Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Síða 18

Heima er bezt - 01.10.2002, Síða 18
wtmmmemm örlagasaga að austan Hún sá þá hverfa í diúpið Arið 1831 hófbúskap á Bragðavöllum í Hamarsdal, maður að nafni Magnús Jónsson. Varð hann þjóð- sagnapersóna og jafnan kallaður Magnús ríki. Kona hans hét Helga Jónsdóttir. Þessi hjón voru bœði dug- leg og hagsýn og á þess tíma mœlikvarða urðu þau vel efnuð. Magnús átti oft margtfé og þénaði vel á því er vel áraði en svo varð fjárfellir í harðindum, því ekki var heytugga til, treyst á útbeitina. En Magnús keypti jarðir hingað og þangað eða part íjörðum og fékk þcer á góðu verði er bændur á viðkomandi jörð- um gáfust upp á búskap vegna fátœktar. au Magnús og Helga eignuð- ust nokkur börn. Sonur þeirra hét Einar. Hann hóf búskap á Hamri, svo Hamarsseli. Magnús átti einhvern part í þessum jörðum. Svo átti hann jörðina Geithella. Þangað flutti Einar frá Hamarsseli og bjó þar lengi síðan þó ekki einn því inn á Geithellnadal voru þrjú kotbýli. Þau hétu Virkishólasel, Kambsel og Þor- móshvammar. í Virkishólaseli bjuggu ung hjón. Þau hétu Finnur Þorgrímsson,prests- sonur frá Kolfreyjustað og Halldóra Antoníusdóttir systir Björns á Flugu- stöðum. Þau eignuðust dóttur er Þórunn hét. Finnur dó eftir stutta sambúð með Halldóru. Hún giftist aftur ekkju manni, Jóhanni Malmkv- izt á Djúpavogi og einguðust þau þrjú börn: Finn, Björgu og Guðfinnu. Guðfinna giftist 18 ára gömul Einari Magnússyni bónda Geithellum. Þau eignuðust fimm börn. Þau voru: Sigurður, varð úti að vorlagi á fjallinu milli Melrakkaness og Bragðavalla í Hamarsdal, Helga, Vil- borg, Þormóður og Kristín, hún gift- ist norður í Hrísey. Eins og áður getur eignuðust þau Finnur og Halldóra eina dóttur, Þór- unni. Hún giftist Jóni Sigurðssyni og bjuggu þau á Melrakkanesi, þar var Egill Guðmundsson frá Þvottá: tvíbýli. Þórunn dó ung frá mörgum börnum. Meðal barna þeirra var drengur er skírður var Jóhann. Flann ólst upp á Melrakkanesi hjá ekkjunni Sigríði Eyjólfsdóttur, en hún var eklcja eftir Sigurð Markússon er fórst í Hamarsfirði 1858. Árið 1898 var ungur kennari í Álftafirði, Tryggvi Daníelsson, ætt- aður norðan úr Skagafirði. Þetta vor andaðist Guðfinna húsfreyja á Geit- hellum og ákvað þá Einar að hætta búskap þar þetta vor. Þau Tryggvi og Vilborg dóttir Einars, voru trúlofuð og vildi Einar að þau tækju við bú- skap á hálfri jörðinni á móti Þormóði syni sínum og tóku þau vel í það. Þetta vor voru þau trúlofuð Helga dóttir Einars og Jóhann á Melrakka- nesi. Sigríður fóstra Jóhanns bauð þeim Helgu að búa þar og hún yrði í horninu hjá þeim með sína sauði. Jó- hann vildi taka því boði en Helga þvertók fyrir að fara þangað. Engin jörð var þá laus í sveitinni og brugðu þau Helga og Jóhann á það ráð að 434 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.