Á vakt fyrir Ísland - jún. 2018, Blaðsíða 15
Á vakt fyrir Ísland 15
Góð vinna hefur þegar verið unnin
en óvænt bakslag kom í málið sem
yfirlæknir okkar hefur þegar gert grein
fyrir. Samkvæmt upplýsingum úr
stjórnkerfinu er verkefnið fjármagnað.
Boltinn er hjá Landlækni og verið er að
leita leiða til þess að smíða kerfi hér-
lendis sem áætlað er að ljúki innan árs.
Verkefnið er gríðarlega brýnt og ljóst
að myndi bæta utanumhald og inngrip
í meðferð sjúklinga, sem og efla öryggi
sjúklinga og bæta utanspítalaþjónustu.
Með nýju verklagi frá yfirlækni um
meðferð á sjúklingum með grun um
áverka á hálsi og hrygg er áralöngu
strögli um bætta vinnuferla lokið. Þess-
ar nýju leiðbeiningar eru byggðar á
vandaðri rannsóknarvinnu og líklega
þær mikilvægustu fyrir okkur að styð-
jast við í starfi.
Mikilvægt mál sem nefna má eru
vettvangsliðar. Afstaða LSS í því máli
er skýr. LSS styður þéttingu nets vett-
vangsliða sem lið í að efla og tryggja
örugga utanspítalaþjónustu. LSS
styður ekki að lögð séu niður launuð
störf félagsmanna þar sem hægt er að
reka og manna sjúkraflutningaeiningar.
LSS geldur sérstakan varhug við að
einingar vettvangsliða séu hugsaðar
sem sparnaðarleið til að leggja niður
og fækka sjúkrabílum. LSS lítur á
slökkvilið landsins sem fyrsta valkost
þegar kemur að hlutverki vettvangsliða.
Unnið er að reglugerðarbreytingu þar
sem umhverfi vettvangsliða verður
skilgreint á viðunandi hátt.
Verkefnin sem bíða okkar eru ærin.
Pólitískur vilji til að efla bráðaþjónustu
utanspítala á Íslandi virðist vera fyrir
hendi. Við erum því í dauðafæri núna
að færa upp á næsta stig þá mikilvægu
heilbrigðis- og öryggisþjónustu sem
við veitum. Til þess þurfum við góða
menntun og þjálfun. Góða bíla og
búnað. Rekstraraðilar sjúkraflutninga
þurfa bætt samningsumhverfi þar
sem hægt verður að gera ráð fyrir
framþróun og gæðamálum. Við þurfum
sérstaka miðstöð utanspítalaþjónustu
sem hefur með umsýslu málaflokksins
að gera, rannsóknar- og vísindavinnu,
faglegan stuðning og læknisfræðilega
ábyrgð. Til að svo geti orðið þarf að
efla embætti yfirlæknis utanspítala-
þjónustu. Vonandi verður sjúkraflug
bætt enn frekar og að sjúkraþyrla
með sérhæfðri áhöfn gjörgæslu (með
bráðatækni og lækni), svokallað HEMS
(helicopter emergency medical service)
verði að veruleika.
Fleiri atriði mætti örugglega nefna og
alsendis óvíst hvort sum þeirra klárist
endanlega í síbreytilegu umhverfi. Fag-
deildin hefur reynt eftir fremsta megni
að beita sér fyrir úrbótum og framförum
í öllum þessum málaflokkum.
Að lokum er rétt að geta þess að allt
samstarf við yfirlækni utanspítalaþjón-
ustu, fulltrúa rekstraraðila sjúkraflutn-
inga og skólastjóra Sjúkraflutninga-
skólans hefur verið með miklum
ágætum, byggt á trausti og virðingu.
Ég þakka af heilum hug traust til að
leiða fagdeildina undanfarin fjögur ár
og gott samstarf. Ég óska stjórn LSS,
stjórn fagdeildar sjúkraflutninga-
manna og stéttinni allri heilla í þeim
verkefnum og áskorunum sem bíða.
Njáll Pálsson,
fráfarandi formaður fagdeildar
sjúkraflutningamanna LSS.
Starfsárið 2017 var með miklum blóma eins og síðustu ár hjá
félagsmönnum LSS. Mikill fjöldi félagsmanna sótti námskeið
eða nám hérlendis og erlendis á síðasta ári. Útborgaðir
styrkir á árinu voru yfir tíu milljónir með föstum kostnaði en
þar innifalið er bókhaldskostnaður og kostnaður til skrifstofu
vegna reksturs sjóðsins.
Sjóðinn skipa í dag Eyþór Rúnar Þórarinsson formaður,
frá LSS, Guðjón S. Guðjónsson frá LSS og Ellisif Tinna
Víðisdóttir og Þorsteinn Karlsson frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga.
Í byrjun árs lá það meginverkefni fyrir að endurskipuleggja
sjóðinn þ.e.a.s. úthlutunarreglur, vinnureglur, form umsókna
og gegnsæi bókhalds. Við þessa vinnu hafa nefndarmenn
átt gott samstarf við Samband íslenskra sveitarfélaga og
stjórn LSS. Með þetta að vopni og þá meginreglu að allir fái
styrk sem eiga rétt á því en að sama skapi lækka styrk-
upphæð til tiltekinna verkefna þá teljum við að komið sé gott
jafnvægi á sjóðinn fyrir starfsárið 2018.
Meðal verkefna sem sjóðurinn styrkti á síðasta ári er para-
medicnám og Ems today í Bandaríkjunum og Kaupmanna-
höfn. Slökkviliðsmenn fóru á námsstefnur eins og ARRF
í Bandaríkjunum, námskeið í Manchester á Englandi og
nokkrir kynntu sér bruna í jarðgöngum í Noregi. Minni nám-
skeið nutu einnig vinsælda félagsmanna, s.s. námskeið
hjá Bráðaskólanum. Félagsmenn eru almennt duglegir að
sækja sér viðbótarmenntun og umsóknum frá þeim um
styrkveitingu berast víðs vegar af landinu.
Þess má geta að starfsmenntunarsjóðurinn kom að ráðstefn-
unni „Á vakt fyrir Ísland” sem var mjög metnaðarfull og
glæsileg í alla staði. Með aðkomu sjóðsins og fjölda góðra
styrkja frá fyrirtækjum var hægt að tryggja frían aðgang
félagsmanna.
Með góðri kveðju,
fyrir hönd starfsmenntunarsjóðs,
Eyþór Rúnar Þórarinsson formaður
Starfsmenntasjóður
Úthlutunarreglur sjóðsins má finna á heimasíðu Landssambandsins
www.lsos.is en umsóknir eru afgreiddar á fundum sjóðsins fjórum
sinnum á ári.