Á vakt fyrir Ísland - jún. 2018, Blaðsíða 26
Á vakt fyrir Ísland26
Sveitastrákur menntar sig
Arnar Páll Gíslason heiti ég, sveita-
strákur úr Vestur Skaftafellssýslu. Ég
útskrifaðist sem vélfræðingur frá
Fjöltækniskóla Íslands, lauk grunn-
náminu við Sjúkraflutningaskólann
í lok árs 2010, fékk í kjölfarið stöðu
sem sjúkraflutningamaður hjá HSU
og hef verið starfandi á Selfossi
síðan. Í kjölfarið gekk ég til liðs við
Brunavarnir Árnessýslu og var þar
hlutastarfandi samhliða utanspítala-
þjónustunni frá árinu 2011 til 2016
þegar ég flutti til Noregs. Framhalds-
námið við Sjúkraflutningaskólann
tók ég eins fljótt og auðið var ásamt
öllum þeim viðbótarnámskeiðum
sem ég gat þefað uppi. Vorið 2014
fór ég að leita í kringum mig eftir
námsleiðum í faginu og hnaut þá um
auglýsingu frá háskólanum í Osló og
Akershus þar sem verið var að bjóða
upp á alveg nýtt nám á Bachelor stigi
í Paramedicine. Mér leist vel á námið
og sótti um en umsókn mín endaði
ekki meðal þeirra 30 efstu það árið.
Ég fór heim og sleikti sárin, tók
nokkra kúrsa á heilbrigðisvísindasviði
við Háskólann á Akureyri, bjó til
Arnarsson hinn þriðja og lagði upp
leikplan fyrir útrás haustið 2016.
Ég sótti um í þremur skólum; einum
í Pittsburgh, einum í Boston og svo
aftur þessum í Osló. Að þessu sinni
komust allar þrjár umsóknirnar í gegn
og ég valdi að stefna í austur.
Nám í utanspítalaþjónustu í Noregi
Námið í Paramedicine á BS stigi
hófst fyrst haustið 2014 við Háskólann
í Osló og Akershus, sem í dag ber hið
hámenningarlega nafn Oslo Metropol-
itan University, eða OsloMet eins og
hann nefnist í daglegu tali. Fyrsta
árið voru teknir inn 30 nemendur en
vegna mikils áhuga fólks á náminu
fengu 60 inngöngu í skólann haustið
2016 þegar að ég byrjaði. Til marks
um vinsældir námsins þá bárust
1.600 umsóknir í námið þetta haust
en það hefur verið eitt það vinsælasta
við skólann allar götur síðan. Mikið
hefur gerst á þessum stutta tíma og
er þriðji háskólinn í Noregi að fara að
bjóða upp á sambærilegt nám núna
strax í haust. Auk OsloMet er námið í
boði við Nord Universitet og Univer-
sitet i Tromsø. Fram til ársins 2014
var sjúkraflutninganám í Noregi
tveggja ára nám á framhaldsskólastigi
og svo var hægt að taka Paramedic
til viðbótar eftir nokkrum leiðum. Ein
þeirra er 60 ECTS eininga háskóla-
nám sem tekið er á tveimur árum.
Stór og þverfaglegur hópur fólks kom
að undirbúningi þessa nýja náms
og segir hið norska landssamband
sjúkraflutningamanna að námið sé
annar af tveimur stórsigrum í sögu
sambandsins. Hinn stórsigurinn var
þegar þeim tókst að koma tveggja
ára sjúkraflutninganáminu á og leggja
niður námskeiðsfyrirkomulag eins og
við þekkjum hér heima. Þetta var
árið 1994.
Námið
Í grófum dráttum má segja að námið
sé byggt upp á þremur meginþáttum,
þ.e. bóklegt nám, verklegt nám innan
veggja skólans og svo starfsnám
innan og utan spítala. Fyrsta árið er
að mestu leyti bóklegt: Líffærafræði,
lífeðlisfræði, siðfræði og samskipti,
sjúkdómafræði, lyfjafræði og lyfjaút-
reikningur. Á öðru ári er kafað dýpra
í sjúkdóma og áverkafræði, jafnt
bóklega sem verklega. Einn áfanginn
á öðru árinu tekur fyrir verklag og
vinnu utan spítala, frá líkamsbeit-
ingu við böruvinnu undir leiðsögn
sjúkraþjálfara, upp í að stjórna
hópslysavettvangi af stærstu gerð.
Paramedicine í Noregi