Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Side 35

Heima er bezt - 01.10.2002, Side 35
sjov, frá því á hverfisfundi í kjördæmi sínu, að þess yrði ekki langt að bíða, að Sovétmenn stæðu á tunglinu. Öldruð frú í salnum spurði þá: „En, félagi Krústsjov, hvenær komumst við til Vínarborgar?“ Þegar gyðingar voru að helga sér land í Israel eftir síðari heimsstyrjöld, voru flestir landnemamir menntamenn, en skortur var á verkamönnum og hand- verksmönnum. Erlendur fréttamaður kom þar að, sem byggingaverkamenn stóðu í röð og handlönguðu múrsteina. Einhver kliður barst frá hópnum, og þeg- ar maðurinn kom nær, heyrði hann sagt, þegar steinamir fóru manna á milli: „Bitte Herr Doktor,“... „Danke, Herr Doktor,“... „Bitte, Herr Doktor,“... Kaþólskur prestur spurði rabbía striðn- islega: „Hvenær ætlarðu, bróðir, að láta af fordómum þínum og eta svínakjöt?“ „í brúðkaupi þínu, bróðir,“ svaraði gyðingurinn. Fæmm okkur þá aðeins norðar og vestar, eða til Italíu, þar sem tveir menn, prestur og liðsforingi, em á ferð í sama lestarvagninum. Liðsforinginn hyggst skemmta sér á kostnað prestsins og spyr: „Vitið þér, séra minn, hvaða munur er á presti og asna?“ Presturinn neitar því, og svarið er: „Asninn ber sinn kross á bakinu, en presturinn á maganum.“ Þegar lestin hefur runnið ffamhjá nokkmm áfangastöðum, spyr presturinn: „Vitið þér, hver munurinn er á liðsfor- ingja og asna?“ „Það veit ég ekki,“ játar liðsforinginn. „Það veit ég ekki heldur,“ svarar prest- urinn. Höldum okkur enn við presta Rómar- kirkjunnar, að þessu sinni á írlandi, þar sem prestur sat í samkvæmi á móti ungri konu í mjög flegnum kjól, sem var með róðukross i festi um hálsinn. Hún tók eft- ir því að prestinum varð starsýnt á bringu hennar, og sagði: „Þér emð sjálfsagt að horfa á hinn krossfesta.“ Presturinn svaraði: „Eg verð að játa að mér varð litið til ræningjanna." Irar segja skáldsögur af sjálfum sér, sem minna sumar nokkuð á danskar molbúasögur eða íslenskar hafnfirðinga- sögur, og em ámóta fjarri vemleikanum. En Irar gera greinarmun á sögunum eftir uppmna manna. Flestar em sögumar frá Kerry, landbúnaðarhéraði sunnarlega í landinu. í sögunum eru Kerrybúar sagðir sveitafifl. Borgaraulamir em hins vegar yfirleitt frá Cork, og loks em íbúar vest- urstrandarinnar, einkum á Connemara, þtjótar og prakkarar. Hér skulu nefiid dæmi um þessar sög- ur: Bmðhjón frá Kerry vörðu hveiti- brauðsdögunum á hóteli í Dyflinni. Þetta var á fyrrihluta síðustu aldar, og parið átti ekki að venjast munaði eins og renn- andi vatni í pípum. Um brúðkaupsnótt- ina þyrsti brúðina, og brúðguminn sótti handa henni vatn á sameiginlegt snyrti- herbergi hótelgesta. Þetta endurtók sig, en í þriðju ferðinni dvaldist brúðguman- um nokkuð. „Hvers vegna varstu svona lengi, elsk- an mín?“ spurði hún. „Það sat maður á brunninum,“ svaraði hann. Corkbúi, sem fluttist til Dyflinnar, lækkaði greindarvísitöluna í báðum borgunum. Prakkari einn í Connemara stal hænu af prestinum. Nú kom að skriftum, og hann sá ffam á að þurfa að gangast við sekt sinni. Hann hóf játningu sína svona: „Faðir, ég hef stolið hænu og ætla að láta yður fá hana.“ „Skilaðu henni þeim sem þú stalst henni ffá, sonur sæll,“ mælti skriftafaðir- inn. „Ég er búinn að bjóða honum hana, en hann vill ekki þiggja." „Eigðu hana þá,“ svaraði presturinn. Frægur vesturstrandarbúi var „Lahy the Liar“, sem á írlandi skipar svipaðan sess og Vellygnibjami hérlendis. Hann sagði svo ffá: „Við pabbi áttum úrvalshryssu, sem við sendum í margar veðreiðar og höfð- um mikinn hagnað af. Einu sinni fór hún fylfull í veðhlaup og lagðist niður í miðri keppni og kastaði. Þá leist okkur pabba ekki á blikuna. En merin spratt upp og kom fyrst í mark - og folaldið númer tvö. Þetta var góður dagur hjá okkur pabba.“ Af öðmm sögum um Kerrybúa má nefna, að tveir þeirra fara létt með að mála glugga á þriðju hæð húss: Annar fer upp og málar en hinn heldur við stig- ann. En ef glugginn er á jarðhæð, þarf tuttugu og tvo Kerrybúa til verksins. Auk þeirra tveggja sem fyrr em nefndir, þarf tuttugu til að grafa fyrir stiganum. Tveir írar bókuðu sig til gistingar á þarlendu hóteli, og var annar ffá Kerry. Sá skráði sig i gestabókina með tveimur X-um. Hótelstjórinn var að vísu alvanur því að Kerrybúar notuðu X í nafns stað, en hvers vegna vom þau tvö? Félaginn gaf þá skýringu, að þetta væri háskóla- genginn Kerrybúi: Fyrra X-ið stæði fyrir Sean O'Sullivan, en hitt þýddi „Master of Arts“. Vinnuflokkur frá Kerry var að negla viðarklæðningu innan á herbergi. Verk- stjórinn, sem var frá Kerry eins og hinir, tók effir því að einn smiðurinn fleygði öðmm hveijum nagla. „Hvers vegna fleygirðu nöglunum?" spurði hann. „Hausinn er öfiigu megin.“ „Asni geturðu verið. Þeir eiga að fara í vegginn á móti.“ Skotar hafa löngum búið við kröpp kjör, enda er sparsemi þeirra við bmgð- ið, raunar langt umffam það sem ástæða er til. Sjálfsagt hafa þeir sjálfír búið til flestar eða allar Skotasögumar, rétt eins og írar em höfúndar þeirra sagna sem hér hafa verið raktar. Sonur skoskra hjóna var kominn með gleraugu. Heimilsfaðirinn sagði við hús- móðurina: „Taktu gleraugun af honum Sandy, þegar hann er ekki að horfa á neitt sér- stakt.“ Viskí kemur skiljanlega við sögu í mörgum Skotasögum: Bandaríkjamaður, Englendingur og Skoti sátu á krá að sumbli, hver með sitt viskíglas. Flugnager bar að, og lenti fluga í glasi hvers þeirra. Kaninn lagði glasið umsviflalaust til hliðar og pantaði annað, Englendingurinn veiddi fluguna upp úr sínu glasi með skeið, en Skotinn vatt fluguna. Skoti var á gangi með viskífleyg í rassvasanum. Hann hrasaði illa, og þegar hann stóð upp, fann hann eitthvað renna niður lærið aftanvert. Hann greip um vökvann og skoðaði, og hrópaði svo: „Guði sé lof að það er bara blóð!“ Heima er bezt 451

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.