vettvangi, áður en aðrir viðbragðs-aðilar koma á vettvang. Með árunum hefur útköllum fjölgað frá því að vera 1-2 á ári til að byrja með í um 70 árið 2017. Tekið skal fram að vettvangshjálparhópurinn er eingöngu kallaður út í bráðatilvikum og sinnir ekki sjúkraflutningum í byggð heldur er einungis um að ræða fyrsta viðbragð á vettvangi. Jafnframt að koma sjúkrafutningamönnum að sjúklingi þar sem sjúkrabílar komast ekki vegna færðar eða aðstæðna. Í uppsveitum Árnessýslu er mikill mannfjöldi yfir sumartímann, t.d. um verslunarmannahelgar en þá hefur komið sér vel að hópurinn hefur verið á bakvakt. Vettvangshjálparhópurinn hefur styrkt bráðaþjónustu í uppsveit- um Árnessýslu og reynst sjúkraflutn- ingum mikilvægur liðstyrkur. Búnaður Miklu hefur verið bætt í skyndihjálpar- búnaðinn hjá Björgunarfélaginu Ey- vindi á síðustu árum og hefur félagið ýmist keypt búnaðinn sjálft eða fengið hann að gjöf frá einstaklingum og félagasamtökum. Stærstu búnaðarkaup félagsins voru vorið 2017 þegar ráðist var í að safna fyrir sjálfvirkum hjartahnoðara. Söfnunin gekk framar vonum og gat félagið keypt hnoðarann í júní það sama ár. Nokkuð sambærilegur búnaður er í öllum bílum sem björgunarfélagið á og nýtist hann í aðgerðum. Reynt er að hafa töskur og súrefnisbúnað svipað uppsettan en þó er meira af sértækum búnaði í Vindi 1 sem nýtist frekar til stuðnings og við flutning á sjúklingum. Þegar sjúklingi er komið í sjúkrabíl með búnað frá björgunarfé- laginu, er samskonar búnaður og no- taður var tekinn úr sjúkrabílnum áður en hann fer eða við fyrsta tækifæri. Þannig er vettvangshjálparhópurinn með allt klárt fyrir næsta útkall. Vindur 3 Þegar björgunarsveit fer í svona verkefni þá þarf hún eðlilega að vera í stöðugri sjálfsskoðun og meta hlutina út frá verkefnum og reynslu sem safnast upp. Sumarið 2012 var það metið svo að það þyrfti að skoða heppilegri bíl til að takast á við útköll vettvangshópsins. Þegar þarf að bregðast við slysum eða al- varlegum veikindum þá skiptir tíminn öllu og ekki forsvaranlegt að fara í forgangsakstur á mikið breyttum jeppum. Varð það úr að Björgunarfélagið Eyvindur keypti fjórhjóladrifinn Subaru sem í var settur allur helsti fjarskipta- búnaður, leiðsögutæki, búnaður fyrir forgangsakstur og sjúkrabúnaður. Reynslan hefur verið mjög góð og mikið öryggi að fara í útköll á sérút- búnum fólksbíl í forgangsakstur, jepparnir koma svo á eftir með meiri búnað og mannskap ef með þarf. Breytt staða, áhugi, fagmennska Engum sem starfað hefur lengi með Björgunarfélaginu Eyvindi hefði órað fyrir hversu mikið það myndi breyta starfinu að fara úr hefðbundnum björgunarsveitarverk- efnum í að vinna með atvinnumönn- um í mjög aðkallandi og krefjandi útköllum. Björgunar-sveitarfólk sem eingöngu hafði verið með skyndihjálp 1-2 fór í gegnum WFR og EMT-B nám og breytir það eðlilega mikið stöðunni hjá björgunarfélaginu. Haldnar eru æfingar með nýliðum og unglinga- deildinni og kveikir það áhuga hjá þeim yngri og setja margir sér stefnu og markmið að taka þátt í þessu verkefni. Björgunarfélagið Eyvindur er að störfum í hinum ýmsu verkefnum en getur einnig farið í skyndihjálparverkefni af fag- mennsku og öryggi. Öllum má vera ljóst að verkefni sem þetta styrkir ekki bara samfélagið og eykur öryggi íbúa þess heldur styrkir þetta í leiðinni innra starf björgunar- félagsins og ímynd þess. af hverjum lítra í fyrsta sinn sem þú dælir af hverjum lítra í fyrsta sinn sem þú dælir af hverjum lítra á afmælisdaginn þinn af hverjum lítra á afmælisdaginn þinn Allt að 11 kr. af hverjum lítra með afsláttarþrepum Orkunnar Opnaðu á lægra eldsneytisverð! Með því að nota Orkulykilinn tryggir þú þér lægra eldsneytisverð í hvert skipti sem þú dælir. Það er einfalt og fljótlegt að sækja um og virkja lykilinn. Nældu þér í Orkulykil og byrjaðu að spara. Sæktu um Orkulykil á Orkan.is

x

Á vakt fyrir Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Á vakt fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/1850

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.