Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Page 17

Heima er bezt - 01.10.2002, Page 17
vestur að Gemlufalli í Dýrafirði til að ná Esjunni á Þingeyri. Mér var falið að fylgja lækninum, þá líklega orðinn 12 ára, en hafði aldrei komið til Dýrafjarðar. Við rið- um eins greitt og klárarnir kornust, vélbátur var til reiðu á Gemlufalli og læknirinn náði Esjunni. Á bakaleið- inni, einn á ferð, fór ég svo að rifja upp allar draugasögurnar sem ég hafði heyrt og lesið um Sel-Möngu þegar ég fór framhjá Holtsseli og Möngufossi. Ólafur Guðmundsson ömmubróðir minn, sem hafði verið fjármaður hjá sr. Janusi presti í Holti, í beitarhús- um í selinu, sá eitt sinn tvær dyr opn- ar á fjárhúsinu samtímis er hann var að gefa á garðann. Rak hann tré- drurnb í aðrar sem þá lokuðust, en slapp út um hinar og komst við illan leik heim að Kirkjubóli í vetrarhríð- inni. Mér leið mjög ónotalega enda orðið rökkvað. Er ég var 14 ára keypti pabbi eitt sinn kú af Gumma skóa ömmubróð- ur mínum á Flateyri og ég var sendur ríðandi eftir henni ásamt 7 ára sum- arstrák úr Hafnarfirði, sem átti að reka á eftir henni. Blessuð kýrin var hægfara og ekki reitt yfir hið venju- lega skeiðisvað er þangað kom vegna aðfallsins, þar eð flaut kringum steininn Bónda. Mér hraus hugur við að lötra inn fyrir allan ljörðinn svo við lögðum i sjóinn við svokallað Garðsvað milli Veðrarár og Tanna- ness, sem ég hafði heyrt um en aldrei farið. Allt gekk vel í fyrstu en svo fór klárinn minn allt í einu á rokasund og flaut yfir hnakkinn. Mér dauðbrá og ég hrópaði til Kalla Hafnfirðings að snúa við sem hann gat ekki því hann, 7 ára, hafði nóg með að hanga á hestinum. Þessi djúpi og óvænti áll reyndist rúmlega 20 metra breiður en sundreiðin gekk vel og slysalaust og ég varð að halda aftur af kúnni, hún synti rnun hraðar en hestarnir. Við Kalli vorum báðir ósyndir. Fjárrekstur, sláturstörf, fjallganga og snjómokstur Eftirminnilegir voru Ijárrekstrar yfir Vöðin og út ströndina til Flat- eyrar á haustin. Faðir minn, Ólafur Hjálmarsson, var í mörg ár verkstjóri kaupfélagsins við sláturvinnuna og ég dvaldi stundum með honum þarna fáeina daga og ég minnist hraust- legra vinnubragða Hjalta Þorsteins- sonar og fleiri garpa við fláninguna með hnúum sínum. Margar konur og stúlkur unnu þarna líka og ég man að pabbi sagði mér brosandi að ein af þeim yngstu, sem mér fannst bráð- hugguleg, hefði varað hann við að vera að reka á eftir sér, „því hver veit nema ég verði tengdadóttir þín.“ Svo fór nú raunar ekki. Við feðgarnir gistum alltaf hjá heiðurshjónunum Guðrúnu og Hin- riki Guðmundssyni og áttum þar gott atlæti. Þó þröngt væri sannaðist hið fornkveðna að „þar sem er hjartarúm þar er og húsrými. Núna eftir að hin glæsilegu jarð- göng undir Breiðadalsheiðina eru komin til sögunnar, er gaman að minnast fyrstu ferðar minnar yfir heiðina norður til Ísaíjarðar í fylgd móður minnar Ragnheiðar Guð- mundsdóttur, er ég var 7 ára gamall, snemma vors. Brattur harðfenntur snjóskafl var sunnan sjálfrar heiðar- innar og ófær með öllu nema vegna spora, sem fylgdarmaður okkar Kristinn Guðmundsson frá Vífils- mýrum, er við hittum á leiðinni af tilviljun, hjó í skaflinn með handöxi sinni. Mamma bað guð oft hjálpar er henni fannst ég príla óvarlega eftir forustumanninum en hún rak lestina. Seinna sagði hún mér að 20 ferða- menn hefðu orðið úti á þessari heiði. Eg las eitt sinn í endurminningum Reina pósts að hann og Hjálmar afi minn hefðu endurbyggt vörður á há- heiðinni í sjálfboðavinnu, til að forða slysum, en menn höfðu stundum villst franr af hömrum. Milli 15 og 18 ára aldurs tók ég svo þátt í að handmoka hinn mikla skafl af veginum í heiðinni á vorin, fyrri hluta júnímánaðar, því jafnan var lagt kapp á að opna veginn fyrir 17. júní. Snjóstálið neðan vegarins sem við þurftum að kasta snjónum yfir gat verið á aðra mannhæð. Er ég hugsa til æskustöðvanna leit- ar hugurinn oft til frænda míns kenn- arans og skáldsins Guðmundar Inga, sem nú er nýlátinn á 96. aldursári. Hann sendi mér, eins og svo mörgum öðrum, fermingarljóð, ritað með óvenjulega glæsilegri rithönd sinni. Eftir að hafa fjallað um útþrána var niðurlagserindið svona Vittu samt að heimahaginn hjarta mannsins fastast dregur, grundin kringum gamla bœinn grípur sál hans einhvern daginn, óskaland og auðnuvegur. Af fjölmörgum ágætum ljóðum hans kemur mér einna oftast í hug eftirfarandi: Milli draums og dáða döggv’uð kulda ogyl, liggur leiðin þráða lífsins gcefu til. Mosvallahorn og lokaorð Þrisvar á ævinni, síðast 74ra ára gamall, hefi ég rölt frá bænum Kirkjubóli um Kálfabana upp á Mosvallahornið fyrir ofan gamla bæ- inn minn og svipast um yfir okkar kæra Önundarfjörð. Þaðan er margs að minnst, þaðan finnst mér hann fegurstur. Einnig hefi ég flogið yfir hann í björtu veðri og góðu skyggni og dáðst að honum úr lofti. Af tilviljun varð flugumferðar- stjórn, sem ég nam í Reykjavík, í Bandaríkjunum og Englandi og kennsla í bóklegum greinum flug- manna, ævistarf mitt um 50 ára skeið, en það er önnur saga. Ég var nýorðinn 19 ára er ég yfir- gaf fjörðinn minn og fluttist til Reykjavíkur en minningarnar frá ánægjulegum uppvaxtarárum gleym- ast ekki og af og til finn ég hjá mér þörf til að skreppa vestur. Þá heim- sæki ég gjarnan Mosvelli, Gjarðir, Breiðhillu, Torflrolt, Miðhlíðarhvolf, Mjóanes, Naustanes og Litlubót, þar sem bátanaustið var, til að fnna ör- yggi Mosvallahornsins fyrir ofan gamla túnið mitt og upplifa aftur yndisleik sólarlagsins í fjarðarminn- inu. Heima er bezt 433

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.