Á vakt fyrir Ísland - jun. 2018, Síða 16

Á vakt fyrir Ísland - jun. 2018, Síða 16
Á vakt fyrir Ísland16 Björgunarfélagið Eyvindur á Flúðum hefur síðan um mitt ár 2011 verið með starfandi vettvangshjálparhóp með þann tilgang að bregðast við alvarlegum veikindum eða slysum í uppsveitum Árnessýslu í samstarfi við sjúkraflutninga Heilbrigðisstofn- unar Suðurlands (HSU) á Selfossi og Lögregluna í Árnessýslu. Upphafið Árið 2003 var farið í að rýna starf- semi Björgunarfélagsins Eyvindar og endurskipulagningu á tækjaflota félagsins. Hlutirnir voru metnir svo að Ford Econoline bifreið björgunarfél- agsins gæti nýst sem sjúkraflutnings- tæki í ófærð og á fjöllum í samstarfi við starfandi sjúkraflutninga í sýslunni. Var bílnum breytt í samræmi við þær hugmyndir og sett í hann súrefni og festingar fyrir sjúkrabörur, sambærilegar og eru í sjúkrabílum. Þetta var hannað þannig að auðvelt væri að taka úr honum þennan búnað og breyta honum í fólksflutningatæki á sem skemmstum tíma. Menntun Það var ekki fyrr en sjúkraflutningar fluttust frá lögreglunni í Árnessýslu til HSU að talið var raunhæft að fara að vinna að þeirri hugmynd að stofna vettvangshjálparhóp á Flúðum. Hópurinn myndi vinna í nánu samstarfi við sjúkraflutninga HSU og var sett krafa um að í hópnum væru að lág- marki þrír menntaðir í vettvangshjálp í óbyggðum (Wilderness First Responder). Árið 2008 fór Björgunarfélagið Eyvindur að mennta fólk með það að mark- miði að koma hópnum af stað. Árið 2011 varð það svo að veruleika að vettvangshjálparhópurinn var stofnaður en þá um vorið voru í honum sex menntaðir einstaklingar í vettvangshjálp í óbyggðum (WFR). Í hópinn bættust svo hjúkrunarfræð- ingur, sjúkraliði og bílstjórar sem eru starfandi í björgunarfélaginu, alls 12 manns. Vettvangshjálparhópurinn er duglegur að ná sér í meiri þekkingu með því að sækja námskeið, fyrirlestra, halda æfingar og einnig koma annað slagið sjúkraflutningamenn og fara yfir ýmislegt sem er talið að þurfi að skerpa á. Á þeim tíma sem liðinn er síðan hópurinn var stofnaður hefur bæst í þekkingarbanka hópsins og nú hafa fjórir úr vettvangshjálpar- hópnum lokið EMT-B námi og tveir af þeim eru starfandi sjúkraflutninga- menn hjá HSU á Selfossi. Samningur Í júní 2011 var undirritað samkomulag vegna fyrstu viðbragða í alvarlegum slysum eða veikindum. Samkomu- lagið er undirritað af Björgunar- félaginu Eyvindi Flúðum, Heil- brigðisstofnun Suðurlands (HSU), Lögreglunni í Árnessýslu og Árnes- ingadeild Rauða Kross Íslands. Í samkomulaginu er farið yfir hlut- verk og boðunarverkferla ásamt því hvernig fjarskipti eru höfð í aðgerð- um. Vettvangshjálparhópurinn er undir læknisfræðilegri umsjón HSU í þeim tilfellum sem sjúkraflutningar eða lögregla boðar hópinn út. Það á við hvort sem er vegna slysa, veikinda eða til aðstoðar lögreglu á vettvangi. Hópurinn er á boðunarskrá undir sjúkraflutningum HSU sem einfaldar útkall hjá neyðarlínu en ekki er notast við hefðbundið útkallsferli björgunarsveita. Við undirritun samkomulagsins út- vegaði Árnesingadeild Rauða Kross Íslands einstaklingstöskur með sjúkrabúnaði fyrir meðlimi hópsins. Það hefur reynst afar vel að hafa slíkan búnað við hendina og geta farið beint á vettvang á einkabíl og hafið grunnvinnu þangað til annar búnaður kemur á vettvang. Sjúkrabílavaktir Í samkomulaginu er þess getið að þeir sem eru í vettvanghjálpar- hópnum hafi möguleika á að taka sjúkrabílavaktir og hefur hver og einn kost á að vera allt að 24 tíma á ári á sjúkrabílavakt. Það er gert til að hópurinn geti farið yfir búnað og uppbyggingu á sjúkrabílunum, kynnist sjúkraflutningamönnum og taki þátt í útköllum með þeim. Er þetta án efa mjög mikilvægt fyrir vettvangshjálparhópinn og klárlega lærdómsríkt og gerir hópinn betur búinn undir að takast á við verkefnin sem hann fer í. Björgunarfélagið Eyvindur

x

Á vakt fyrir Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Á vakt fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/1850

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.