Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Síða 22

Heima er bezt - 01.10.2002, Síða 22
Eins og mörgum er kunnugt var Kolviðarhóll í þjóðbraut við gamla Hellisheiðarveginn á leiðinni frá Reykjavík austur yfir Fjall, enda víðkunnur greiðasölu- staður um langa hríð og ekki hvað síst á fyrri helmingi 20. aldar, í tíð þeirra Sigurðar Daníelssonar og Val- gerðar Þórðardóttur, Sigurðar og Val- gerðar á Hólnum, eins og þau voru gjarnan kölluð. Þau hjón tóku við rekstri staðarins árið 1906 og létu síðar reisa stórt og myndarlegt gisti- hús í lok þriðja áratugarins (1929), sem mörgum er minnisstætt sökum fallegs útlits, þriggja bursta bygg- ingu, sem Guðjón Samúelsson mun hafa verið höfundur að. Um það bil hálfum áratug eftir byggingu Kolviðarhólshússins var Skíðaskálinn í Hveradölum reistur þar skammt frá og einnig varð bíl- vegur yfir Hellisheiði stórbættur. Við það tók gestum á Kolviðarhóli að fækka svo að upp úr miðri síðustu öld gekk rekstur hússins það illa að hann lagðist af með öllu og loks var húsið rifið á síðari helmingi 20. ald- arinnar (1977). Eins og að líkum lætur var mikil reisn yfir Kolviðarhóli og greiðasöl- unni þar á fyrri helmingi 20. aldar- innar, allt þangað til Sigurður lést árið 1935. Hér verður stiklað á stóru í sögu Ferðafólk við hellukofann, skammt austan Hellisskarðs, sem talinn er hlaðinn úr Biskupsvörðunni um 1830 og getið er um í greininni. Húsakynni á Kolviðarhóli laust eftir að Sigurður Daníelsson keypti staðinn á fyrsta áratugi 20. aldarinnar. Paradísin á fjallinu, var þessi torfbœr stundum kallaður, sem byggður var af hjónunum Oskari Magnússyni og Blómeyju Stefánsdóttur, í hæðunum að baki Skíðaskálans. Þau munu hafa jlutt þangað í kringum 1973 og búið þar af og til í áratug. Þau höfðu geitur og fleiri húsdýr og nutu einnig góós af nábýlinu við Skíðaskálann. Þarna var ekkert rafmagn en vatnsból er innan girðingarinnar. Takið eftir hraðbrautinni á næsta leiti. 438 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.