Á vakt fyrir Ísland - Jun 2018, Page 30
30 Á vakt fyrir Ísland
Þær aðstæður koma upp reglulega að við-
bragðsaðilar þurfi að komast inn um hurðir
í flýti og skiptir þá máli að notuð séu rétt
vinnubrögð. Skilvirk og hröð vinnubrögð
eru því grundvöllur þess að draga úr töfum
á aðgerðum þegar mikið liggur við, svo
sem í lífs- eða verðmætabjörgun.
Brunavarnir Árnessýslu höfðu um nokkurt
skeið undirbúið námskeið þar sem hægt
var að æfa slík vinnubrögð verklega og
úr varð að Brunavarnir Árnessýslu (BÁ)
stóðu fyrir námskeiði fyrir leiðbeinendur í
innbrotstækni 22. - 23. mars síðastliðinn.
Á námskeiðið komu 24 einstaklingar frá
BÁ og slökkviliðum víða um land, sérsveit
ríkislögreglustjóra og sjúkraflutningum
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
BÁ fékk til sín mjög hæfa leiðbeinendur frá
slökkviliðinu í Bergen í Noregi til að halda
tveggja daga námskeið fyrir verðandi leið-
beinendur. Þetta voru þeir Ronny Stoløy
og Hugo Hansen sem báðir hafa yfir 18
ára reynslu sem slökkviliðsmenn auk þess
sem þeir hafa áralanga reynslu sem leið-
beinendur fyrir slökkviliðsmenn, lögreglu og
starfsmenn olíuborðpalla.
Forsaga þessarar tækni sem kennd var
er sú að slökkviliðsmenn í Svíþjóð fóru að
skoða innbrotstækni í gegnum öryggis-
hurðir fyrir um það bil 18 árum og hafa
verið að þróa hana síðan. Í húsbyggingum
nútímans eru svokallaðar fjögurra punkta
hurðir og álíka sterkbyggðar hurðir eru
sífellt algengari.
Aðferðin virkar vel á allar venjulegar hurðir
og stálhurðir hvort sem þær opnast inn eða
út. Slökkviliðin og lögreglan í Ósló og Bergen
eru alfarið búin að taka upp þessar vinnu-
aðferðir og fleiri slökkvilið í Noregi fylgja á
eftir. Þegar menn eru búnir að ná tækninni
vel fara þeir inn um fjögurra punkta stálhurð á
innan við tveimur mínútum.
BÁ fjárfestu í svokölluðum eilífðarhurðum
og glugga sem voru sett í sérsmíðað
færanlegt gámafleti. BÁ festu einnig kaup á
sérstökum hurðarrofsbúnaði sem er gerður
fyrir slíkar aðgerðir. Slökkviliðin í Noregi og
Svíþjóð hafa mörg notast við tvö 900mm
kúbein sem búið er að breyta lítillega fyrir
þessi verkefni og einnig litla sleggju.
Leiðbeinenda-
námskeið í
innbrotstækni
Hópur leiðbeinenda í innbrotstækni ásamt kennurum og stjórnendum BÁ.
Fjölnotahurðin reyndist vel þrátt fyrir mikið álag.
Farið var yfir öryggisatriði.
Allir fengu skjal til staðfestingar að
hafa lokið leiðbeinenda námskeiði
í innbrotstækni eins og greinarritari
fær hér afhent.Kennararnir sýna innbrotstæknina.