Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Síða 6

Heima er bezt - 01.10.2002, Síða 6
það sama. Giftir jaínt sem ógiftir, kon- ur og karlar, ungir jafnt sem aldnir. Og þá var dansað við grammófón, harmónikkan kom ekki fyrr en síðar. Jón Jakobsson var oft „plötusnúður- inn“ eins og það myndi vera kallað í dag, það er að hann stjómaði grammófóninum, en það vom samt fleiri sem áttu slíkt áhald, handsnúið að sjálfsögðu. Og það var fastur siður að ef einhvers staðar var komið saman þá var tekið lagið, líka þó að ekki væri alltaf hljóðfæri við hendina. Svo var eitt sérstakt í heimasveit minni, en það var það sem kallað var skógartúrar. Þá var safnast saman og farið á hestum inn í ísafjörð, Heydal, Kelduskóg og Gljúfraskóg. Þetta var yfirleitt á vegum ungmennafélagsins. Þama var að sjálfsögðu farið eftir reið- götum. Reið þá hver á eftir öðmm, og þegar riðið var hægt, var alltaf tekið lagið á hestunum. Tóku þá allir í lest- inni undir. Það er sérstaklega gaman að hugsa til þessara stunda. Það voru sungin öll möguleg íslensk lög, svo sem eins og Ætti ég hörpu, Þú komst í hlaðið á hvítum hesti, og fleiri þess háttar lög. Svo var hestunum gjarnan hleypt og þeir reyndir á gmndunum. Helstu skemmtanir þessa tíma vom t.d. svokallað leitarball, sem haldið var á haustin áður en leitir hófust, yfirleitt í kringum 18,- 20. september. Það var aldrei dansað í réttunum eða á réttar- daginn. Réttað var í ísafjarðarrétt, þar hittust merrn og röguðu fé sitt, síðan hirti hver sitt og fór heim til sín með það. Sérstakt jólaball tíðkaðist ekki en fólk heimsótti hvert annað heim á bæ- ina, spilaði og spjallaði og fór í leiki. Karlamir spiluðu t.d. lomber og böm- in eitthvað annað. Það mátti að sjálf- sögðu ekki spila á aðfangadag, en það mátti á jóladaginn eftir klukkan sex. Hin síðari ár hef ég haft þann sið að fara í miðnæturmessu á aðfangadag. Þá koma bömin mín til mín og við fömm saman í messuna, komum svo heim til mín og drekkum súkkulaði með tilheyrandi og spjöllum saman. Þetta finnst mér kjörið fyrirkomulag, þá heldur hver fjölskylda sín jól fyrir sig og síðan komum við saman fyrir miðnæturmessuna. Gróa og Halldór, árið 1974. Ég sakna alltaf um jólatíðina „gamla biskupsinS,“ sem ég kalla svo, Sigur- bjöms Einarssonar, hans jólamessur vom alltaf yndislegar. Fyrsti dansleikur í Reykjar- fjarðarhrcppi eftir áramót var svo þorrablótið. Eftir það var sundhátíðin, er haldin var eftir sundnámskeiðin í Reykjanesi, en ég segi nánar frá henni síðar. Síðan var eitt sumarball og þá var maður kominn hringinn, s.s. aftur að leitarballinu. Engjabúskapur Unglingsárin gengu annars mest út á vinnu, og þá var t.d. engjabúskapur. Ég var farin að liggja við og sofa í tjaldi upp á fjalli 7 ára gömul, því ég hafði þá strax þann starfa að fara með heybandslestina ofan af fjallinu og heim. Ég er ekki viss um að svo ung börn væm látin hafa slíkan starfa í dag. Engjarnar vom upp á Bjamar- staðafjallinu. Þama var legið við í allt að þijár vikur hvert sumar en að sjálf- sögðu alltaf farið heim um helgar. Ég fór með heybandslestina a.m.k. 2-3 ferðir á dag, og var heyið flutt niður jafnharðan, því það var ekki þurrkað uppi á fjallinu, heldur flutt heima að bæ og þurrkað á túninu þar. Og það var einmitt í einni þessara ferða þegar ég grenjaði. Það er mér mjög minnis- stætt. Ég var með fjóra hesta undir böggum, var alvön hestum því um leið og ég var farin að ganga þá var ég far- in að fara á hestbak. Sigurður Steins- son vinnumaður fylgdist með því úr slægjunni hvemig mér gekk ferðin, og Brúðkaupsmynd af Gróu og Halldóri, 13. ágúst 1943. 422 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.