Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.10.2002, Blaðsíða 11
Hann var nú ekkert á því að nota ein- hver nýmóðins salemi um borð, held- ur hafði koppinn sinn með sér, og fór svo með hann á morgnana út að borð- stokk og tæmdi þar. Honum fannst vissara að hafa það þarfaþing með sér á svona langri ferð. Fræg er sagan af því þegar fólk tók að kaupa sér skinnúlfalda í minjagripi, en við Halldór gerðum það nú ekki. Maður vissi það sem sveitamaður að þetta myndi úldna með tímanum og fannst mér það ósköp hugsunarlaust af fólkinu að kaupa þetta. Enda fór svo að henda þurfti því öllu. Við fórum frá Alexandríu til Kairó, jafnt um landbúnaðarhéruð sem eyði- merkur. Mér er minnisstæð gistingin á hótelinu í Kairó, því hótelið var allt meira og minna undirlagt bannsettum kakkalökkum. Við vorum í klefa á sama farrými og Þórbergur, en hann var óánægður með þann klefa sem hann fékk í ferðinni, svo sem kunnugt er. Reyndar var hon- um boðið að skipta og fá annan á hærra farrrými en hann vildi það ekki þegar til kom. Við vorum fjögur saman í klefa og það gekk bara ágætlega. Reyndar var karlkyns klefafélagi okkar, sem var úr þorpi sunnan með sjó, svolítið styrfinn og kvartaði talsvert, t.d. fannst honum hann aldrei fá nógu gott að borða um borð. Hann sat til borðs með okkur, en við sátum jafnan við sex rnanna borð, alltaf sami hópurinn. Hann settist eig- inlega aldrei að mat án þess að lýsa því yfir að þetta væri nú meira draslið sem borið væri fyrir okkur. Ég vildi mótmæla þessu og sagði við hann að þetta væri bara afbragðs matur. Hann sagði að ég kynni ekkert að meta þetta. Ég sagði þá að það væri náttúr- lega ekki að marka þá, sem ættaðir væru þarna sunnan með sjó, þeir væru ekki vanir neinu nema einhverju bölv- uðu trosi. Ég bara lét það hvína. Svo gengu sögur um það að allt vín hefði klárast um borð í skipinu, og fólkið hefði verið sauðdrukkið allan tímann. Ég hvorki reyki né drekk og var því allsgáð allan tímann, og ég get borið um það að verulegt vín sá varla á nokkrum manni alla ferðina. Ef ein- hver varð ofúrölvi, þá fór sá hinn sami Hákon Örn Halldórsson, Björn Halldórsson, Aðalheiður Auðunsdóttir, Ragnar Jóhann Halldórsson. Myndin er tekin árið 1988. Að störfum við símvörslu á Veðurstofu íslands árið 1990. venjulega bara í kojuna sína og lagði sig. Maður varð aldrei fyrir neinum óþægindum vegna drykkju um borð. Það var ekki fyrr en skömmu síðar, eftir heimkomuna úr þessari ferð, að við hjónin fórum að skemmta okkur á hótel Sögu, því við áttum 25 ára brúð- kaupsafmæli. Þá var hellt yfir mig víni úr fullu glasi. Slíkt gerðist aldrei um borð í Balticu. Greiðasala í Reykjanesi 17. febrúar 1944, fæðist okkur Hall- dóri svo annað bamið mitt, sem var hann Salvar minn. Við bjuggum þá, eins og fyrr segir á Reykjanesi. Ekki var nú alveg hlaupið að því að fá að- stoð ljósmóður, því það þurffi að sækja hana yfir Rcykjarijörð, Mjóa- fjörð að Látmm og fara yfir tvo hálsa. Sama þurfti að gera þegar ég átti Að- alheiði. Þetta gekk samt allt vel, mér gekk alltaf vel að eiga bömin mín. Síðan eignast ég Hákon 30. septem- ber 1945 og árið 1946, 14. ágúst fæð- ast okkur tvíburar, piltur og stúlka. Ég hafði verið svolítið lasin á þeirri með- göngu og þau dóu bæði. Stúlkan Heima er bezt 427

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.