Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Qupperneq 5

Heima er bezt - 01.10.2002, Qupperneq 5
Guðjón Baldvinsson Eg hef alltaf viljað horfa fram á veginn Rætt við Gróu Jóhönnu Salvarsdóttur frá Reyðarfirði í Isafjarðardjúpi Ég er fœdd á Bjarnarstöð- um, í Reykjarfjarðarhreppi í Norður-Isajjarðarsýslu, 7. júní 1922, en þar bjuggu foreldrar mínir, Salvar Ólafsson búfrœðingur, fœddur 4. júlí 1888, og Ragnheiður Hákonardótt- ir, húsfreyja og sauma- kona,fœdd 16. ágúst, 1901. Pabbi var Djúpverji, fœddur í Lágadal í Naut- eyrarhreppi, en mantma var fœdd á Reykhólum í Reykhólahreppi í Barða- strandarsýslu. Eg átti 5 systkini, af þeim lifa 4, en ein lítil telpa dó 2ja mánaða gömul. Þau eru: Hákon, fæddur 14/6 1923, Arnheið- ur heitin 5/5 1927, Amdís 14/5 1929, öll fædd á Bjarnarstöðum. Sigríður fædd 17/5 1925 og Ólafia 12/8 1931. Þær fæddust í Reykjarfirði. Pabbi var einyrki, en það var tvíbýli á Bjamarstöðum. Þama var stundaður hefðbundinn búskapur, með kýr kind- ur og hesta. Bjamarstaðir em næstinnsti bær í Gróa Jóhanna Salvarsdóttir, 27 ára. ísafirði, það eru a.m.k. 1,5 km yfir fjörðinn að Múla. Laugaból í Ísaíjarð- ardjúpi, þar sem Halla Eyjólfsdóttir skáldkona og húsffeyja átti heima, var beint á móti Bjarnarstöðum og Múli, sem þótti gott býli líka, en þar bjuggu Sturlaugur Einarsson og Guðrún Kristjánsdóttir. Maður byijaði strax að vinna sem krakki, hlaupa fyrir kindur t.d., og smala með ofan af fjalli. Það var ekki setið yfir heima hjá okkur á Bjamar- stöðum en það var aftur á móti gert í Reykjarfirði, þar sem við bjuggum síðar. Þar var síðast fært ffá 1946. Á Bjamarstöðum var bara hefð- bundið lítið heimili, foreldrar mínir og systkini og einn ársmaður eða vinnu- maður. Skemmtanir og gott mannlíf Reykjarfjarðarhrcppur var nokkuð fjölmenn sveit og þar var gott mannlíf, því þar var leikfélag, ungmennafélag, búnaðarfélag, lestrarfélag, og bara mjög menningarlegt. Ég man eftir því að fólk var að koma heim og æfa leikrit, en það var jafftan gert heima á bæjunum. Þá vom einnig haldin þorrablót og ýmsar fleiri skemmtanir sem þá tíðkuðust. Ungmennafélagið Vísir var stofnað um 1920, og ég gekk í það 12 ára gömul, árið 1934. Reglan var þá sú að maður gekk í félagið og var óvirkur fé- lagi í 2 ár á meðan maður var að læra á félagsstarfssemina. Svo þegar búið var að ferma mann þá var maður orðinn fullgildur félagsmaður og mátti vinna að og taka þátt í þeim samkomum sem ffam fóru og vera í nefftdum. Ungmennafélagshúsið er svo byggt 1925 og stendur enn, þó það sé reynd- ar farið að láta á sjá. Áður höfðu skemmtanir bara farið fram í heima- húsum, t.d. í Reykjarfirði, en húsið þar er byggt 1907. Á þessum tíma tóku allir þátt í sam- komuhaldinu. Þá þekktist ekki nokkurt kynslóðabil og allir skemmtu sér við Heima er bezt 421

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.