Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Side 32

Heima er bezt - 01.10.2002, Side 32
FYRSTA ÁRTAL SÖGUNNAR Egyptaland er elsta menningarríki veraldar. Þar komust menn fyrst af steinaldarstigi þegar þeir fundu upp að nota málma fyrir um það bil sex þúsund árum. Og fyrir meira en fimm þúsund árum höfðu þessi sömu Egyptar komið á hjá sér sameinuðu og skipulegu þjóðfélagi og meira að segja fundið upp ritlist í myndformi, svo að þá byrjaði það sem við nefnum sögulegan tíma. Margir álíta að það hafi verið sérstakar aðstæður í umhverfi og náttúrufari þessa lands sem urðu þess valdandi að Egyptar gerðust þannig braut- ryðjendur í þjóðfélagsmyndun, verkkunnáttu og menningu og þar með lærifeður annarra þjóða á fjölmörgum sviðum. En hið forna og stórmerka land faraóanna var ekki mikið að vöxtum í gamla daga fremur en nú, því að segja má að það sé aðeins 10-20 km breið spilda sín hvoru megin við Nílarfljót sem sé ræktanlegt og byggilegt land og að flatarmál þess sé rúmlega 30 þúsund ferkílómetrar eða sem svarar um þriðjungi af stærð Islands. En séu eyðimerkursvæðin talin með, þá er stærð landsins um ein milljón ferkílómetrar. Það er áin Níl sem öllu veldur í þessu landi, því að án frjógvandi vatns hennar væri þarna skrælnuð eyðimörk eins og gefur að líta bæði austan og vestan við gróðurræmuna beggja vegna fljótsins. Loftslag á þessum slóðum er ákaflega heitt og þurrt og þar rignir afar sjaldan, nema þá helst á óshólmum Nílar, þar sem rakir vindar blása af Miðjarðarhafi á vetrum. Egyptaland er gjöf Nílar sagði grískur spekingur í fornöld og hafði vissulega á réttu að standa. Löngu fyrir upphaf sögulegs tíma gróf þetta rnikla fljót fremur grunnan dal gegnum austasta hluta Saharaeyðimerkurinnar. Á vissum árstíma koma flóð í ána og vökvast þá dalbotninn og verður frjó- samur af framburði vatnsins. Við þessar að- stæður lærðist mönnum snemma að hag- nýta þetta lífgefandi vatn til áveitu og ræktunar og hafa stjórn á því með því að grafa skurði og hlaða garða víðs- vegar úti um sléttlendið. Þessar sérstöku aðstæður í Eg- yptalandi gerðu það beinlínis lífs- nauðsynlegt að menn störfuðu saman og fylgdu ákveðnum reglum um notkun vatnsins. Hin árvissu flóð þurrkuðu líka út öll landamerki og því áttu bændur engar sérstakar jarðir. Eftir að sjatnaði í ánni hverju sinni varð að skipta öllu akurlendi upp á nýtt. Af þeim sökum náðu menn snemma langt í reikningslistinni og þá einkum í landmæl- ingum og flatarmálsfræði. Sama máli gegndi líka um tímatalið sem Egyptar fundu upp fyrstir manna. Hjá þeim var brýn nauðsyn að vita hvenær flóðin byrjuðu og síðan haga verkum í ákveðinni tímaröð eftir stöðu árvatnsins hverju sinni. í almanaki Forn-Egypta voru tólf mánuðir í árinu og 30 dagar í hveijum þeirra. Það gerði samtals 360 daga, svo að bæta þurfti við fimm dögum í árslok sem notaðir voru sem hátíðis- og tyllidagar allrar þjóðarinnar. Nýársdagur var hjá þeim dagurinn sem flóðin byrjuðu í Níl og miðað- ist síðan tímatalið við ána og stöðu hennar. Hinn 19. júlí kom Sirius eða Sothis sem Egyptar nefndu svo, upp sam- tímis sólinni og um leið byrjaði stórflóð í Níl. Þar með hófst nýtt ár og stjarnan Sirius var sá guðdómur sem færði fólkinu nýtt líf eða öllu heldur hina endurteknu upprisu lífsins. En þetta egypska ár með sína 365 daga var raunar fjórðungi úr sólarhring of stutt, því að prest- arnir eða reiknimeistararnir höfðu ekki fundið upp hlaup- árið til að skjóta inn öðru hverju til leiðréttingar. Þetta ruglaði tímatalið svo mjög að skekkjan varð heilt ár á 448 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.