Á vakt fyrir Ísland - jun. 2018, Síða 18
18 Á vakt fyrir Ísland
Upphafsárin og saga
Upphaf að stofnun slökkviliðs í Vík
má rekja til þess þegar fyrsta vatns-
veitan sem gat fætt brunahana var
lögð um þorpið seint á fjórða áratug
síðustu aldar. Á vatnsveituna voru
settir nokkrir brunahanar og keyptur
handvagn með brunaslöngum.
Fyrstu slökkviliðsstjórar voru Ólafur
Jónsson, verslunarmaður hjá
Halldórsverslun og Óskar Jónsson
skrifstofumaður hjá KS í Vík. Jón
Valmundsson húsasmíðameistari
tók svo við slökkviliðinu skömmu
eftir 1950 og stjórnaði því til ársins
1972. Á árunum milli 1950 - 60 er
svo keypt fyrsta vélknúna dælan, 850
m/l Climax dæla á kerru og byggt
hús yfir hana og önnur tæki slökkvi-
liðsins vestast í Víkurþorpi. Guðni
Gestsson og Guðgeir Guðmunds-
son, verkstæðismenn í Vík, sáu um
viðhald og keyrslu á þessari dælu.
Þórir N. Kjartansson var skipaður
slökkviliðsstjóri 1972. Þá um haustið
er keyptur einn af Bedford slökkvibíl-
unum sem þá var verið að kaupa
til landsins frá Englandi. Það var
gríðarleg framför í brunavörnum,
sérstaklega fyrir landsbyggðina.
Þá var Brunamálastofnun nýlega
stofnsett og var farin að standa fyrir
námskeiðum fyrir slökkviliðsmenn vítt
og breitt af landinu. Þórir fór á eitt af
fyrstu námskeiðunum og skömmu
síðar Ísleifur Guðmannsson sem var
varaslökkviliðsstjóri. Fljótlega var svo
bætt í tækjabúnaðinn tveimur settum
af reykköfunartækjum og millifroðu-
tækjum sem nýttust sérstaklega vel
í heybrunum sem þá voru nokkuð
algengir. Þessi búnaður rúmaðist
allur í húsinu sem að framan er getið.
Þórir stjórnaði slökkviliðinu til ársins
1982. Næstu árin voru eftirtaldir
menn slökkviliðsstjórar: Sigurður
Hjálmarsson, Bergur Örn Eyjólfs og
Einar Hjörleifur Ólafsson.
Á þessum tíma sem Einar Hjörleifur
er slökkviliðsstjóri er keyptur Chevro-
let picup til að auka viðbragðsflýti
liðsins og á hann sett lausa dælan
úr Bedfordinum. Þar sem Bedford
slökkvibíll liðsins var kominn nokkuð
til ára sinna var ákveðið að fara í þá
vinnu að finna notaðan slökkvibíl til
að uppfæra tækjakost liðsins. Fór
það svo að þann 21. október 1999
fara Einar Hörleifur slökkviliðsstjóri
og Guðmundur Pétur Guðgeirsson,
sem þá var í sveitarstjórn, til Þýska-
lands ásamt Guðmundi Bergssyni
frá Brunamálastofnun og ganga frá
kaupum á nýjum bíl fyrir slökkviliðið
í Vík. Fyrir valinu varð Bens 1225
4x4 árgerð 1984 sem var í notkun
allt fram að upphafi árs 2017.
Þá var gamla stökkvistöðin orðin of lítil
og var hún flutt í núverandi slökkvi-
stöð sem staðsett er í Suður-Vík.
Þá var einnig komið upp tankbíl þar
sem sumstaðar í sveitinni var erfitt
með vatnsöflun. Guðmundur Pétur
Guðgeirsson tekur svo við sem
slökkviliðsstjóri í framhaldi af því.
Slökkvilið 2017
Slökkviliðsstjóri slökkviliðs Mýrdals-
hrepps er í dag Ívar Páll Bjartmars-
son og hefur verið síðan 2007.
Ágúst Freyr Bjartmarsson er vara-
slökkviliðsstjóri. Nítján einstak-
lingar hafa í dag lokið grunnnámi
slökkviliðsmanna, þar af eru sjö
með reykköfunarréttindi. Fimm
hafa lokið stjórnendanámskeiði
hlutastarfandi slökkviliða og tveir hafa
lokið eldvarnareftirlitsnámskeiðum
Mannvirkjastofnunnar. Nú nýverið fóru
auk þess tveir liðsmenn á námskeið í
notkun hitamyndavéla sem á eftir að
breyta mjög miklu við reykkafanir og
þjálfun reykköfunar.
Bílaflotinn
- Ford F350 tækjabíll, árgerð 2007.
Í bílnum eru klippur og glennur af Lukas
streamliner gerð. Bíllinn er jafnframt
hugsaður til að ferja menn á brunavett-
vang og nýtast sem stjórnunaraðstaða.
- Man 19.403 FAK gerð með 400 hest-
afla vél, árgerð 1999. Framhjóladrif
með sídrifi, háu og lágu drifi, læs-
ingum og rafmagnsgírskiptingu.
Mannskapshús er einfalt eða fyrir tvo
menn. Tankur er á bílum sem tekur 6000
l af vatni. Bifreiðin er með Travel Power
4,5 kW rafal við vél, loftdrifið ljósamastur
3 x 500W 4,6 m., rafdrifið 6 tonna Warn
spil, uppbyggt tvískipt pústkerfi o.fl. Sett
var á bílinn bedford dæla.
Slökkvilið Mýrdalshrepps
Climax dæla.
Gamla slökkvistöðin í Vík.
Hluti slökkviliðsins árið 2015.
Ford F350.
Man 19.403.
Hluti reykkafara á æfingu.