Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.10.2002, Qupperneq 25
í byrjun 20. aldarinnar, frá árabilinu 1900 til 1920. Kolviðarhóll til vinstri. Póstvagnalest á leið austuryfir „Fjall“ sem þar höfðu viðdvöl, má nefna Friðrik VIII. með fríðu föruneyti sum- arið 1907. Þangað kom íslandsvinur- inn Williard Fiske, árið 1870, í fylgd séra Matthíasar Jochumssonar. Þar gisti danski höfuðsmaðurinn Daníel Bruun oft á ferðum sínum. Þangað kom svissneski ferðalangurinn Her- mann Stoll, sem ferðaðist hér um landið í þrjú sumur og gekk m.a. á jökla. Þangað kom hinn tigni heims- borgari, baróninn á Hvítárvöllum, er hann ætlaði að hagnýta ölkelduvatnið í Henglinum. Þjóðverjinn Carl Kiichler. Enski sauðakaupmaðurinn Coghill, sem kom til Islands árum saman og reiddi í töskum sínum enska gullið, er hann keypti sauðina fyrir af bændunum og varð þeim flest- um kær af viðskiptunum. Oft gisti Coghill á Kolviðarhóli í ferðum sín- um. Hann varð íslenskum bændum minnisstæður fyrir tvennt, þ.e. enska gullið hans, sem glitraði í endurminn- ingunni, og það hversu vel hann bölv- aði á íslensku. Sjálfsagt mætti nefna fleiri útlend- inga er komu að Kolviðarhóli en þetta verður að nægja. Sigurður féll frá haustið 1935, eins og fyrr er getið, og þrem árum síðar seldi Valgerður íþróttafélagi Reykja- víkur Kolviðarhól, en bjó þar áfram um hríð með vinkonu sinni í litlu húsi, uns þær fluttust til Hveragerðis. Jarðneskar leifar þeirra hjóna, ásamt Davíð, syni Sigurðar, hvíla nú í vígðri grafhvelfingu á Hólnum. Með- an enginn gestgjafi var kominn á Kol- viðarhól, gat jafnlöng leið og Hellis- heiðarvegur, orðið háskalegur um há- vetur í hríðarbyljum. Enda voru þar íyrrum tíð slys og mannskaðar, því var þessi fjallvegur varðaður að til- skipan stjórnvalda, árið 1776. Síðar komu sæluhúsin til sögunnar. Eitt elsta þeirra var kofinn við Húsmúl- ann, stutt frá gamla veginum, nokkuð fyrir neðan Kolviðarhól. í lýsingu Ölfushrepps árið 1703, er getið um sæluhús á norðanverðum Hvannavöll- um. Hér mun vera átt við kofann und- ir Húsmúlanum. Arið 1793 er Sveinn Pálsson þama á ferð og getur um að þarna sé lítill kofi, hlaðinn úr hraungrýti með torf- þaki, ætlaður mönnum sem ferðast þarna um að vetrarlagi og kallast sæluhús. Þá segir Sveinn einnig að margir hafi dáið þar, því oft hafi þeir ekki fúndið kofann fyrr en þeir voru örmagna af hungri og kulda. Sæluhús þetta stóð skammt fyrir framan Hús- múlann við tjörn eina, sem nefnd er Draugatjörn. Þessi húskofi var eina vistarveran milli byggða á þessari leið til ársins 1844 að talið er, en þá var annað hús reist upp á Kolviðarhóli. Arið 1958 var grafið í þessar rústir og munu einhverjar minjar hafa fund- ist og ennþá má sjá móta fyrir tóftar- broti kofans. Annars er ein elsta heimild um vörðuhleðslu á Hellis- heiði allmiklu eldri en ffá 1776 eða um Biskupsvörðuna svonefndu frá ár- inu 1703, sem talin var ævafornt mannvirki, fúll sex fet á hæð. Hún var krosshlaðin, þannig að fjögur vinkil- hom mynduðust við hana. Var það gert til þess að menn og jafnvel hestar gætu haft skjól við hana í nær öllum áttum. Varðan stóð ffam á 19. öld (1830), en þá mun hafa verið farið að hrynja úr henni og þegar Þórður Er- lendsson hlóð Hellukofann sem ennþá stendur (2002), var gijótið úr vörð- unni notað í hann. Það fer ekki hjá því að á jafn fjöl- förnum ferðaleiðum þar sem válegir atburðir hafa gerst, eins og á leiðinni „austur yfir Fjall,“ hafi orðið til við- burðaríkar sögur, hetjusögur, reim- leikasögur eða þjóðsögur, eins og áður er getið, og festst hafa í minni fólks. Hér fer á eftir frásögn, sem tengist Húsmúlakofanum. Grímur Þorleifsson er maður nefnd- ur á Nesjavöllum í Grafhingi. Eitt haust fær hann boð frá Miðdal í Mos- fellssveit, að tófa væri þar lögst á fé og hann beðinn að koma og ráða nið- urlögum hennar, en Grímur var af- burða refaskytta. Bregður hann við og fer að Miðdal og vinnur tvær tófúr, sem grönduðu fénu. A heimleiðinni tafðist hann við sauðfé, svo að hann sér að hann kemst Heima er bezt 441

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.