Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Page 44

Heima er bezt - 01.10.2002, Page 44
Þráinn Þorvaldsson: íslensk ætihvönn aftur hafin til vegs og virðingar í janúar á þessu ári kom á markað fyrsta náttúruvaran úr æti- hvönn, sem fyrirtækið SAGAMEDICA-Heilsujurtir ehf. setur á markað. Vara þessi, sem ber nafnið Angelica, er árangur 10 ára rannsókna Sigmundar Guðbjamasonar prófessors og Stein- þórs Sigurðssonar lífefnafræðings og fleiri vísindamanna við Háskóla Islands. Með því að rannsaka og framleiða náttúm- vömr úr ætihvönn er verið að hcfja ætihvönnina til vegs og virðingar eins og hún naut áður meðal þjóðarinnar. Um leið er verið að færa þessi fomu heilbrigðisvísindi frá grasalækning- um yflr í líftækniiðnað. Vaxandi áhugi er nú í heiminum fyrir því að horfa aftur til náttúmnnar í leit að efnum til heilsubótar. Lækningajurtir vom aðal uppistaðan í öllum lyíjum til loka 18. aldar þegar nútima lyfjaiðnaður komst á legg. Um 30% lyfja nútímans koma úr náttúmnni. Merkileg saga ætihvannarinnar Ætihvönnin á sér merkilega sögu og er önnur tveggja merki- legustu lækningajurta íslands en hin eru fjallagrösin. Rekja má sögu ætihvannarinnar á íslandi frá upphafi landnáms. Ekki er vitað hvort landnámsmenn fluttu hvönnina með sér til landsins og hófu ræktun. Helgi Hallgrímsson telur líklegra að hún hafi verið hér fyrir og jafnvel trúlegt að hún hafi hjarað af jökultím- ann hér á landi. Því sé þróunarsaga hennar á Islandi mörg þús- und ára gömul. Hvönn hefur verið þekkt og nytjuð ffá örófl alda og er nafnið sammerkt öllum norrænum málum (kvan). Á Grænlandi flnnst orðið „kuanek“ sem merkti hvönn. Hvönn var mikilvæg matjurt á Norðurlöndum og er talin vera eitt fyrsta ræktaða grænmetið. Hvannagarðar vom algeng- ir við bæi. Auk þess var hún talin mikilvæg lækningajurt. Hvönn vex víðar og sunnar í álfu og eru um 30 tegundir til af hvönn. Norræna hvönnin þótti mun kraftmeiri en sú sem sunn- ar óx. Þegar víkingar hófu verslunarferðir til Evrópu á níundu öld var hvönnin mikilvæg verslunarvara. Á haustin tóku menn með sér þurrkaðar hvannarætur sem notaðar vom sem gjald- miðill í verslun. Skemmtilegt er til þess að vita að rannsóknir þeirra Sigmundar og Steinþórs staðfesta meiri virkni norrænn- ar hvannar en þeirra sem vaxa sunnar i álfu. Hvannatekja var talin til hinna mestu búnytja fyrr á öldum og mikilvæg til neyslu. Ömefni víða um land minna á nýtingu og mikilvægi hvannarinnar, svo sem Hvanneyri, Hvanndalir, Hvannhólmi, Hvanneyjar, Hvannalindir og Hvanná og jafnvel hæsti tindur landsins Hvanndalshnjúkur tengist hvönninni. I Öræfum fínnst Rótarfjall sem talið er eiga við hvannarætur. Þá enduðu margar góðar sögur á „áttu böm og buru og grófu ræt- ur og muru“. Hér mun vera vísað til hvannaróta. Hvannaneysla er talin hafa verið mest um sunnanvert og austanvert landið og hvönn hafi verið sótt í hestburðum upp á Þórsmörk og Landmannaafrétt. Ræktunarmenn fóm lofsam- legum orðum um hvönnina í hvatningu sinni til ræktunar og flutti t.d. Bjöm í Sauðlauksdal hvannir í garð sinn. Árið 1782 heitir stjómin eins ríkisdals verðlaunum hverjum þeim i Múla- sýslum og á Norðurlandi, sem geti plantað mestri mergð af hvannarótum i jurtagarð sinn. Nýting hvannar var mest bundin við rætumar. Rætumar vom borðaðar hráar með ýmiss konar mjólkurmat og með harðfíski, mjólk, flautum og smjöri. Oft var rótinni safnað saman og hestburðir fluttir heim á bæi. Þar var rótin þurrkuð og loks grafín í mold og geymd til vetrarins. Sums staðar hefur tíðkast að borða njólana og vom stönglamir borðaðir hráir jafnvel með nýju smjöri. Eitthvað hefur verið um að blaða af ætihvönn væri neytt. Eg hef rætt við fólk sem þekkti að lauf og fræ hafi verið þurrkuð og notuð í grasaseyði. Sem dæmi um fjölbreytta notkun ræddi ég við konu á Suðurlandi sem er alin upp við að hafa hvannastöngla í kjötsúpu og þótti henni kjöt- súpan bragðlítil án hvannarinnar. Eitt er víst að ætihvönnin er heimarík jurt eftir átta til tíu þúsund ára búsetu á íslandi og yfirtekur hún allan gróður þar sem hún fær að vaxa í friði fyrir sauðkindinni. Sauðkindin hef- ur vit á því hvað henni er hollt. Lækningajurtir eins og æti- hvönn og burnirót vaxa ekki þar sem sauðkindinni er beitt. Nú, þegar svæði hafa víða verið friðuð fyrir sauðfjarbeit, yfirtekur hvönn gróðurinn eins og í eyjum á Breiðafírði. Hlunninda- bændur eiga í vaxandi erfíðleikum með að fmna hreiðrin í hvannaskóginum. Sá er þetta ritar hefur spurt bændur sem átt hafa sauðfé sem gekk eða gengur í hvönn, um áhrif hvannaáts á sauðkindina. Allir em sammála um að þau lömb séu hraust- ust að hausti sem gengið hafa í hvönn. Einn bóndi sem Iét fyrr- um kindur ganga sjálfala í eyjum á Breiðaflrði, sagði það hafa verið erfitt verk að ná lömbunum á haustin því þau hefðu verið svo kraftmikil og spretthörð. Aðrir hafa nefnt að meðalþungi slíkra lamba væri tvöfalt meiri en almennt gerist. Lömbin væm ekki svo þung vegna fitu heldur vöðva. Hins vegar væri bragð- ið af kjötinu heldur rammt. Enn sækist sauðkindin hart eftir hvönninni þótt landið sé friðað. Sjá má kindur feta sig niður í björg undir Eyjafjöllum og í Vikurhömmm í leit að hvönn, þegar landið fyrir neðan hefur verið friðað fyrir sauðfé. Erum að safna fróðleik Á ferð okkar hjóna um landið i tengslum við hráefnisöflun fyrir SAGAMEDICA-Heilsujurtir ehf., höfum við kynnst fjölda fólks sem sagt hefur okkur ýmsar sögur úr eigin reynsluheimi um hvönnina og notkun hennar. Því miður er sú kynslóð að hverfa sem þekkti neyslu ætihvannar af eigin raun. Við yrðum þeim lesendum þessar greinar þakklát fyrir fróðleik, sem það 460 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.